Morgunblaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021
✝
Sigurður Ár-
mann Sigur-
jónsson fæddist á
Selfossi 26. júní
1952. Hann lést á
Landspítalanum
27. september
2021. Sigurður var
sonur hjónanna
Önnu Guðnýjar
Hildiþórsdóttur, f.
20.1. 1934, d. 25.6.
2020 og Sigurjóns
Óskars Sigurðssonar, f. 8.5.
1927, d. 11.11. 2016. Systkini
hans eru Kristín Júlía, f. 25.8.
1953, Aðalsteinn Þormar, f.
30.8. 1955, Anna María, f. 27.9.
1957, d. 2.7. 2002 og Að-
ist þá ásamt fjölskyldunni í
Hvassaleiti 16.
Hann gekk í Hlíðaskóla og
þaðan lá leiðin í Menntaskólann
við Tjörnina.
Í gegnum tíðina fékkst Sig-
urður við störf tengd verslun
og þjónustu. Alls konar við-
skipti áttu stóran hluta í lífi
hans og má segja að þau hafi
verið bæði vinnan hans og
stærsta áhugamál.
Hann ók leigubíl og lét til sín
taka í félagsmálum tengt at-
vinnubílstjórum. Hann var með-
limur í JC-hreyfingunni. Sig-
urður hafði alla tíð mikinn
áhuga á skák. Sem ungur mað-
ur var hann mjög efnilegur og
vann til fjölda verðlauna.
Síðustu árin og til dánardags
starfaði hann á Blindravinnu-
stofunni.
Útför Sigurðar Ármanns
verður í Grensáskirkju 7. októ-
ber 2021 kl. 15.
alheiður Guðrún, f.
10.5. 1965. Fóst-
urdætur hans, dæt-
ur Lek Kawep-
hanna, fyrrverandi
sambýliskonu hans,
eru Prisana, f.
11.8. 1986 og Wal-
nipha Bo, f. 14.9.
1989, sambýlis-
maður hennar er
Guðmundur Wut-
hitha, f. 22.11.
1984, þau eiga þrjá syni: Alex-
ander, f. 22.4. 2007, Patrick, f.
19.3. 2012 og Richard, f. 6.8.
2015.
Sigurður ólst upp til 8 ára
aldurs í Drápuhlíðinni en flutt-
Ég vil minnast í nokkrum orð-
um mágs míns Sigurðar Ár-
manns eða Sigga eins og hann var
kallaður. Hann ólst upp í Hvassa-
leiti 16, elstur fimm systkina.
Æskuheimilið var stórt því fyrir
utan þau systkinin og foreldrana
voru þar búsett um langt árabil
tvö gamalmenni austan úr
Þykkvabæ. Sveitungar, fjöl-
skylda og ættmenni að austan
komu við á heimilinu þegar leiðin
lá í borgina. Þannig var andinn í
þá daga og allir meira en vel-
komnir. Í þessum aðstæðum kom
í ljós að Siggi sýndi skák mikinn
áhuga. Skákfélagið útvegaði hon-
um leiðbeinanda, eldri mann, sem
kom reglulega inn á heimilið og
tefldi við hann. Siggi var oft kom-
inn með unna stöðu en maðurinn
sá jafnan við honum. Þó kom svo
að Siggi vann kallinn sem sagðist
þá ekki geta kennt honum meira.
Þetta var upphafið að tafl-
mennsku Sigga. Hann tók þátt í
mótum og þótti mjög efnilegur og
vann til verðlauna. Hann sá tafl-
borðið og stöðuna fyrir sér.
Blindskák var ekkert mál fyrir
honum. Hann notaði oft orðtök úr
skákinni eins og það er ekkert
annað í þessari stöðu eða nú eru
bara tveir leikir í stöðunni eða
það eru allir leikir vondir í stöð-
unni en skákin er ekki töpuð fyrr
en hún er töpuð. Það þarf að
hugsa vel næsta leik. Skákáhug-
inn fylgdi honum alla tíð. Þegar
hann var orðinn blindur fann
hann leiðir til að tefla við aðra í
tölvunni. Hugsanlega sá hann líf-
ið og heiminn eins og taflborð. Líf
hans var þá eins og skákin, stund-
um gekk vel og bjartsýnin var
mikil og hann sá tækifærin og
greip þau en stundum þrengdi að.
