Morgunblaðið - 24.09.2021, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 24.09.2021, Qupperneq 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 S egðu mér með hvaða enska fótboltaliði þú heldur, hvað sé uppáhalds Euro- vision-lagið þitt og hver sé uppáhalds kynlífsstellingin þín og þá skal ég segja þér allt um persónuleika þinn. Nokkurn veginn svona hljómar samkvæmisleikurinn sem ein persóna Þéttingar hryggðar eftir Halldór Lax- ness Halldórsson, Dóra DNA, í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur, stingur upp á að farið sé í til að drepa tímann. Í verkinu fylgjumst við með fjór- um manneskjum sem af öryggisástæðum hefur verið skipað að bíða um óákveðinn tíma á borgarskrifstofu í Borgartúninu þar til yfir- vofandi hætta er liðin hjá. Fyrir utan ríkir umsátursástand og víkingasveitin vopnum búin leitar manns í hermannajakka sem talinn er bera ábyrgð á sprengingu í húsinu. Þegar verkið hefst eru tíu klukkustundir liðn- ar síðan persónur verksins leituðu skjóls á skrif- stofunni og fljótlega verða símar þeirra raf- magnslausir sem þýðir að litlar sem engar fréttir fást utan frá um stöðuna. Það er velþekkt aðferð að loka persónur af á tilteknum stað áður en hitað er upp í kolunum. Snjallt er að svipta þær símunum, því þegar ekki er lengur hægt að sökkva sér ofan í þá neyðast persónurnar til að tala saman. Minna fer hins vegar fyrir hvers kyns hlustun. Við erum kynnt fyrir húsmóðirinni Þórunni úr Hlíðunum (Vala Kristín Eiríks- dóttir), arkitektinum Einari úr Vesturbænum (Jörundur Ragnarsson), unglingnum Írenu úr Breiðholtinu (Rakel Ýr Stefánsdóttir) og iðnaðarmanninum Mána úr Grafarvoginum (Sveinn Ólafur Gunnarsson). Við fyrstu sýn virð- ast þau eiga lítið sameiginlegt sem birtist í kunn- uglegum og þreyttum deilum hægri- og vinstri- manna um umhverfismál, hjólreiðar, borgarlínu og umferðarskipulag. Það eina sem virðist tengja þessa tvo póla er orðræða þeirra um „þessa helvítis kerfislægu fasista“. Þegar á verkið líður er raunsæislegt yfir- bragðið brotið upp með leiftrum úr fortíð per- sóna sem gefa vísbendingar um að þær deili ákveðnum einmanaleika óháð fjölskylduhögum. Endurlitin, sem bjóða upp á áhugaverðustu dýnamík verksins, vekja áhorfendur líka til um- hugsunar um sýnd og reynd sem tengist þeirri ímynd sem fólk reynir að gefa af sér út á við. Slík ímyndarsköpun er auðvitað ekkert ný af nálinni þótt hún sé vissulega orðin fyrirferðar- meiri með tilkomu samfélagsmiðla. Dóri DNA hefur næmt auga fyrir umhverfi sínu og tekst að draga upp trúverðuga mynd af fjórum kunnuglegum persónum, sem hann býður okkur að hlæja að. Við þekkjum öll þessar týpur og sjálf okkur í þeim. Hann leyfir okkur að skoða þær líkt og undir smásjá þar sem þysjað er inn. Við blasir ástandslýsing sem er varla framvindudrifin. Þegar þysjað er aftur út undir lok verks hafa persónurnar lítið sem ekk- ert breyst þrátt fyrir öskurlætin og hamagang- inn á sviðinu. Vala Kristín Einarsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson fá úr mestu að moða í uppfærsl- unni. Hún sem ljóskan sem dreymir um að til- heyra þotuliðinu hvað sem það kostar þótt kostnaðurinn lendi á táningssyninum sem hún eignaðist ung. Hann sem sá tilfinningalega bældi karl sem Sveinn Ólafur er löngu orðinn sérfræðingur í. Svipbrigði hans þegar Máni er kominn í rökþrot og kallaði