Morgunblaðið - 07.10.2021, Síða 57

Morgunblaðið - 07.10.2021, Síða 57
Aukið blóðflæði betri heilsa SaraLindstýrirþrýstingsmeðferðadeild Stoðar. Hún segir að margir upplifi að þau hafi öðlast nýtt líf við að nota þrýstingsokka eða annan þrýstingsfatnað. „Ein kona sagði að hún hefði líklega verið komin í hjólastól, ef hún hefði ekki fengið þessa sokka“ segir Sara, en hún hefur fengið margar ánægju- legar reynslusögur frá þakklátum viðskiptavinum. „Margir hafa einnig líst minni verkjum og segja að geta til hreyfinga og daglegra starfa hafi stóraukist“, heldur Sara áfram. Þrýstingsmeðferðir eru ekki eingöngu fyrir fólk sem hefur undirliggjandi sjúkdóma heldur henta einnig fólki sem stendur mikið við vinnu eða fólk sem er í mikilli kyrrstöðu. Margir þjást af fótapirring eða fótaóeirð, eins og það er oft kallað, og geta þrýst- ingsmeðferðir verið góð leið til að vinna bug á þeim hvimleiða vanda. Einnig hafa þrýstingsmeðferðir hjálpað ófrískum konum sem oft hafa tilhneigingu til að fá bjúg. Ekki má gleyma íþróttafólkinu og öðrum sem hreyfa sig eða ferðast mikið, en Stoð bíður upp á íþrótta- og flugþrýstingssokka sem geta aukið blóðflæði og flýtt endurheimt eftir erfiðaræfingar, löng hlaup, golf, göngur eða flug, segir Sara. Hjá Stoð fást líka sokkaífærur, þ.e. hjálpartæki til að komast í sokkana, heldur Sara áfram. Erfitt getur verið að komast í þrýstingssokka, enda mikilvægt að sokkarnir veiti góðan þrýsting. Stoð býður upp á nokkrar gerðir af sokkaífærum, einnig fyrir fólk með skerta hreyfifærni og á t.d. erfitt með að beygja sig niður, til að klæða sig í sokka. Hvað er bjúgur? Margir þekkja það að hafa bjúg, oft í fótum og ökklum og er þetta hvimleiður vandi, þar sem þroti eða bólga er í vefjum líkamans. Bæði tímabundin heilsufarsvandamál og sjúkdómar geta haft áhrif á blóðrásar- og sogæðakerfi líkamans og geta þessi vandamál valdið bjúg og verkjum í útlimi. Þrýstingsmeðferð er einföld og gagnleg leið til að meðhöndla slík einkenni. Bjúgurinn stafar af vökvasöfnun í vefjum og margt getur valdið því að vökvi safnist þar upp. Fyrir utan sjúkdóma getur bjúgur t.d. verið aukaverkun ákveðinna lyfja, einnig getur mataræði, hreyfingarleysi, þröngur fatnaður og fleira haft áhrif á bjúgmyndun í líkamanum. Réttar þrýstingsmeðferðir veita aðhald og minnka samsöfnun blóðs í æðum og koma þannig í veg fyrir að vökvi leki úr æðunum og valdi bjúg. Þrýst- ingsmeðferðir hafa einnig góð áhrif á sogæðakerfi líkamans, en sogæðakerfið er hluti af ónæmiskerfi líkamans og má finna sogæðar um allan líkamann. Í líkamanum erum við með um 18 lítra af sogæðavökva og það er í raun ekkert hjarta sem pumpar þeim vökva, eins og hjartað sem pumpar blóðinu. Til að koma hreyfingu á sogæðavökva líkamans skiptir djúpöndun og hreyfing miklu máli, en einnig geta þrýstingsmeðferðir haft mjög jákvæð áhrif á þetta kerfi líkamans. Hverjir þurfa á þrýstings- meðferðum að halda? Fólkmeðæðahnúta, bjúg, sogæðabjúg, lélegt sogæðakerfi eða bláæðasjúkdóma og einnig þeir sem hafa fengið blóðtappa fá mikinn ávinning á þrýstingsmeðferðum. Slíkar meðferðir gagnast einnig fólkimeð taugasjúkdóma á borð við MS, Parkinson, hreyfihamlaða eða einstaklinga með hjartabilun, nýrnasjúkdóma eða þá sem eru með þrálát fótasár. Fólk sem er að koma úr aðgerð á fótum t.d liðskiptaaðgerð gagnast þessi meðferð líka. En, eins og fram hefur komið, geta flestir haft not á þrýstingsmeðferðum í sínu daglega lífi, hvort sem er vegna íþróttaiðkunar, fólk í standandi vinnu, kyrrsetufólk, svo eitthvað sé nefnt. Þrýstingsmeðferðir eru þó ekki fyrir alla Við mælum ekki með að fólk með undirliggjandi sjúkdóma á borð við æðakölkun, útæðasjúkdóm