Morgunblaðið - 07.10.2021, Side 58

Morgunblaðið - 07.10.2021, Side 58
VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Leynilögga, fyrsta kvikmynd Hann- esar Þórs Halldórssonar í fullri lengd, var frumsýnd á kvikmynda- hátíðinni í Locarno í Sviss í ágúst við góðar undirtektir og var Hann- es viðstaddur frumsýningu ásamt leikurum og helstu aðstandendum myndarinnar. Hún er einnig sýnd á kvikmyndahátíð- inni í London sem hófst 5. október og verð- ur frumsýnd hér á landi 20. októ- ber. Hannes er öllu þekktari fyrir af- rek sín á fót- boltavellinum en á hvíta tjaldinu en nú kann að verða breyting þar á. Þótt þetta sé hans fyrsta kvikmynd hefur hann verið viðriðinn kvikmyndalistina allt frá hann var drengur og leikstýrt stuttmyndum, tónlistarmynd- böndum og auglýsingum meðfram boltanum. Hannes gerði sína fyrstu stutt- mynd 12 ára og í menntaskóla fór hann að sinna kvikmyndalistinni af meiri alvöru, að eigin sögn, og gerði stuttmyndir og þætti. „Síðan byrj- aði ég að vinna við þetta strax eftir að ég hætti í Versló, þegar ég var tvítugur, og er búinn að starfa sem kvikmyndagerðarmaður í fimmtán ár en aðallega í auglýsingum og slíku,“ segir Hannes. Byrjaði sem grínstikla Leynilögga er grín-, hasar- og löggumynd (eins og sést glöggt af stiklu hennar) og segir af lögreglu- manni sem á bæði í baráttu við sjálfan sig, persónlegar áskoranir og stórhættulega glæpamenn. Lögguna leikur Auðunn Blöndal og með önnur helstu hlutverk fara Eg- ill Einarsson, Sverrir Þór Sverris- son/ Sveppi, Steinþór Hróar Stein- þórsson/ Steindi jr., Vivian Ólafs- dóttir, Steinunn Ólína Þorsteins- dóttir og Björn Hlynur Haraldsson. Leynilögreglumaðurinn sem Auð- unn leikur er auðvitað þreyttur, pirraður og þunnur og nennir þessu ekki, að sögn Hannesar, og þarf að horfast í augu við eigin fordóma til að verða betri og heilsteyptari mað- ur. Hugmyndin að myndinni kvikn- aði árið 2011. „Við gerðum grín- atriði fyrir sjónvarpsþátt Audda og Sveppa sem var á Stöð 2 á sínum tíma. Þeir fóru í trailer-keppni einn föstudaginn og ég var fenginn til að gera trailer fyrir Audda og Bragi Þór Hinriksson, sem gerði Sveppa- myndirnar, gerði trailer með Sveppa,“ segir Hannes. Þessar stiklur áttu að standa fyrir ímynd- aðar bíómyndir og hét kvikmyndin hans Audda einmitt Leynilögga og sagði af hörðustu leynilöggunni í bransanum og hans innri og ytri baráttu. Björn Hlynur lék illmenni í stiklunni, líkt og í kvikmyndinni, og einnig léku í henni þeir Steindi jr. og Egill. Hannes segir þetta hafa verið metnaðarfullan trailer og bæði Sambíóin og Sena hafi haft sam- band við þá í framhaldinu og spurt hvort þeir hefðu ekki áhuga á að skrifa handrit að kvikmynd út frá honum. Þeir slógu til og skrifuðu fyrsta uppkast að handriti. Sú vinna náði þó ekki lengra af ýmsum ástæðum, að sögn Hannesar. „Ég fór út í atvinnumennsku og hand- ritið var bara ekki komið lengra áleiðis þegar við urðum að setja það á ís. Ég hélt að þetta myndi bara enda þar en við vorum alltaf með þetta bakvið eyrað,“ segir Hannes frá. Hann hafi alltaf langað til að gera myndina en haldið að það væri orðið of seint þegar hann sneri aft- ur heim til Íslands úr atvinnu- mennsku erlendis. „Síðan fórum við að ræða þetta, hvort ennþá væri stemning fyrir þessu, og ákváðum að kýla á þetta.“ Grínmyndafólk sem vill gera hasarmynd Pegasus framleiddi Leynilöggu á endanum og var það Lilja Snorra- dóttir framleiðandi sem hafði sam- band við Hannes og Auðun og fékk þá á fund til sín. Til greina kom að gera sjónvarpsþætti en að lokum var ákveðið að gera kvikmynd og þá öllu vandaðri en þá sem gamla stiklan úr keppni Audda og Sveppa var að kynna. Af stiklu „alvöru“ Leynilöggu að dæma getur myndin varla verið annað en gamanhasar- mynd eða gamanmynd með hasar- ívafi. Hannes staðfestir það, segir Leynilöggu vissulega gamanmynd en þó gerða af grínmyndafólki sem langi að gera hasarmynd. „Öll út- færsla myndarinnar, bæði leikur og kvikmyndagerð, er gerð af alvöru, eins og um raunverulega has- armynd sé að ræða. Grínið felst að miklu leyti í því að staðfæra svona týpíska klisjuhasarmynd í íslenskar aðstæður og fara eins „over the top“ og við getum í það. Það fer ekkert á milli mála að þetta er grín- mynd