Morgunblaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 55
MENNING 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021
V
ersta manneskja í heimi er þroskasaga
ungrar konu sögð í tólf köflum og er
lokamynd norska leikstjórans Joachim
Trier í Óslóar-þríleik hans, á eftir End-
urheimt (2006) og Ósló, 31. ágúst (2011). Aðalsögu-
persónan, Julie (Renate Reinsve), er kona á þrí-
tugsaldri sem skiptir reglulega um starf og maka.
Þegar áhorfendur kynnast Julie fyrst er hún
læknanemi því þar telur hún að gáfur sínar séu
best nýttar. Síðan fær hún hugljómun og skiptir
yfir í sálfræði sem hún útskýrir fyrir móður sinni
að sé vegna þess að áhugi hennar liggi frekar á
hinu huglæga. Áður en áhorfendur vita af eru þeir
aftur mættir í stofuna hjá móðurinni þar sem Julie
útskýrir að hún verði að setja sálfræðibækurnar á
hilluna vegna nýlegrar ástríðu sinnar fyrir ljós-
myndun. Sama á við um karlmennina í lífi hennar,
þegar Julie skiptir um gír þá skilur hún þá eftir.
Í upphafsatriðinu kynnir Joachim Trier stef
kvikmyndarinnar fyrir áhorfendum. Julie stendur
á svölunum í baklausum svörtum kokteilkjól og
allur fókusinn er á henni. Í bakgrunni glittir í
borgina sem fellur í skugga Julie og er út úr fókus.
Heimurinn bíður við fætur hennar, hún er ung og
tækifærin eru endalaus. Hins vegar getur mörg-
um möguleikum fylgt valkvíði og verið erfiðara að
skuldbinda sig. Ef valmöguleikarnir eru endalaus-
ir hvernig er hægt að vera viss um að hafa valið
rétt og hvenær er kominn tími til þess að ákveða
sig? Julie stendur frammi fyrir þessum stóru
spurningum og vísar titillinn, „versta manneskja í
heimi“, í það hvernig Julie refsar sér fyrir þær
röngu ákvarðanir sem hún tekur, þótt það séu ein-
mitt þær sem geri hana mannlega.
Myndin er samansafn augnablika í lífi Julie þar
sem hún fetar sín fyrstu spor sem fullorðinn ein-
staklingur. Kaflarnir tólf eru mislangir og eiga
áhorfendur þar af leiðandi erfitt með að átta sig á
tímanum rétt eins og Julie sem virðist vera í kapp-
hlaupi við hann. Í einu atriði stoppar tíminn og Ju-
lie hleypur í gegnum borgina þar sem fólkið stend-
ur kyrrt í sinni stöðu. Þetta er í fyrsta skiptið sem
tíminn bíður eftir henni en ekki öfugt og hún hefur
aldrei verið hamingjusamari. Þar fær Julie að
upplifa sína helstu fantasíu, þ.e.a.s. val án afleið-
inga. Eina langtímasamband Julie er með farsæla
grafíska skáldsagnahöfundinum Aksel (Anders
Danielsen Lie) sem er 15 árum eldri en hún. Aksel
er þekktur fyrir grófar kynferðislegar teikni-
myndasögur sínar sem ný kynslóð femínista gagn-
rýnir hann harðlega fyrir, en þetta er ekki í eina
skiptið sem Trier hleypir nútímanum inn í
myndina.
Julie skrifar pistil sem ber nafnið „Munnmök á
tímum #MeToo“ en þar notar Trier kvikmynda-
formið til að sýna hvernig samfélagsmiðlar taka
virkan þátt í að móta samfélagið. Í samböndunum
í myndinni birtast einnig ýmis sér nútímaleg
vandamál, eins og t.d. hversu langt á par að ganga
í umhverfismálum, spurningin hvort réttlætanlegt
sé að fæða barn inn í heiminn og hvort konur séu
að gangast við úreltum hugmyndum um kynin
með því að verða mæður?
