Morgunblaðið - 07.10.2021, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 07.10.2021, Qupperneq 37
✝ Sigurbjörn Blöndal Sigur- björnsson fæddist í Reykjavík 3. nóv- ember 1958. Hann lést hinn 21. sept- ember 2021 á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja. Foreldrar hans voru Ester Snæ- björnsdóttir, Reykjavík, f. 7.9. 1923, d. 31.7. 2016, og Sig- urbjörn Árnason, Vest- mannaeyjum, f. 6.3. 1920, d. 31.12. 1999. Þau slitu samvistir. Systkini Sigurbjörns eru Snæ- björn, f. 2.4. 1947, d. 27.3. 2000; Hafþór, f. 31.7. 1949; Sigurður, f. 21.6. 1950; Sigmar, f. 12.9. 1951, d. 29.3. 1972; Ingibjörg, f. 11.9. 1952; Árni, f. 22.11. 1953, d. 10.3. 1983: Páll, f. 15.4. 1955; Aðalheiður, f. 2.6. 1956, og Finn- bogi, f. 22.9. 1957, d. 27.10. 2001. Hálfsystkini Sig- urbjörns, samfeðra, eru Kristín, f. 15.9. 1944, og Svanur, f. 13.2. 1965. Sigurbjörn var yngstur tíu systkina og ólst hann upp í Gnoðarvogi 24. Hann gekk í Voga- skóla og útskrif- aðist með stúdents- próf frá Mennta- skólanum við Sund. Börn Sigurbjörns eru Ólafur Ari, f. 10.5. 1981, barnsmóðir Lilja Sigurðardóttir, f. 12.7. 1960, og Sandra Dögg Ein- arsdóttir, f. 10.3. 1993, barns- móðir Elín Magnea Hafsteins- dóttir, f. 10.9. 1963. Barnabörn Sigurbjörns eru fjögur. Útför Sigurbjörns fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 7. október 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. Sigurbjörn, Diddi eins og hann var alltaf kallaður, var yngstur af okkur tíu systkinun- um. Öll fædd á ellefu árum. Við systkinin vorum mjög samrýnd, studdum hvert annað og mikill kærleikur ríkti okkar á milli. Pabbi flutti af heimilinu þegar Diddi var aðeins eins árs og sáum við hann aðeins í örfá skipti eftir það. Því gerðist það af sjálfu sér að þau eldri hjálp- uðu mömmu við uppeldið og studdu þau yngri. Þar sem ég var þremur árum eldri en Diddi kom það í minn hlut að leiðbeina honum. Við vorum einhuga um að hjálpa mömmu að reka þetta stóra heimili. Okkur gekk öllum mjög vel í skóla og framtíð hóps- ins virtist björt. Öll vorum við líkamlega hraust og sterk. Við spiluðum flest á einhver hljóðfæri enda hafði mamma náttúrulega hæfi- leika á því sviði. En óveðursskýin tóku að hrannast upp þegar andleg veik- indi fóru að stinga sér niður í hópnum með gríðarlegu niður- broti og eyðileggingu. Þegar Diddi greinist rúmlega tvítugur að aldri, þá höfðu þrír veikst al- varlega og einn þeirra svipt sig lífi. Það varð Didda því hræði- legt áfall að veikjast líka. Hann var nýbakaður faðir og stefndi í læknisfræðina þá um haustið og framtíðin ekkert annað en til- hlökkun þegar heimurinn ger- samlega hrundi. Tveimur árum eftir að Diddi veiktist féll Árni bróðir okkar fyrir eigin hendi. Við Diddi, sem vorum mjög nánir og góðir fé- lagar, settumst niður við það áfall og sömdum lög og texta á heila plötu sem tileinkuð var bróður okkar nýlátnum. Platan var eins konar minningargrein um Árna heitinn, sem átti eitt lag á plötunni. Heilsu Didda hrakaði og þunglyndið varð hon- um ofviða. Hann gerði allt til að komast út úr myrkrinu, en svo kaldhæðnislegt sem það kann að hljóma, þá fann hann í neyslunni einhvern vonarneista, a.m.k. um stundarsakir, þar til vítahring- urinn tók öll völd. Árin liðu og eyðileggingin hélt áfram; fjórir voru fallnir, langt fyrir aldur fram. Diddi náði sér aldrei af veikindunum. Hann varð því sá fimmti sem fór alltof fljótt. Ég sat hjá honum þegar hann skildi við og reyndi af veikum mætti að hvísla honum huggunarorð í eyra. Jæja elsku Diddi minn. Í dag, þegar ég fylgi