Það voru sigrar og það voru
ósigrar. Hann fór vel með hvort
tveggja. Hann ofmetnaðist ekki
af sigrum sínum. Í tengslum við
rekstur leigubílastöðvar og leigu-
bílaakstur sem hann vann við um
tíma fór hann í mannréttindamál
tengt félagafrelsi. Hann var ekki
sáttur við niðurstöðu íslenskra
dómstóla í því máli og fór með
mál sitt fyrir Mannréttindadóm-
stólinn í Strassborg þar sem
hann vann málið sitt. Hugsjóna-
maður sem vissi hvað var rétt og
fylgdi sannfæringu sinni. Hann
gerði þetta ekki til að græða pen-
inga heldur þvert á móti snerist
þetta um að réttlætinu væri full-
nægt og mannréttindi væru í
heiðri höfð. Skák og mát. Þetta
var unnið tafl sem hann talaði
ekki um. Hann sneri sér bara að
næstu viðureign.
Viðskipti áttu hug hans allan.
Hann stofnaði eða átti hlut í ýms-
um fyrirtækjum í gegnum tíðina.
Hann stóð alla tíð í innflutningi á
ýmsum vörum að utan og sótti
kaupstefnur og sýningar um all-
an heim. Bæði í Evrópu og Asíu. Í
einni af ferðum sínum til Taílands
kynntist hann Lek Kaweapanna
sem fluttist síðar til Íslands árið
2001 ásamt dætrum sínum sem
eru Well og Bo. Lek og Siggi slitu
samvistum en dæturnar hafa ver-
ið honum áfram stoð og stytta í
hans lífi sem og afastrákarnir
þrír sem hann bar mikinn kær-
leika til.
Siggi var óvenjulegt eintak af
manni. Hann var einstakur.
Hann var iðinn, hugurinn síleit-
andi að nýjum áskorunum og við-
fangsefnum í stöðunni á hverjum
tíma. Hann var félagslyndur en
samt einfari sem fór sínar eigin
leiðir. Upp úr fertugu fór að bera
á heilsufarsvanda. Hann lá oft
mikið fyrir og þurfti að gangast
undir ýmis erfið inngrip. Við
hvert inngripið á fætur öðru varð
hann í raun læknisfræðilegt
kraftaverk. Þrátt fyrir lélega
heilsu kvartaði hann ekki og virt-
ist aldrei líta á sig sem neinn
sjúkling og svo var alveg fram í
andlátið. Hann var bjartsýnis-
maður og sá sín tækifæri í erfiðri
og þröngri stöðu. Hann vísaði lé-
legri heilsu frá sér með því að
hugsa um innflutning á vörum og
viðskiptum og hvað hann gat gert
best fyrir fólk í kringum sig. Sið-
ast þegar ég heyrði í honum í
síma heyrði ég jafnframt að afa-
strákurinn hans bað hann að
hlusta á sig lesa. Þetta vildi hann
láta ganga fyrir og sagðist
hringja seinna. Þetta fannst mér
gott hjá honum.
Ég þakka Sigga mági mínum
samfylgdina. Well, Bo, Alexand-
er, Patrick og Richard sem og
systkinum hans og fjölskyldunni
votta ég mína dýpstu samúð.
Megi minning um góðan dreng
lifa.
Daníel Heiðar Guðjónsson.
Sigurður Á. Sigurjónsson
fæddist 26. júní 1952. Hann lést
27. september sl. á gjörgæslu eft-
ir dags legu þar. Þetta skyndilega
fráfall hans var öllum óvænt, þótt
líkamlegt ástand hans gæti
brugðist. Var horft til þess að
Siggi var á fullu að gera margan
viðskiptasamninginn, eins og
fram undan væri „að meika það“.