eða slagæðasjúkdóm noti þrýstingssokka eða aðrar þrýstingsmeðferðir, nema ef læknir hefur ráðlagt slíka meðferð. Ef grunur leikur á að ofangreindir sjúkdómar séu að valda einkennum í útlimum, mælum við með að fólk ráðfæri sig við lækni áður en slíkar meðferðir eru valdar. Niðurgreiðsla frá sjúkratrygg- ingum Margir eiga rétt á að fá niðurgreidda þrýstingsmeðferðir frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ). Algengast er að fólk sé með niðurgreiðslu á fjórum pörum af þrýstingssokkum á ári. Læknar eða sjúkraþjálfarar þurfa að sækja um niðurgreiðslu í upphafi, enda þurfa þeir að ganga úr skugga um að einstaklingar eigi rétt á niðurgreiðslu, en staðfesta þarf undirliggjandi orsök einkenna með réttri sjúkdómsgreiningu. Stoð getur sótt um framhald á niðurgreiðslu meðferða ef um slíkt er að ræða. Það getur tekið allt að fjórar vikur að fá niðurstöðu umsóknar frá SÍ og mælum við með að einstaklingar panti tíma hjá sérfræðingum Stoðar eftir að beiðni hefur verið samþykkt. Sérfræðingar Stoðar framkvæma mælingar og gera athuganir sem á þarf að halda til að kanna hvort einstaklingur þurfi hefðbundna þrýstingsmeðferð eða sérhannaða. Mjög mikilvægt er að þrýstingsfatnaðurinn veiti réttan þrýsting fyrir meðferðaraðilann. Ef um sérsaum er að ræða, eru mælingar sendar til Þýskalands, þar sem fatnaðurinn er svo framleiddur og tekur það um 2-3 vikur að fá þá pöntun afgreidda frá Stoð. Hefðbundnar vörur fær fólk með sér heima sama dag ogmælingar fara fram. MEDI - hágæða þrýstingssokkar Sokkarnir frá Stoð koma frá fyrirtækinu MEDI sem er brautryðjandi í framleiðslu á sjúkrasokkum og þrýstingsfatnaði. Það sem einkennir þeirra sokka sérstaklega er hversu vel þeir lofta. 90% rakans frá húðinni smýgur út um sokkana og kemur þannig í veg fyrir svita og kláða. Útlitið á sokkunum er líka í stöðugri þróun og hefur leitt til þess að varla er hægt að sjá mun á sjúkrasokkum og venjulegum sokkum. Þrýstingssokkarnir frá MEDI eru með þrepaþrýstingi, þannig að þrýstingurinn er mestur við ökklann en dregur svo jafnt úr þrýstingi upp legginn. Þessi eiginleiki tryggir að vökvinn flæðir alltaf upp á við. Þetta er mikilvægt atriði, því þrýstingssokkar sem hafa sama þrýsting við ökkla og t.d kálfa getur þrýst vökva í báðar áttir; upp til hjartans, eins og á að gera eða niður í fætur, sem skal forðast. Þjónusta Stoðar Í dag er Stoð með tvær verslanir, eina í Hafnarfirði og aðra á Bíldshöfða. Hefðbundnir þrýstingssokkar fást í báðum verslunum, ásamt íþrótta- og flugsokkum. Þrautþjálfað starfsfólk starfar í afgreiðslu Stoðar og getur aðstoðað fólk sem þarf á hefðbundnum þrýstingssokkum að halda, eru að leita eftir þrýstingssokkum fyrir íþróttaiðkun eða fyrir flugið. Ef um sérsaum er að ræða er best að panta tíma hjá Söru Lind, en sérsaumur er eingöngu í boði í Hafnarfirði. Hægt er að panta tíma í mælingu á heimasíðu Stoðar, senda póst á saras@stod.is eða hringja í síma 565-2885. Þrýstingsmeðferðir geta verið einstaklega öflugar til að meðhöndla ýmis einkenni í útlimum, s.s. þreytu, verki, æðahnúta og bjúg, ásamt því að geta fyrirbyggt sjúkdómsástand eins og segamyndun (blóðtappa), bláæðabólgu o.fl. Vinsælasta þrýstingsmeðferðin eru þrýstingssokkar, en Stoð hefur boðið upp á þrýstingsmeðferðir í yfir 30 ár. „Margir finna fyrir minni verkjum og að geta til hreyfinga hafi stóraukist eftir meðferð“, segir Sara Lind: Þrýstingssokkarnir frá MEDI eru með þrepaþrýstingi, þar sem þrýstingurinn er mestur við ökkla en dregur svo jafnt úr þrýstingi upp legginn. Þrýstingssokkarnir eru einstaklega klæðilegir og líkjast hefðbundnum nælonsokkum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.