þér síðasta spöl- inn, syngurðu til hennar Ísa- bellu. Í dag ertu engill alheimsins. Þinn bróðir, Páll (Palli). Elsku mágur minn, Diddi, ég verð að kveðja þig í dag. Þið bræðurnir voruð afar góð- ir félagar og eigum við skemmti- legar minningar saman úr Hafn- arfirðinum. Þið spiluðu á gítarinn, hana Ísabellu, og tefld- uð skák og gátuð spjallað saman um öll heimsins mál langt fram á nótt. Eins og Díana Hilmarsdóttir skrifaði um þig þá hefur þú lifað skrautlegu en jafnframt því lífi sem þú vildir lifa. Munum góðu stundirnar, elsku Diddi minn, en þeim fylgja líka erfiðar stundir. Þetta fallega stef samdir þú og á vel við, líka í dag. There will come the time soon When you’ll be able to hitchhike to the Moon, To the Moon (Brátt mun sá tími koma að þú getur húkkað far til tunglsins) Kveðja, Elfa Dís Austmann. Núna er elsku Diddi frændi farinn. Ég man eftir Didda sem skemmtilegum manni. Það var alltaf stutt í húmorinn og talaði hann alltaf svo fallega um börnin sín tvö. Diddi hafði mikla ánægju af tónlist og hef ég enn gaman af því að hlusta á þá bræður syngja og spila á plötunni Bonjour Mammon enda hörkugóð lög og textarnir ekki síðri. Ég var svo heppin að pabbi gaf sér tíma til þess að segja mér frá bræðrum sínum og systrum og sagði mér hvernig lífið hefði verið áður en hann eignaðist fjölskyldu. Ég fékk þannig að heyra góðu sögurnar um þau systkinin og ekki síst um hvað pabbi og Diddi voru góðir félagar. Pabbi hafði mikla vernd- artilfinningu gagnvart Didda al- veg frá því að þeir voru litlir og vissi ég að pabbi hugsaði mikið til hans þótt hann hefði kosið annað líferni. Ég spurði pabba hvernig Diddi var sem barn í þeirri von að púsla því saman hvernig stóð á því að hann fór þann veg sem hann gerði. Hann lýsir honum sem rólegum, þægum dreng sem vildi allt fyrir alla gera og vildi gera allt vel og rétt. Í raun al- gjört draumabarn, enda var hann alltaf litli strákurinn henn- ar mömmu sinnar (ömmu Ester- ar). Þeir sem þekkja sögu fjöl- skyldunnar vita að áföllin hafa verið ófá og í raun erfitt að átta sig á því hvernig nokkur mann- eskja kemst heil í gegnum þau. Það lá ljóst fyrir mér að Diddi var ungur þegar áföllin byrjuðu að koma og á þeim tíma var ekki mikið um hjálp að fá. Hver og einn fjölskyldumeðlimur hefur þannig þurft að vinna úr áföll- unum á sinn eigin hátt og náðu sumir því betur en aðrir. Diddi fann sér stað þar sem hann gat flúið raunveruleikann og tók það sinn toll. Nú er Diddi kominn á góðan og fallegan stað þar sem hann er að spila á gítarinn með Árna bróður sínum og sýnir honum lögin sem þeir sömdu fyrir hann. Með þeim eru bræður hans Finnbogi, Sigmar, Snæbjörn og Ester amma. Þau eru sameinuð á ný. Selma Blöndal Pálsdóttir. Skrýtið fannst mér að sjá það á Facebook að þú værir látinn og ég myndi aldrei sjá þig aftur. Elsku Diddi minn, ég mun sjá verulega eftir þér og vitandi af því að rekast ekki á þig í AA- húsinu í Keflavík eða á röltinu verða mikil viðbrigði en ég mun ávallt minnast þín með hlýju og gleði. Ég kynntist Didda eins og hann var kallaður á AA-fundi og man ég aldrei eftir honum öðru- vísi en glöðum og hjálpsömum manni. Ávallt tilbúinn að rétta fram hjálparhönd í uppvaski og að vilja vera þátttakandi en erf- itt var fyrir hann að vera edrú. Eins og flestallir sem þekkja þennan sjúkdóm þá er hann mik- ill skaðvaldur og endar á tvenna vegu „geðveiki eða dauða“. Þau skipti sem við hittumst var ég ávallt tilbúinn að rétta þér hjálp- arhönd og þó svo að það hafi ver- ið að lána þér pening fyrir ein- hverju þá var