Morgunblaðið - 07.10.2021, Side 51
DÆGRADVÖL 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021
SÍÐASTA HUGSUNIN ÁÐUR EN ALLT FER
Í VASKINN.
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... límið sem heldur
okkur saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VIÐ ERUM MEÐ TVÆR
GERÐIR…
SÚKKULAÐI OG
VANILLU?
FROSINNOG
BRÁÐNAÐAN
ÉG VIL EINN
BRÁÐNAÐAN
OG RÖR
ÉGÆTLA AÐ
PILLA MÉR!
NEI! EKKI
FARA
STRAX!
OOOO, MYNDIR ÞÚ SAKNA
MÍN? ÉG ER SNORTINN!
ÉG VAR AÐ VONA AÐ ÞÚ
MYNDIR SPLÆSA NÆSTA
UMGANGI!
ÉG ER
LUKKULEGASTI
MAÐUR HEIMS!
Sundtenginguna á hann ekki langt
að sækja en afi hans, Hans Júlíus
Þórðarson (Júlli á Grund), var einn
af stofnendum Bjarnalaugar á Akra-
nesi og stundaði hann reglulega
sund og köld böð alla sína ævi. „Mér
finnst magnað að vera í sjónum, það
lagar svefninn og geðheilsuna.“
Fjölskylda
Jónas er kvæntur Guðfinnu
Helgadóttur, f. 26.1. 1976, sérfræð-
ingi í stefnumótun og þróun hjá
Arion banka. Þau eru búsett í Lang-
holtshverfinu í Reykjavík. For-
eldrar Guðfinnu eru Ólafía Ingólfs-
dóttir, f. 30.5. 1952, fyrrverandi
rekstrarstjóri, búsett á Selfossi, og
Helgi Stefánsson, f. 26.4. 1945,
bóndi, búsettur í Vorsabæ í Flóa-
hreppi.
Dóttir Jónasar og Þórdísar Ingi-
bjartsdóttur, f. 30.5. 1971, er 1) Vera
Kristín, f. 6.1. 1994, ljósmyndari og
starfsmaður á Dvalarheimilinu
Höfða, búsett á Akranesi. Unnusti
hennar er Daníel Arnarsson tré-
smiður, f. 17.4. 1990. Börn þeirra
eru Móey Embla, f. 2017 og Arnþór
Atlas, f. 2020. Fyrir á Daníel dótt-
urina Matthildi Ástu, f. 2010. Synir
Jónasar og Guðfinnu eru 2) Jason
Hagalín, f. 1.9. 2004, nemi við Versl-
unarskóla Íslands og 3) Óliver Rafn,
f. 30.5. 2009, nemi við Langholts-
skóla.
Systkini Jónasar eru 1) Ásdís
Emilía, f. 10.8. 1960, sjúkraliði, bú-
sett í Vestmannaeyjum; 2) Lára
Hagalín, f. 9.4. 1963, leikskólakenn-
ari, búsett á Akranesi; 3) Júlíus, f.
29.9. 1968, rafvirki, búsettur á Sel-
fossi.
Foreldrar Jónasar eru hjónin
Björgvin Hagalínsson, f. 11.1. 1938,
fyrrv. vélvirki, og Guðrún Edda
Júlíusdóttir, f. 3.8. 1938, húsfreyja.
Þau eru búsett á Akranesi.
Jónas
Björgvinsson
Guðrún Helga Kristjánsdóttir
húsfreyja í Efra Mið-Hvammi í Dýrafirði
Lárus Ágúst Einarsson
bóndi og rennismiður
í Efra Mið-Hvammi í Dýrafirði
Guðmunda Lárusdóttir
húsfreyja í Bræðratungu
Hans Hagalín Ásbjörnsson
bóndi í Bræðratungu í Dýrafirði
Björgvin Hólm Hagalínsson
vélvirki á Akranesi
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfreyja á Grundarhóli
Ásbjörn Björnsson
bóndi á Grundarhóli í Dýrafirði
Þóra Þorvaldsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Ásmundur Júlíus Magnússon
kennari og sjómaður á Akranesi
Ásdís Ásmundsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Hans Júlíus Þórðarson
útvegsmaður á Akranesi
Emilía Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Þórður Ásmundsson
verslunar- og útgerðarmaður á Akranesi
Ætt Jónasar Björgvinssonar
Guðrún Edda Júlíusdóttir
húsmóðir á Akranesi
Ingimar Halldórsson sendi mér
póst sem mér er ljúft að birta
því að hafa skal það sem sannara
reynist:
„Í Vísnahorni 5. okt. birtast tvær
vísur sem ég vil fjalla um.
Bók frá 1982, „Detta úr lofti
dropar stórir“, en þar birtist kveð-
skapur Ísleifs Gíslasonar á Sauðár-
króki.
Þar er eftirfarandi vísa:
Landshornaerindi
Detta úr lofti dropar stórir,
dignar um í sveitinni.
2x2 eru fjórir
taktu í horn á geitinni.
Í stað dimmt er yfir sveitinni
kemur dignar um í sveitinni.
Vísan: Rigningin til foldar fellur
er kunn í þeirri útgáfu sem birt er í
Vísnahorni.
Lítið ljóðakver, „Um dægur
löng“, kom út árið 1954 og er eftir
Einar Beinteinsson frá Grafardal.
Þar er vísa sem er nokkuð á ann-
an veg en sú sem birtist í vísnaþætt-
inum.
Ef til vill er þetta frumgerð vís-
unnar.
Rigningin í flygsum fellur
fyrir utan gluggann minn,
það er eins og margar mellur
mígi í sama hlandkoppinn.“
Á Boðnarmiði yrkir Broddi B.
Bjarnason „Haust“:
Það er einhver ógnarkraftur,
eða guðleg smíð.
Að haustið kemur alltaf aftur,
eftir sumartíð.
Guðmundur Arnfinnsson segir
„náttúruhamfarir og
vetur á næsta leiti“:
Á Tröllaskaga skriður falla,
skelfur jörð á Reykjanesi,
kraumar brim við klettastalla,
kólnar nef á mínu fési.
Jón Ingvar Jónsson svaraði:
Lítt ég sef með leiðan þef,
ligg með kvef og pínu,
sægrænt slef á höku hef
og hor í nefi mínu.
Þá eru þrjár öfugmælavísur:
Selshár leit ég sauðum á,
silfur í mýrarbleytum,
brýni í penna brúka má,
best er ull á geitum.
Séð hef ég hrafninn synda um haf,
sagt er hann þjóðir prísi;
best er að þvo úr bleki traf
og bera í hákarlslýsi.
Blýið er í borinn hent,
brennisteinn til veiða,
trú ég oft sé tunglið brennt,
tjörunni maðkar eyða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Rétt skal vera rétt
SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS
VW GOLF
VARIANT
HIGHLINE
Raðnúmer 397049
Nýskráður 3/2015
Akstur 26 þ.km.
Bensín
Sjálfskipting
5 dyra
Næsta skoðun 2021
5 manna
Hvítur
Framhjóladrif
4 strokkar
1.395 cc.
123 hö.
1.370 kg.
118 gr/km
17” felgur
4 sumardekk
4 nagladekk
Verð 2.390.000 kr.