Morgunblaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 57
Aukið blóðflæði
betri heilsa
SaraLindstýrirþrýstingsmeðferðadeild
Stoðar. Hún segir að margir
upplifi að þau hafi öðlast nýtt líf
við að nota þrýstingsokka eða annan
þrýstingsfatnað. „Ein kona sagði að hún
hefði líklega verið komin í hjólastól, ef
hún hefði ekki fengið þessa sokka“ segir
Sara, en hún hefur fengið margar ánægju-
legar reynslusögur frá þakklátum
viðskiptavinum. „Margir hafa einnig líst
minni verkjum og segja að geta til hreyfinga
og daglegra starfa hafi stóraukist“, heldur
Sara áfram.
Þrýstingsmeðferðir eru ekki eingöngu fyrir
fólk sem hefur undirliggjandi sjúkdóma
heldur henta einnig fólki sem stendur mikið
við vinnu eða fólk sem er í mikilli kyrrstöðu.
Margir þjást af fótapirring eða fótaóeirð,
eins og það er oft kallað, og geta þrýst-
ingsmeðferðir verið góð leið til að vinna
bug á þeim hvimleiða vanda. Einnig hafa
þrýstingsmeðferðir hjálpað ófrískum konum
sem oft hafa tilhneigingu til að fá bjúg. Ekki
má gleyma íþróttafólkinu og öðrum sem
hreyfa sig eða ferðast mikið, en Stoð bíður
upp á íþrótta- og flugþrýstingssokka sem
geta aukið blóðflæði og flýtt endurheimt
eftir erfiðaræfingar, löng hlaup, golf, göngur
eða flug, segir Sara.
Hjá Stoð fást líka sokkaífærur, þ.e.
hjálpartæki til að komast í sokkana, heldur
Sara áfram. Erfitt getur verið að komast
í þrýstingssokka, enda mikilvægt að
sokkarnir veiti góðan þrýsting. Stoð býður
upp á nokkrar gerðir af sokkaífærum, einnig
fyrir fólk með skerta hreyfifærni og á t.d.
erfitt með að beygja sig niður, til að klæða
sig í sokka.
Hvað er bjúgur?
Margir þekkja það að hafa bjúg, oft í
fótum og ökklum og er þetta hvimleiður
vandi, þar sem þroti eða bólga er í
vefjum líkamans. Bæði tímabundin
heilsufarsvandamál og sjúkdómar geta
haft áhrif á blóðrásar- og sogæðakerfi
líkamans og geta þessi vandamál valdið
bjúg og verkjum í útlimi. Þrýstingsmeðferð
er einföld og gagnleg leið til að meðhöndla
slík einkenni.
Bjúgurinn stafar af vökvasöfnun í vefjum og
margt getur valdið því að vökvi safnist þar
upp. Fyrir utan sjúkdóma getur bjúgur t.d.
verið aukaverkun ákveðinna lyfja, einnig
getur mataræði, hreyfingarleysi, þröngur
fatnaður og fleira haft áhrif á bjúgmyndun
í líkamanum.
Réttar þrýstingsmeðferðir veita aðhald
og minnka samsöfnun blóðs í æðum
og koma þannig í veg fyrir að vökvi
leki úr æðunum og valdi bjúg. Þrýst-
ingsmeðferðir hafa einnig góð áhrif á
sogæðakerfi líkamans, en sogæðakerfið er
hluti af ónæmiskerfi líkamans og má finna
sogæðar um allan líkamann. Í líkamanum
erum við með um 18 lítra af sogæðavökva
og það er í raun ekkert hjarta sem
pumpar þeim vökva, eins og hjartað sem
pumpar blóðinu. Til að koma hreyfingu á
sogæðavökva líkamans skiptir djúpöndun
og hreyfing miklu máli, en einnig geta
þrýstingsmeðferðir haft mjög jákvæð áhrif á
þetta kerfi líkamans.
Hverjir þurfa á þrýstings-
meðferðum að halda?
Fólkmeðæðahnúta, bjúg, sogæðabjúg,
lélegt sogæðakerfi eða bláæðasjúkdóma
og einnig þeir sem hafa fengið
blóðtappa fá mikinn ávinning
á þrýstingsmeðferðum. Slíkar
meðferðir gagnast einnig fólkimeð
taugasjúkdóma á borð við MS,
Parkinson, hreyfihamlaða eða
einstaklinga með hjartabilun,
nýrnasjúkdóma eða þá sem
eru með þrálát fótasár. Fólk
sem er að koma úr aðgerð á
fótum t.d liðskiptaaðgerð
gagnast þessi
meðferð líka. En, eins
og fram hefur komið,
geta flestir haft not á
þrýstingsmeðferðum
í sínu daglega lífi,
hvort sem er vegna
íþróttaiðkunar, fólk í
standandi vinnu, kyrrsetufólk, svo eitthvað
sé nefnt.