það engin eftirsjá því ávallt vildi ég vera þér til staðar og rétta þér hjálparhönd. Ég man eftir þeim degi þegar þú spurðir mig hvort ég vildi sponsa þig og það var mikil gleði að vita af því að þig langaði til að hætta en það getur verið erfiður róður og þó svo að þú vildir vera edrú og langaðir að hætta þá virtist það vera erfitt og vonaði ég ávallt að þú myndir hringja í mig og við færum að lesa saman. Mér þótti afskaplega vænt um þig og fannst mér þú vera einstaklega skemmtileg persóna, fullur af hlýju og eldmóði. Það þótti öllum vænt um þig og vonuðust allir eftir að sjá þig edrú. En áfengis- og fíkniefnadjöfullinn getur ver- ið mikill hrammur. Það var gam- an að sjá þig á AA-fundum, þó svo þú værir ekki alveg þurr þá hafðir þú þá kunnáttu að vera hljóður og hlusta á aðra, man líka eftir því að þú vildir vera edrú og þú ætlaðir þér að vera edrú. Elsku Diddi minn, ég veit að þú ert á góðum stað og að þér líður vel og loksins búinn að finna friðinn sem að þú varst að vonast eftir svo lengi. Ég veit að þú ert edrú núna og þú fylgist vel með þínum vinum og afkom- endum. Á meðan minningarnar um góðan mann eru til staðar verður þú ávallt lifandi í hjörtum okkar allra. Kæru aðstandendur og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og mun biðja góðan Guð um að styrkja ykkur um komandi tíð. Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld. Ég kem á eftir, kanske í kvöld, með klofinn hjálm og rofinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld. (Bólu-Hjálmar) Guðmundur Árni Sigurðsson. Sigurbjörn Blöndal Sigurbjörnsson mála þegar Valdimar talaði, þá heyrðist til hússins. Fyrir hönd PwC er hér þakkað fyrir hans góða og farsæla ára- tuga starf fyrir félagið. Jafnframt sendum við innilegar samúðar- kveðjur til Gígju eiginkonu hans, Jóhanns Friðgeirs sonar þeirra og fjölskyldunnar allrar. Það er bjart yfir minningu Valdimars Ólafssonar. Vignir Rafn Gíslason, stjórnarformaður. Í dag kveðjum við góðan vin og starfsfélaga til margra ára. Valdimar Ólafsson kom til starfa á Endurskoðunarskrif- stofu N. Manscher & Co. árið 1963 (í dag PwC ehf.) og starfaði þar til ársins 2001. Áður en Valdi Óla, eins og hann var jafnan nefndur í okkar hópi, hóf störf og nám í endurskoðun hafði hann verið í eigin rekstri um nokkurra ára skeið og áður dvalið erlendis við nám og störf. Hann og nokkr- ir félagar urðu að námi loknu meðeigendur að fyrirtækinu með Sigurði Jónssyni, löggiltum end- urskoðanda, sem hafði áður rekið það um áratuga skeið í samstarfi við Jón Guðmundsson kollega sinn. Valdimar var nokkru eldri og sigldari en flestir félagar hans. Snemma kom í ljós að hann var margfróður og frábær sögumað- ur, sem gaman hafði af að miðla af lífsreynslu sinni til okkar sam- starfsmanna og nutum við þess að hlusta á hann. Valdimar varð ungur áhugasamur um ættfræði og sá áhugi átti eftir að fylgja honum ævilangt og stytta honum stundir eftir að hann lét af störf- um. Mikil og góð samskipti eigenda fyrirtækisins og maka þeirra ein- kenndu allan þann tíma sem Valdimar starfaði með okkur. Á samverustundum voru Valdi Óla og Gígja Jóhannsdóttir, eigin- kona hans, hrókar alls fagnaðar og ómissandi. Saman fórum við í ótal ferðir bæði innanlands og ut- an, árlegar veiðiferðir, árshátíða- ferðir og ferðir á ráðstefnur og fundi endurskoðenda. Þegar ákveðið var að endur- skoðunarfyrirtækið tæki þátt í al- þjóðlegu samstarfi undir nafni Coopers & Lybrand á áttunda áratugnum var Valdi Óla valinn til þess að vera tengiliður við samstarfsaðila í Bretlandi. Því