Morgunblaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021
Askalind 3,
201
Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Föst.
10—17
Laugardaga
11—15
HAUSTTILBOÐ
20% afsláttur af öllum
innréttingum út október
Geir Ágústsson, sjálfskipaður
spekingur í samfélags-
fræðum, að eigin sögn, skrifar síð-
ast:
- - -
Loftslags-
umræðan und-
anfarin ár breyttist
á tímabili í veiru-
umræðu en báðar
umræður eru keim-
líkar og ganga nú
yfir á sama tíma. Í
báðum tilvikum er
reynt að hræða almenning alveg
upp úr skónum.
- - -
Til þess finnast óendanlegir fjár-
munir. Hagsmunahópar
spretta upp og sækja um fé í óend-
anlega sjóði.
- - -
Venjulegt samfélag er talað nið-
ur og einhvers konar aðgerðir
sem takmarka, hamla og loka tal-
aðar upp. Gagnrýnisraddir eru að
hluta eða í heild þaggaðar niður
eða jafnvel kallaðar samsæriskenn-
ingar.
- - -
Sífellt er hamrað á því að við
þurfum að treysta vísindunum
og ákveðnir aðilar útnefndir til að
tala í nafni þeirra. Aðrar raddir
eru kallaðar andsnúnar vísindum.
- - -
Sögur herma að í núverandi
stjórnarmyndunarviðræðum
sé einn flokkanna við borðið að
heimta að lýst verði yfir loftslags-
vá og milljarðar settir í baráttu
gegn loftslagsbreytingum.
- - -
Enginn veit samt hverju lofts-
lagsmilljarðarnir í dag eru að
áorka. Sennilega engu.
- - -
Þess vegna þarf að bæta í.“
Geir Ágústsson
Manngerður
fjáraustur
STAKSTEINAR
Nýliðinn septembermánuður var
fremur illviðrasamur og var vindur á
landsvísu 0,4 m/s yfir meðallagi. Þá
var mánuðurinn úrkomusamur víð-
ast hvar og sólarlítill. Þetta kemur
fram í nýbirtu tíðarfarsyfirliti Veð-
urstofunnar.
September var hlýr framan af,
sérstaklega norðan- og norðaustan-
lands. Síðustu tíu dagar mánaðarins
voru aftur á móti kaldir. Meðalhiti í
Reykjavík í september var 8,3 stig
og er það -0,2 stigum undir meðallagi
áranna 1991 til 2020 en -0,1 stigi und-
ir meðallagi síðustu tíu ára. Það snjó-
aði víða í byggð í lok mánaðar og var
jörð alhvít á mörgum stöðum á Vest-
fjörðum og á Norðurlandi.
Úrkoma mældist víðast hvar vel
yfir meðallagi í mánuðinum. Óvenju
þungbúið var suðvestanlands og hafa
ekki mælst eins fáar sólskinsstundir
í Reykjavík í septembermánuði síð-
an árið 1943.
Úrkoma í Reykjavík mældist
124,4 millimetrar sem er um 40%
umfram meðallag áranna 1991 til
1990. Á Akureyri mældist úrkoman
117,2 mm sem er meira en tvöföld
meðalúrkoma áranna 1991 til 1990. Í
Stykkishólmi mældist úrkoman
136,7 mm og 172,5 mm á Höfn í
Hornafirði.
Sólskinsstundir í Reykjavík
mældust 52,7 sem er 65,6 stundum
undir meðallagi áranna 1991 til 2020.
Ekki hafa mælst eins fáar sólskins-
stundir í Reykjavík í septembermán-
uði síðan 1943. Á Akureyri mældust
sólskinsstundirnar 76,7 sem er 13,8
stundum undir meðallagi áranna
1991 til 2020. sisi@mbl.is
Drungi og illviðri í september
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
September Víða snjóaði í byggð.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands,
HSU, hóf nýverið að bjóða upp á
fjaraugnlækningar í Eyjum, í sam-
vinnu við Sjónlag í Reykjavík. Um
tilraunaverkefni er að ræða og hið
fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Í húsakynnum HSU í Eyjum er
búið að koma fyrir nýjum tækja-
búnaði; sjónsviðsmæli, sneiðmynda-
tæki, raufarlampa, augnbotna-
myndavél og augnþrýstimæli.
Verkefnið hlaut nýsköpunar-
styrk stjórnvalda á síðasta ári, en
aðalfjármögnunin kemur frá Lions-
hreyfingunni. Lionsklúbbur Vest-
mannaeyja leiddi söfnunina meðal
einstaklinga, félagasamtaka og fyr-
irtækja í Eyjum, sem eru bak-
hjarlar gjafarinnar. Helmingur
fjármögnunarinnar kemur frá al-
þjóðahjálparsjóði Lions.
„Það er alveg ljóst að þetta stór-
kostlega framtak Lionssamtakanna
hefur gert verkefnið að veruleika
og færi ég þeim mínar bestu þakk-
ir,“ segir Díana Óskarsdóttir, for-
stjóri HSU, á vef heilbrigðisstofn-
unarinnar.
Fjaraugnlækningar
í boði frá Eyjum
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Vestmannaeyjar Frá opnun augnlæknastofu HSU og Sjónlags.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/