Einar „asna“ sem hann sér svo strax eftir eru óborganleg og mun meira gefandi en rifrildin á háa c-inu. Máni fær einnig fyndnasta endurlitið sem veitir mikil- vægar upplýsingar um getuleysi hans í sam- skiptum við hitt kynið. Dásamlega fyndinn er Sveinn Ólafur síðan sem sjálfumglaði eigin- maður Þórunnar. Jörundi Ragnarssyni tekst vel að miðla sveiflum Einars frá yfirlæti til vandræðagangs. Rakel Ýr Stefánsdóttir fær úr minnstu að moða í hlutverki unglingsins sem hafnar foreldrum sínum af hugmyndafræðilegum ástæðum, en getur samt varla staðið á eigin fótum án þeirra. Írena er sú eina sem fær ekkert endurlit og verður fyrir vikið eins og lokuð bók. Ekki bætir heldur úr skák að hún er einnig eina persónan sem áhorfendur fá ekki að vita hvers vegna var stödd á skrifstofum borgarinnar þegar sprengj- an sprakk. Hafi ætlunin verið að gefa í skyn að hún bæri þar ábyrgð eða væri vitorðsmaður þá var það alls ekki nógu skýrt. Sjónræn umgjörð sýningarinnar ber þess varla merki að persónurnar séu staddar á borgarskrifstofu ef frá eru taldir gulir kollar og gult húsgagn sem geymir kaffi og með því. Þess í stað er bakveggurinn klæddur stillönsum með tilheyrandi grænu öryggisneti, en engar vís- bendingar gefnar um það hvort nota eigi still- ansana til uppbyggingar eða niðurrifs. Netið er jafnframt notað til að tákna einu útgönguleiðina út úr rýminu, en virkar ekki sem skyldi til að afmarka skilin milli rýma. Hvorum leikhluta fyrir sig lýkur með flutn- ingi lags í fullri lengd. Fyrra lagið er lagt Einari í munn þar sem hann líkt og Pocahontas veltir upp spurningunni um það hver sé í reynd frum- stæður í samskiptum sínum við umhverfið og náttúruna. Seinna lagið, sem var Eurovision- framlag Ítala 1987, syngja persónur verksins saman á frummálinu. Vafalítið muna einhverjir eftir íslenskri þýðingu lagsins og velta fyrir sér hvort með því eigi að undirstrika einmanaleika persónanna og þrá eftir samveru með öðrum. Áhorfendur sem rýna í ítalska textann rekast þar á ljóðmælendur sem eru fastir í borginni og hræðast hugmyndina um of mikið frelsi. Er niðurstaða verksins mögulega sú að það eru ekki borgarmúrar, tiltekin hverfi eða lokuð rými sem í reynd hefta frelsi okkar, heldur sú meðvitaða og ómeðvitaða ímynd af okkur sjálf- um sem við reynum að lifa upp til og halda að öðrum jafnt í samkvæmisleikjum og almennum samtölum? Tryggir náið sambýli það að fólk láti sig aðra varða? Þétting hryggðar veitir engin afgerandi svör við þessum spurningum þegar hún þysjar út eftir ástandsskoðun. Sérðu það sem ég sé? Ljósmynd/Grímur Bjarnason Borgarleikhúsið Þétting hryggðar bbbnn Eftir Halldór Laxness Halldórsson. Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir. Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger. Tónlist og hljóð: Garðar Borgþórsson. Lýs- ing: Kjartan Þórisson. Leikgervi: Elín S. Gísladóttir. Sviðshöfundur: Jóhann Kristófer Stefánsson. Aðstoð við raddþjálfun: Kristjana Stefánsdóttir. Leikarar: Jörundur Ragnarsson, Rakel Ýr Stefáns- dóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Vala Kristín Eiríksdóttir. Frumsýning á Litla sviði Borgarleik- hússins fimmtudaginn 16. september 2021. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Svör „Þétting hryggðar veitir engin afgerandi svör,“ segir í rýni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.