þegar þú horfir á hana en það haga sér allir eins og þeir séu í alvöruhasarmynd. Pælingin er að þú sökkvir aðeins inn í hana, hún á að vera mjög skemmtileg og fyndin en líka flott og kraftur í henni. Og vonandi hrærir hún stundum líka í einhverjum tilfinningum,“ segir Hannes. Hann segir myndina ekki Naked Gun eða Police Academy heldur meira í anda Hot Fuzz. Leikarar myndarinnar eru lærðir og ólærðir í bland og einnig koma við sögu þjóðþekktir einstaklingar á borð við Bríeti, Jón Jónsson og Rúrik Gíslason, fyrrverandi sam- herja Hannesar í landsliðinu í fót- bolta. „Fólk sem maður hefur ekk- ert endilega séð á hvíta tjaldinu,“ segir Hannes um þessa aukaleikara og að vel hafi gengið að leikstýra ólærðum jafnt sem lærðum leik- urum. Auddi, Sveppi og Steindi búa enda að mikilli reynslu af að leika í gamanþáttum og kvikmyndum og Sveppi hafi auk þess reynslu úr leikhúsi. Hannes segir þá félaga orðna mjög sjóaða leikara og að engin vandamál hafi því komið upp í leikstjórninni. Óvenjulegt val Þegar fréttir bárust í sumar af því að Leynilögga hefði verið valin í aðalkeppni alþjóðlegu kvikmynda- hátíðarinnar í Locarno, sem þykir bæði virðuleg og listræn hátíð, hélt blaðamaður fyrst að um grín væri að ræða. En svo var ekki og hlaut myndin bæði mikla athygli þar ytra og prýðilegar viðtökur. Hannes og fylgdarlið hans var myndað í bak og fyrir og mætti leikstjórinn í fjölda viðtala. Hannes er spurður hvort ekki sé óvenjulegt að kvikmynd á borð við Leynilöggu sé valin á virðulega hátíð á borð við þá í Locarno og segir hann svo vera. „Það er óvenjulegt og vakti mikla athygli í ár. Listrænn stjórnandi hátíðar- innar er eitthvað aðeins að skipta um gír, aðeins að gera hana að ein- hverju leyti meira „mainstream“ eða „entertaining“ og hann tekur myndina alltaf sem dæmi þegar hann er að tala um að hann sé að- eins að reyna að létta hátíðina. Að velja mynd eins og Cop Secret, eins og hún heitir á ensku,“ segir Hann- es. Hann segir það sannarlega hafa komið sér á óvart að Leynilögga hefði verið valin á Locarno og hvað þá í aðalkeppnina. „Við fengum frá- bærar viðtökur úti en við höfðum engar væntingar um að fara með myndina út fyrir landsteinana, við ætluðum bara að gera skemmtilega mynd fyrir íslenska markaðinn,“ segir Hannes kíminn. Hann segir stóran hóp hafa farið út til Locarno og að öllum hafi þótt ferðin stórskemmtileg. „Það var mikið hlegið og mikið stuð. Ég held að við höfum vakið smá athygli, fólk sá að við vorum þakklát fyrir að vera þarna og þessi gleði skilaði sér í gegn. Dagurinn þegar við frum- sýndum myndina var mjög þétt bókaður hjá mér, fyrst blaðamanna- fundur og svo hvert viðtalið af öðru. Það vekur náttúrlega athygli líka að ég sé landsliðsmaður í fótbolta og fólki finnst það áhugavert þann- ig að það var mikið rætt við mig þarna. Síðan fóru dómarnir að ber- ast eftir frumsýninguna og þeir voru meira eða minna allir jákvæð- ir,“ segir Hannes og skal tekið fram að viðtalið fór fram áður en Hannes hætti að leika með landsliðinu. Skemmtilegt form Hannes segir mikið hafa verið lagt í handritsskrif myndarinnar, áhersla lögð á að kjöt væri á bein- unum og handritið virðist hafa virk- að, sé litið til jákvæðra viðbragða í Locarno. „Við höfum gert eitthvað þarna sem virkar,“ segir Hannes og að hann hafi skynjað að fólk hafði gaman af myndinni. „Þetta er skemmtilegt form, það hafa allir gaman af góðri og gamaldags næn- tís-aksjónmynd, þetta er náttúrlega sú formúla og það er erfitt að finn- ast svoleiðis myndir leiðinlegar.“ „Höfum gert eitthvað þarna sem virkar“ Hasar Auðunn Blöndal í hlutverki löggunnar sem myndin er kennd við. Gleði Leikstjórinn með aðalleikurum og framleiðendum Leynilöggu á hátíðinni í Locarno í ágúst. - Leynilögga verður frumsýnd hér á landi 20. október - Hlaut góðar viðtökur á kvikmyndahátíð- inni í Locarno - Hasar-, grín- og löggumynd í anda þeirra sem gerðar voru á tíunda áratugnum Hannes Þór Halldórsson 58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021 www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Heildarlausnir í umbúðum Pakkaskraut Pappír Skreytingarefni Pokar Borðar Teyjur Bönd Kort Sellófan Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.