Í þessum skrifum langar mig að
minnast Sigga með fátæklegum
minningarbrotum og byrja ég á
skólagöngu hans. Sigurður var
góður námsmaður, á stundum
var almenn vitneskja Sigga það
mikil að námsbækur voru bara
notaðar sem uppflettirit. Í grunn-
skóla og menntaskóla var hann í
skákliðum skólanna og keppti á
stórmótum. Á þessum árum var
mikið farið á rúntinn, komið við á
Bæjarins bestu, þar sem snædd
var ein með öllu eða tvær. James
Bond og Clint Eastwood voru í
uppáhaldi þegar bíó var valið.
Þegar skólanámi lauk átti Siggi
góð ár, enda heilsuhraustur.
Vann t.a.m. hjá Ingvari Helga-
syni hf. í nokkur ár. Þá hófst
leigubílatímabilið. Hann byrjaði
hjá Bifreiðastöð Steindórs og
keyrði leigubíl. Þegar Bifreiða-
stöðin hætti stofnaði Sigurður
Greiðabíla hf. ásamt hópi manna.
Honum féll það illa að hann væri
neyddur til að greiða félagsgjöld
til Frama, sem var félag vörubíl-
stjóra. Hann vildi að val væri
frjálst. Lok málsins urðu að hann
fór með málið til Mannréttinda-
dómstóls Evrópu og þar hafði
hann sigur 1993 með góðri hjálp
lögfræðinga.
Hann stofnaði verslunina Smá-
fólk sem lengi var til húsa í Aust-
urstræti. Eins og nafnið bendir til
var lagerinn með ýmislegt fyrir
unga fólkið. Siggi ferðaðist
nokkrum sinnum til Taílands.
Þar kynntist hann stúlku, henni
Leg sem fluttist seinna til Ís-
lands, ásamt dóttur sinni Bo.
Seinna bættist We í hópinn, en
hún er systurdóttir Leg.
Siggi greindist með sykursýki
snemma á ævinni. Smátt og
smátt minnkaði sjónin og nýrun
gáfu eftir. Þetta leiddi til þess að
hann þurfti að nota nýrnavél.
Smám saman fjölgaði ferðum í
nýrnavélina, þar til þrír dagar
vikunnar voru notaðir. Þeir dag-
ar voru Sigga mjög erfiðir. Leitað
var eftir nýrnagjafa og hann var
heppinn þegar slíkur fannst og
nýja nýrað reyndist guðsgjöf í
nokkur ár. Það gaf honum mikið
frelsi. Hann heimsótti okkur til
Húsavíkur í strætó og alltaf var
yndislegt að fá hann í heimsókn.
Leg þurfti að fara til Taílands
og hjálpa ættinni í erfiðleikum og
hefur heimkoman dregist. Bo og
We hjálpuðu Sigga með heimilis-
störfin.
Gjafanýrað varð óstarfhæft og
þurfti Siggi að leita aftur til
nýrnavélarinnar.
Síðustu ár hefur Siggi unnið
hjá Blindrafélaginu og dásamaði
alla starfsmenn þar, bæði yfir-
menn og þá, sem voru með hon-
um á plani, eins og hann orðaði
það.
Siggi var skemmtilegur og
mikill húmoristi, þótt oft væri á
brattann að sækja heilsufarlega.
Vinátta okkar Sigga nær til
æskuára og aldrei komu hnökrar
á þá vináttu og ég tel mig heppinn
að eignast slíkan vin. Ég sendi
fjölskyldu Sigga innilegar sam-
úðarkveðjur.
Guðmundur B. Guðjónsson.
Sigurður Ármann
Sigurjónsson
Það er ekki
langt síðan við Páll
hittumst. Þá leit ég
til hans sl. haust
með handrit og sá
strax að farið var að sverfa að
Páll Magnússon
✝
Páll Magn-
ússon fæddist
26. október 1952.
Hann lést 29. sept-
ember 2021.
Útförin fór fram
6. október 2021.
honum, svo ekki
kom dánarfregnin
alveg á óvart.