Í myndinni þrýstir Aksel á Julie að stofna fjöl-
skyldu með honum en hún telur sig ekki vera til-
búna til þess og þegar Aksel spyr hana hver
ástæðan sé getur hún engu svarað. Raunverulega
ástæðan er sú að móðurhlutverkið ógnar Julie,
hún er hrædd við það að móðurhlutverkið verði að
eina tilgangi hennar í lífinu. Þennan ótta sýnir
Trier listilega í myndinni með kómískri mynd-
fléttu þar sem teknar eru saman myndir for-
mæðra Julie þar sem þær líta hver annarri verr út
og tekið er fram hversu mörg börn þær eigi. Hægt
er að færa rök fyrir því að Trier gagnrýni þá úr-
eltu hugmynd að barnlaus kona verði aldrei heil
með því að segja sögu ungrar konu sem horfist í
augu við framtíð sína sem mun að öllum líkindum
ekki innibera móðurhlutverkið.
Versta manneskja í heimi var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni Cannes um mitt sumar þessa árs
þar sem myndin fékk tilnefningu til Gullpálmans
og Renate Reinsve var verðlaunuð fyrir bestan
leik í aðalhlutverki. Ásamt því vann myndin til
tvennra verðlauna á evrópsku kvikmyndahátíðinni
Palic. Kvikmyndin var í síðustu viku opnunar-
mynd RIFF (Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í
Reykjavík) í Gamla bíói og eftir sýninguna svaraði
leikstjórinn Joachim Trier spurningum gesta úr
sal. Það kemur ekki á óvart að Versta manneskja í
heimi hafi verið valin sem opnunarmynd hérlendis
enda niðurstaðan fyrirtaks rómantísk gaman-
mynd sem er ekki síður mynd af ungmennum nú-
tímans og þeim þrautum sem sú kynslóð þarf að
takast á við.
Kynslóð tækifæranna
Sjálfsásakanir Renate Reinsve í hlutverki Julie í Verstu manneskju í heimi. Titill myndarinnar vísar í
hvernig Julie refsar sér fyrir þær röngu ákvarðanir sem hún tekur í lífinu, eins og segir í gagnrýni.
Bíó Paradís
Verdens verste menneske/Versta manneskja í
heimi bbbbn
Leikstjórn: Joachim Trier. Handrit: Joachim Trier, Eskil
Vogt. Aðalleikarar: Anders Danielsen Lie, Renate
Reinsve, Maria Grazia Di Meo, 2021. 121 mín.
Sýnd á RIFF.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
„Rokkdrottningin“ Tina Turner
hefur selt útgáfurétt laga sinna, og
þar með réttinn til að nota nafn
hennar og ímynd í viðskipta-
samhengi, til útgáfufyrirtækisins
BMG sem er hluti Bertelsmann-
útgáfurisans.
Samkvæmt BBC mun BMG aldrei
hafa greitt jafn mikið fyrir útgáfu-
rétt að verkum nokkurs listamanns
en upphæðin er sögð nema um 50
milljónum dala, um 6,4 milljörðum
króna. Í tilkynningu er haft eftir
Turner að tónlist hennar verði í
„öruggum höndum“. Hún er 81 árs
gömul, hefur verið búsett í Sviss um
langt árabil og glímir við vanheilsu.
Á síðustu misserum hafa margir
kunnir tónlistarmenn fetað þessa
braut og selt réttinn að tónlist sinni
til stórra útgáfufyrirtækja fyrir
háar fjárhæðir, þar á meðal Neil
Young og Bob Dylan.
Vinsæl Tina Turner verður senn tekin inn í
Frægðarhöll rokksins öðru sinni.
Tina Turner seldi
útgáfuréttinn
Ludvig Kári
Quartet heldur
tónleika á Græna
hattinum á Akur-
eyri í kvöld,
fimmtudags-
kvöld. Kynnt
verður ný plata
kvartettsins,
Rákir, með nýj-
um íslenskum
djassbræðingi
sem innblásinn er af „þoturákum í
veðrahvolfi norðursins“, eins og
segir í tilkynningu. Kvartettinn
hefur komið fram á Jazzhátíð
Reykjavíkur, 2019 og 2021, en hann
skipa Ludvig Kári Forberg á víbra-
fón, Phil Doyle á saxófóna, Róbert
Þórhallsson á rafbassa og Einar
Scheving á trommur.
Kvartett Ludvigs
Kára kemur fram
Ludvig Kári
Forberg