starfi sinnti hann um árabil með sóma og sótti marga fundi og ráð- stefnur erlendis fyrir okkar hönd. Valdimar starfaði sem endur- skoðandi fyrir stór og smá fyrir- tæki og stofnanir á sínum ferli, auk þess að aðstoða einstaklinga í einkarekstri. Hann var vel met- inn og virtur af viðskiptavinum og samstarfsmönnum. Með því að vinna með honum fengu margir nemar í endurskoðun góða reynslu, kennslu og þjálfun í vinnutækni og samskiptum við viðskiptavini, en Valdimar var þolinmóður og góður leiðbein- andi. Fyrir nokkrum árum tókum við fyrrverandi eigendur fyrir- tækisins að hittast mánaðarlega yfir kaffisopa og tók Valdimar þátt í þessum fundum okkar með- an heilsan leyfði. Við viljum að lokum vitna til orða eins félaga okkar þegar hon- um barst fregnin um andlát Valdimars: „Maður kom aldrei að tómum kofunum hjá honum, hann gaf endalaust af sér, bæði í gamni og alvöru, og sýndi öllum virðingu og vinsemd.“ Við flytjum Gígju eiginkonu Valdimars, syni þeirra Jóhanni Friðgeiri, tengdadótturinni Írisi, afkomendum þeirra og öðrum ástvinum innilegar samúðar- kveðjur frá fyrrverandi sam- starfsmönnum og meðeigendum. Við minnumst Valdimars með virðingu og þökk. Blessuð sé minning hans. Valdimar Guðnason, Emil Th. Guðjónsson, Reynir Vignir. MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021 Minningarkort fæst á nyra.is eða í síma 561 9244 Okkar ástkæri Finnbogi, faðir okkar, tengdafaðir og afi, FINNBOGI JÓNSSON verkfræðingur og fv. framkvæmdastjóri, Helgamagrastræti 23, Akureyri, lést í Vancouver í Kanada 9. september. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 8. október klukkan 15. Berglind Ásgeirsdóttir Esther Finnbogadóttir Ólafur Georgsson Ragna Finnbogadóttir Roberto Gonzalez Martinez barnabörn og aðrir aðstandendur Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIGERÐUR MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR frá Miðtúni, lést á hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli 26. september. Útförin fer fram frá Stórólfshvolskirkju, Hvolsvelli, laugardaginn 9. október klukkan 13. Streymi á https://fb.me/e/1bE1uYxki, einnig á mbl.is/andlát. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar láti Dvalarheimilið Kirkjuhvol njóta þess. Aðstandendur Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, GRÉTAR OTTÓ RÓBERTSSON læknir, lést á Landspítalanum laugardaginn 2. október. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 15. október klukkan 15. Elín Þorgerður Ólafsdóttir Ásdís Lovísa Grétarsdóttir Kjartan Jóhannsson Guðríður Anna Grétarsdóttir Sindri Hans Guðmundsson Heiður Grétarsdóttir Sveinbjörn Þórðarson Tumi Kjartansson Troels Andri Kjartansson Teitur Kjartansson Elín Ebba Sindradóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN MARTEINSDÓTTIR verslunarkona, lést sunnudaginn 3. október á Hjúkrunarheimilinu Seltjörn á Seltjarnarnesi. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 20. október klukkan 13. Lilja Jónsdóttir Ragnar Daníel Stefánsson Marteinn Jónsson Þórunn Björg Ásmundardóttir Kristján Jónsson Kristín Ólöf Jansen ömmubörn og langömmubörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRAGI STEFÁNSSON, lést föstudaginn 1. október á líknardeild Landspítalans. Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju mánudaginn 11. október klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Sigrún Björg Bragadóttir Garðar Bragason Prapha Bragason Hólmfríður Bragadóttir Bragi Þór Bragason barnabörn og barnabarnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.