En við höfðum
unnið saman í
fjórðung aldar eftir
að Barnageðdeild
var stofnuð 1970 og
nafni minn var þá
nýkominn úr sál-
fræðinámi í Frakk-
landi og ég hafði
þá nýlokið námi í
nýrri sérgrein, barnageðlækn-
ingum, fyrstur Íslendinga. Þá
var það næsta mikilvægt að fá
sem best lið til aðstoðar og var
Páll einn af þeim sem komu sér
best.
Okkur féll samvinnan prýði-
lega og er ekki síst minnisstætt
hversu vel Páli tókst vel með
allt sem fyrir hann var lagt,
ekki síst með þjónustu við ein-
hverfu og ADHD. Stofnaði
hann til samvinnuhópa um
hvort tveggja auk þess sem
hann tók að sér þjónustu við
fjölskyldur á þessum sviðum.
Reyndist hann ávallt einstak-
lega vel við þær fjölskyldur
sem eignuðust börn með slíka
skavanka, bæði með dagmeð-
ferð og fjölskyldumeðferð.
Margs konar vandkvæði þurfti
að leysa, m.a. þegar ákveðið var
með tímanum að flytja þjónustu
við einhverfa frá BUGL til
Greiningarstöðvar ríkisins.
Páll reyndist Greiningarstöð-
inni ekki síst vel við þá breyt-
ingu. Þá hafði Páll stundað fjöl-
breyttar rannsóknir, sem leiddu
m.a. í ljós hversu miklu algeng-
ari einhverfutruflanir voru en
áður hafði verið talið. En hvað
sem Páll tók sér fyrir hendur
reyndist hann geta leyst vand-
kvæði barnanna með ágætum.
Við nafnarnir tókum m.a.
þýðingu úr ensku greiningar-
kvarða Rutters og litum þá um
leið inn hjá fjölskyldu Páls í
Lundúnum, en Magnús, faðir
hans, hafði þá sest þar að.
Ástæða er líka til að minnast
þess, að Páll eignaðist merka
eiginkonu, Margréti Vallý Jó-
hannsdóttur fóstru, sem hafði
unnið merk stjórnunarstörf á
sínu sviði, en hún lést löngu á
undan Páli.
Að lokum langar mig að
votta fjölskyldu Páls innilega
samúð.
Páll Ásgeirsson.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR VALGEIR INGVARSSON
garðyrkjumaður,
Borgarheiði 41, Hveragerði,
lést 2. október á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands. Útförin fer fram frá
Hveragerðiskirkju föstudaginn 8. október klukkan 14.
Lilja Guðmundsdóttir Símon Arnar Pálsson
Guðrún Guðmundsdóttir Össur Emil Friðgeirsson
Björn Guðmundsson Sigríður Magnúsdóttir
afabörn og langafabörn
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Ástkær móðir okkar,
ÓLÖF INGA KLEMENSDÓTTIR,
Naustabryggju 15,
lést föstudaginn 10. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórunn og Hrafnhildur Inga Halldórsdætur
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
okkar ástkæra
GUNNARS RÚNARS KRISTJÁNSSONAR
á Akri.
Jóhanna Erla Pálmadóttir
Guðný Björnsdóttir
Helga Gunnarsdóttir
Pálmi Gunnarsson Þuríður Hermannsdóttir
Ástkær systir okkar, mágkona og frænka,
ÞÓRA GUÐNADÓTTIR,
áður til heimilis í Sólheimum 25,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
þriðjudaginn 5. október.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Gerður Guðnadóttir
Bjarni Guðnason
Jónína M. Guðnadóttir Sveinn Snæland
og frændfólk
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og systir,
HEIÐBJÖRT ERLA ÁRNADÓTTIR,
Þórðarsveig 5, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 29. september.
Hún verður jarðsungin frá Hjallakirkju
í Kópavogi mánudaginn 11. október klukkan 13.
Magnús Magnússon Tuna Hauge
Sigrún Gísladóttir Flosi Jónsson
Jóhannes Helgi Gíslason
barnabörn og systkini