Morgunblaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 58
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Leynilögga, fyrsta kvikmynd Hann-
esar Þórs Halldórssonar í fullri
lengd, var frumsýnd á kvikmynda-
hátíðinni í Locarno í Sviss í ágúst
við góðar undirtektir og var Hann-
es viðstaddur frumsýningu ásamt
leikurum og helstu aðstandendum
myndarinnar. Hún er einnig sýnd á
kvikmyndahátíð-
inni í London
sem hófst 5.
október og verð-
ur frumsýnd hér
á landi 20. októ-
ber.
Hannes er öllu
þekktari fyrir af-
rek sín á fót-
boltavellinum en
á hvíta tjaldinu
en nú kann að
verða breyting þar á. Þótt þetta sé
hans fyrsta kvikmynd hefur hann
verið viðriðinn kvikmyndalistina allt
frá hann var drengur og leikstýrt
stuttmyndum, tónlistarmynd-
böndum og auglýsingum meðfram
boltanum.
Hannes gerði sína fyrstu stutt-
mynd 12 ára og í menntaskóla fór
hann að sinna kvikmyndalistinni af
meiri alvöru, að eigin sögn, og gerði
stuttmyndir og þætti. „Síðan byrj-
aði ég að vinna við þetta strax eftir
að ég hætti í Versló, þegar ég var
tvítugur, og er búinn að starfa sem
kvikmyndagerðarmaður í fimmtán
ár en aðallega í auglýsingum og
slíku,“ segir Hannes.
Byrjaði sem grínstikla
Leynilögga er grín-, hasar- og
löggumynd (eins og sést glöggt af
stiklu hennar) og segir af lögreglu-
manni sem á bæði í baráttu við
sjálfan sig, persónlegar áskoranir
og stórhættulega glæpamenn.
Lögguna leikur Auðunn Blöndal og
með önnur helstu hlutverk fara Eg-
ill Einarsson, Sverrir Þór Sverris-
son/ Sveppi, Steinþór Hróar Stein-
þórsson/ Steindi jr., Vivian Ólafs-
dóttir, Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir og Björn Hlynur Haraldsson.
Leynilögreglumaðurinn sem Auð-
unn leikur er auðvitað þreyttur,
pirraður og þunnur og nennir þessu
ekki, að sögn Hannesar, og þarf að
horfast í augu við eigin fordóma til
að verða betri og heilsteyptari mað-
ur.
Hugmyndin að myndinni kvikn-
aði árið 2011. „Við gerðum grín-
atriði fyrir sjónvarpsþátt Audda og
Sveppa sem var á Stöð 2 á sínum
tíma. Þeir fóru í trailer-keppni einn
föstudaginn og ég var fenginn til að
gera trailer fyrir Audda og Bragi
Þór Hinriksson, sem gerði Sveppa-
myndirnar, gerði trailer með
Sveppa,“ segir Hannes. Þessar
stiklur áttu að standa fyrir ímynd-
aðar bíómyndir og hét kvikmyndin
hans Audda einmitt Leynilögga og
sagði af hörðustu leynilöggunni í
bransanum og hans innri og ytri
baráttu. Björn Hlynur lék illmenni í
stiklunni, líkt og í kvikmyndinni, og
einnig léku í henni þeir Steindi jr.
og Egill.
Hannes segir þetta hafa verið
metnaðarfullan trailer og bæði
Sambíóin og Sena hafi haft sam-
band við þá í framhaldinu og spurt
hvort þeir hefðu ekki áhuga á að
skrifa handrit að kvikmynd út frá
honum. Þeir slógu til og skrifuðu
fyrsta uppkast að handriti. Sú vinna
náði þó ekki lengra af ýmsum
ástæðum, að sögn Hannesar. „Ég
fór út í atvinnumennsku og hand-
ritið var bara ekki komið lengra
áleiðis þegar við urðum að setja það
á ís. Ég hélt að þetta myndi bara
enda þar en við vorum alltaf með
þetta bakvið eyrað,“ segir Hannes
frá. Hann hafi alltaf langað til að
gera myndina en haldið að það væri
orðið of seint þegar hann sneri aft-
ur heim til Íslands úr atvinnu-
mennsku erlendis. „Síðan fórum við
að ræða þetta, hvort ennþá væri
stemning fyrir þessu, og ákváðum
að kýla á þetta.“
Grínmyndafólk sem
vill gera hasarmynd
Pegasus framleiddi Leynilöggu á
endanum og var það Lilja Snorra-
dóttir framleiðandi sem hafði sam-
band við Hannes og Auðun og fékk
þá á fund til sín. Til greina kom að
gera sjónvarpsþætti en að lokum
var ákveðið að gera kvikmynd og
þá öllu vandaðri en þá sem gamla
stiklan úr keppni Audda og Sveppa
var að kynna. Af stiklu „alvöru“
Leynilöggu að dæma getur myndin
varla verið annað en gamanhasar-
mynd eða gamanmynd með hasar-
ívafi.