Þrýstingsmeðferðir eru þó ekki fyrir alla
Við mælum ekki með að fólk með
undirliggjandi sjúkdóma á borð við
æðakölkun, útæðasjúkdóm eða
slagæðasjúkdóm noti þrýstingssokka eða
aðrar þrýstingsmeðferðir, nema ef læknir
hefur ráðlagt slíka meðferð. Ef grunur leikur
á að ofangreindir sjúkdómar séu að valda
einkennum í útlimum, mælum við með
að fólk ráðfæri sig við lækni áður en slíkar
meðferðir eru valdar.
Niðurgreiðsla frá sjúkratrygg-
ingum
Margir eiga rétt á að fá niðurgreidda
þrýstingsmeðferðir frá Sjúkratryggingum
Íslands (SÍ). Algengast er að fólk sé
með niðurgreiðslu á fjórum pörum af
þrýstingssokkum á ári. Læknar eða
sjúkraþjálfarar þurfa að sækja um
niðurgreiðslu í upphafi, enda þurfa þeir
að ganga úr skugga um að einstaklingar
eigi rétt á niðurgreiðslu, en staðfesta þarf
undirliggjandi orsök einkenna með réttri
sjúkdómsgreiningu. Stoð getur sótt um
framhald á niðurgreiðslu meðferða ef um
slíkt er að ræða.
Það getur tekið allt að fjórar vikur að fá
niðurstöðu umsóknar frá SÍ og mælum
við með að einstaklingar panti tíma hjá
sérfræðingum Stoðar eftir að beiðni
hefur verið samþykkt. Sérfræðingar
Stoðar framkvæma mælingar og gera
athuganir sem á þarf að halda til að kanna
hvort einstaklingur þurfi hefðbundna
þrýstingsmeðferð eða sérhannaða. Mjög
mikilvægt er að þrýstingsfatnaðurinn veiti
réttan þrýsting fyrir meðferðaraðilann.
Ef um sérsaum er að ræða, eru mælingar
sendar til Þýskalands, þar sem fatnaðurinn
er svo framleiddur og tekur það um 2-3
vikur að fá þá pöntun afgreidda frá Stoð.
Hefðbundnar vörur fær fólk með sér heima
sama dag ogmælingar fara fram.
MEDI - hágæða þrýstingssokkar
Sokkarnir frá Stoð koma frá fyrirtækinu
MEDI sem er brautryðjandi í framleiðslu
á sjúkrasokkum og þrýstingsfatnaði. Það
sem einkennir þeirra sokka sérstaklega er
hversu vel þeir lofta. 90% rakans frá húðinni
smýgur út um sokkana og kemur þannig í
veg fyrir svita og kláða. Útlitið á sokkunum
er líka í stöðugri þróun og hefur leitt til þess
að varla er hægt að sjá mun á sjúkrasokkum
og venjulegum sokkum.
Þrýstingssokkarnir frá MEDI eru með
þrepaþrýstingi, þannig að þrýstingurinn er
mestur við ökklann en dregur svo jafnt úr
þrýstingi upp legginn. Þessi eiginleiki tryggir
að vökvinn flæðir alltaf upp á við. Þetta er
mikilvægt atriði, því þrýstingssokkar sem
hafa sama þrýsting við ökkla og t.d kálfa
getur þrýst vökva í báðar áttir; upp til
hjartans, eins og á að gera eða niður í fætur,
sem skal forðast.
Þjónusta Stoðar
Í dag er Stoð með tvær verslanir, eina
í Hafnarfirði og aðra á Bíldshöfða.
Hefðbundnir þrýstingssokkar fást í báðum
verslunum, ásamt íþrótta- og flugsokkum.
Þrautþjálfað starfsfólk starfar í afgreiðslu
Stoðar og getur aðstoðað fólk sem þarf á
hefðbundnum þrýstingssokkum að halda,
eru að leita eftir þrýstingssokkum fyrir
íþróttaiðkun eða fyrir flugið. Ef um sérsaum
er að ræða er best að panta tíma hjá Söru
Lind, en sérsaumur er eingöngu í boði í
Hafnarfirði.
Hægt er að panta tíma í mælingu á heimasíðu Stoðar, senda póst á saras@stod.is eða hringja í síma 565-2885.
Þrýstingsmeðferðir geta verið einstaklega öflugar til að meðhöndla ýmis
einkenni í útlimum, s.s. þreytu, verki, æðahnúta og bjúg, ásamt því að geta
fyrirbyggt sjúkdómsástand eins og segamyndun (blóðtappa), bláæðabólgu o.fl.
Vinsælasta þrýstingsmeðferðin eru þrýstingssokkar, en Stoð hefur
boðið upp á þrýstingsmeðferðir í yfir 30 ár.
„Margir finna fyrir minni verkjum og að geta til hreyfinga hafi stóraukist eftir
meðferð“, segir Sara Lind:
Þrýstingssokkarnir frá MEDI eru með
þrepaþrýstingi, þar sem þrýstingurinn
er mestur við ökkla en dregur svo
jafnt úr þrýstingi upp legginn.
Þrýstingssokkarnir
eru einstaklega
klæðilegir og líkjast
hefðbundnum
nælonsokkum.