Hannes staðfestir það, segir
Leynilöggu vissulega gamanmynd
en þó gerða af grínmyndafólki sem
langi að gera hasarmynd. „Öll út-
færsla myndarinnar, bæði leikur og
kvikmyndagerð, er gerð af alvöru,
eins og um raunverulega has-
armynd sé að ræða. Grínið felst að
miklu leyti í því að staðfæra svona
týpíska klisjuhasarmynd í íslenskar
aðstæður og fara eins „over the
top“ og við getum í það. Það fer
ekkert á milli mála að þetta er grín-
mynd þegar þú horfir á hana en
það haga sér allir eins og þeir séu í
alvöruhasarmynd. Pælingin er að
þú sökkvir aðeins inn í hana, hún á
að vera mjög skemmtileg og fyndin
en líka flott og kraftur í henni. Og
vonandi hrærir hún stundum líka í
einhverjum tilfinningum,“ segir
Hannes. Hann segir myndina ekki
Naked Gun eða Police Academy
heldur meira í anda Hot Fuzz.
Leikarar myndarinnar eru lærðir
og ólærðir í bland og einnig koma
við sögu þjóðþekktir einstaklingar á
borð við Bríeti, Jón Jónsson og
Rúrik Gíslason, fyrrverandi sam-
herja Hannesar í landsliðinu í fót-
bolta. „Fólk sem maður hefur ekk-
ert endilega séð á hvíta tjaldinu,“
segir Hannes um þessa aukaleikara
og að vel hafi gengið að leikstýra
ólærðum jafnt sem lærðum leik-
urum. Auddi, Sveppi og Steindi búa
enda að mikilli reynslu af að leika í
gamanþáttum og kvikmyndum og
Sveppi hafi auk þess reynslu úr
leikhúsi. Hannes segir þá félaga
orðna mjög sjóaða leikara og að
engin vandamál hafi því komið upp
í leikstjórninni.
Óvenjulegt val
Þegar fréttir bárust í sumar af
því að Leynilögga hefði verið valin í
aðalkeppni alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðarinnar í Locarno, sem þykir
bæði virðuleg og listræn hátíð, hélt
blaðamaður fyrst að um grín væri
að ræða. En svo var ekki og hlaut
myndin bæði mikla athygli þar ytra
og prýðilegar viðtökur. Hannes og
fylgdarlið hans var myndað í bak og
fyrir og mætti leikstjórinn í fjölda
viðtala.
Hannes er spurður hvort ekki sé
óvenjulegt að kvikmynd á borð við
Leynilöggu sé valin á virðulega
hátíð á borð við þá í Locarno og
segir hann svo vera. „Það er
óvenjulegt og vakti mikla athygli í
ár. Listrænn stjórnandi hátíðar-
innar er eitthvað aðeins að skipta
um gír, aðeins að gera hana að ein-
hverju leyti meira „mainstream“
eða „entertaining“ og hann tekur
myndina alltaf sem dæmi þegar
hann er að tala um að hann sé að-
eins að reyna að létta hátíðina. Að
velja mynd eins og Cop Secret, eins
og hún heitir á ensku,“ segir Hann-
es.
Hann segir það sannarlega hafa
komið sér á óvart að Leynilögga
hefði verið valin á Locarno og hvað
þá í aðalkeppnina. „Við fengum frá-
bærar viðtökur úti en við höfðum
engar væntingar um að fara með
myndina út fyrir landsteinana, við
ætluðum bara að gera skemmtilega
mynd fyrir íslenska markaðinn,“
segir Hannes kíminn.
Hann segir stóran hóp hafa farið
út til Locarno og að öllum hafi þótt
ferðin stórskemmtileg. „Það var
mikið hlegið og mikið stuð. Ég held
að við höfum vakið smá athygli, fólk
sá að við vorum þakklát fyrir að
vera þarna og þessi gleði skilaði sér
í gegn. Dagurinn þegar við frum-
sýndum myndina var mjög þétt
bókaður hjá mér, fyrst blaðamanna-
fundur og svo hvert viðtalið af öðru.
Það vekur náttúrlega athygli líka
að ég sé landsliðsmaður í fótbolta
og fólki finnst það áhugavert þann-
ig að það var mikið rætt við mig
þarna. Síðan fóru dómarnir að ber-
ast eftir frumsýninguna og þeir
voru meira eða minna allir jákvæð-
ir,“ segir Hannes og skal tekið fram
að viðtalið fór fram áður en Hannes
hætti að leika með landsliðinu.
Skemmtilegt form
Hannes segir mikið hafa verið
lagt í handritsskrif myndarinnar,
áhersla lögð á að kjöt væri á bein-
unum og handritið virðist hafa virk-
að, sé litið til jákvæðra viðbragða í
Locarno. „Við höfum gert eitthvað
þarna sem virkar,“ segir Hannes og
að hann hafi skynjað að fólk hafði
gaman af myndinni. „Þetta er
skemmtilegt form, það hafa allir
gaman af góðri og gamaldags næn-
tís-aksjónmynd, þetta er náttúrlega
sú formúla og það er erfitt að finn-
ast svoleiðis myndir leiðinlegar.“
„Höfum gert eitthvað þarna sem virkar“
Hasar Auðunn Blöndal í hlutverki löggunnar sem myndin er kennd við.
Gleði Leikstjórinn með aðalleikurum og framleiðendum Leynilöggu á hátíðinni í Locarno í ágúst.
- Leynilögga verður frumsýnd hér á landi 20. október - Hlaut góðar viðtökur á kvikmyndahátíð-
inni í Locarno - Hasar-, grín- og löggumynd í anda þeirra sem gerðar voru á tíunda áratugnum
Hannes Þór
Halldórsson
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Heildarlausnir í
umbúðum
Pakkaskraut
Pappír
Skreytingarefni
Pokar
Borðar
Teyjur
Bönd
Kort
Sellófan
Kynntu þér úrval
á vefverslun
www.danco.is