Morgunblaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. A 595 1000 n fy rir vaTenerife At h. st án 28. október, aðra leið Flugsæti til 19.950 Flug aðra leið frá Flugsæti Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur S. Blöndal Oddur Þórðarson Dyr inn í talningarsal á Hótel Borgarnesi voru ólæstar á meðan kjörgögn úr Norðvesturkjördæmi lágu þar inni óinnsigluð eftir að talningu lauk í kjölfar þingkosning- anna í síðasta mánuði. Myndavélar vöktuðu innganga salsins og vitað er hverjir fóru inn í salinn. Sömu- leiðis er vitað að starfsmaður hót- elsins og dóttir eiganda þess tók myndir af óinnsigluðum kjörgögn- um og setti á samfélagsmiðla. Ingi Tryggvason, formaður yf- irkjörstjórnar Norðvesturkjör- dæmis, hefur áður sagt í fjölmiðl- um að salurinn hafi verið læstur. Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur lokið rannsókn sinni á málinu og boðið yfirkjörstjórn í Norðvest- urkjördæmi að greiða sektir vegna ógætilegrar meðferðar kjörseðla. Heimildir Morgunblaðsins herma að allir stjórnarmenn hafi fengið sektargerð upp á 150 þús- und krónur, að Inga undanskilnum sem var boðið að greiða sekt upp á 250 þúsund krónur. Fallist stjórnarmenn ekki á að greiða sektina færi málið að öllum líkindum fyrir ákærusvið og málið gæti því endað fyrir dómstólum. Ekki hægt að líta fram hjá refsiverðu broti Karl Gauti Hjaltason, fyrrver- andi þingmaður Miðflokksins, sem kærði framkvæmd alþingiskosn- inga í Norðvesturkjördæmi til lög- reglu, segir sektargerð lögreglu á hendur yfirkjörstjórn kjördæmis- ins marka vatnaskil í málinu. Hann telur ekki lengur hægt að byggja á gögnum úr kjördæminu. „Það er ekki nokkur leið að byggja á gögnum sem hafa verið unnin með ólögmætum hætti. Það er ekki hægt að líta fram hjá því þegar um refsivert brot er að ræða í umgengni um kjörgögn eins og þarna er staðfest. Það er ekki nokkur leið að ætla sér að fara að byggja á því, það get ég ekki ímyndað mér að nokkrum detti í hug.“ Karl segir niðurstöðu lögreglu benda til þess að seinni talningin sé marklaus: „Menn geta ekki stuðst við tölur sem komnar eru til út frá lögbroti.“ Kveðst hann ánægður með störf kjörbréfanefndarinnar hingað til og sýnist hún vanda til verka. Hann kallar samt sem áður eftir meira gagnsæi og að nefndin op- inberi þau gögn sem hún hafi til rannsóknar. Gögn frá lögreglunni hjálpleg Í samtali við Morgunblaðið segir Birgir Ármannsson, formaður kjörbréfanefndar Alþingis, nefnd- ina hafa kallað eftir viðbótarupp- lýsingum frá lögreglunni á Norður- landi vestra. Hann segir fregnir dagsins ekki hafa bein áhrif á rannsókn kjör- bréfanefndar: „Gögn frá lögreglunni eru mjög hjálpleg en við erum auðvitað að afla okkur annarra gagna líka, auk skriflegra gagna sem varða störf yfirkjörstjórnar, talningu og þess háttar.“ Talningarsalurinn var ólæstur - Yfirkjörstjórn boðið að greiða 150-250 þúsund króna sektir - Karl Gauti segir niðurstöðu lögreglu benda til þess að seinni talningin sé marklaus - Hafi ekki bein áhrif á rannsókn kjörbréfanefndar Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Fundur Undirbúningsnefnd kjör- bréfa fór yfir málin í Borgarnesi. Þingvallabærinn, aðsetur þing- vallanefndar, þjóðgarðsvarðar og prests, og sumardvalarstaður for- sætisráðherra, verður ónothæfur næstu vikur og jafnvel mánuði, þar sem umfangsmiklar viðgerðir á þakklæðningu bæjarins standa nú yfir. Vonir standa til að verkinu verði lokið fyrir áramót. Verið er að endurnýja þakklæðn- ingu hússins enda kominn tími til, að sögn Páls Þórhallssonar skrif- stofustjóra skrifstofu löggjafar- mála hjá forsætisráðuneytinu. Ný- lega var sett klæðning utan um húsið. „Bærinn var klæddur svona til þess að verjast veðrinu,“ segir Páll. Sveinn Bragason, verkefnastjóri fjármálasviðs forsætisráðuneyt- isins, segir að verkið sé unnið í góðu samstarfi við Minjastofnun enda var bærinn friðlýstur 10. nóv- ember 2014 af forsætisráðherra Ís- lands, að fenginni tillögu Minja- stofnunar Íslands. Bærinn var byggður sem prests- seturshús á árunum 1929-30 eftir uppdráttum Guðjóns Samúels- sonar, húsameistara ríkisins. Þingvalla- bærinn lagfærður Morgunblaðið/Guðni Einarsson Icelandair Group skilaði hagnaði í fyrsta sinn síðan árið 2019 á þriðja fjórðungi þessa árs. Tap félagsins nam 6,9 milljörðum á öðrum fjórð- ungi ársins og fjórum milljörðum á þeim fyrsta. Félagið hefur ekki skilað hagnaði síðan á þriðja ársfjórðungi 2019 þeg- ar hagnaðurinn nam 7,5 milljörðum króna en þá tapaði félagið fjórum milljörðum í næsta ársfjórðungi. Flugframboð Icelandair á þriðja fjórðungi þessa árs var einungis 50% af því sem það var á sama tíma árið 2019. Í næsta ársfjórðungi mun fram- boðið aukast og nema um 65% af framboði ársins 2019. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að mikill uppgangur hafi orðið í fraktflutningum sem hafi skilað Ice- landair Cargo hærri tekjum og að flutningsmagnið hafi verið meira en fyrir heimsfaraldur Covid-19. Frakt- flutningar á milli Evrópu og Banda- ríkjanna hafi þar leikið stórt hlutverk og numið um 10% af heildarflutn- ingum samanborið við 3% í fyrra. Verði í samræmi við önnur lönd Í tilkynningunni ítrekar forstjórinn Bogi Nils Bogason mikilvægi þess fyrir innlenda ferðaþjónustu að Ís- land tryggi samkeppnishæfi sitt sem ferðamannaland: „Lykilþáttur í því er að íslensk stjórnvöld tryggi að þær ferðatakmarkanir sem eru í gildi á landamærum hér á landi séu einfald- ar, ferlið sé skilvirkt og í samræmi við þær reglur sem gilda í löndunum í kringum okkur.“ Það hafi verið mikið afrek að við- halda 86% stundvísi þrátt fyrir flókn- ar ferðatakmarkanir: „Ástæða þessa árangurs er fyrst og fremst sá sveigj- anleiki sem félagið býr yfir – bæði leiðakerfisins og ekki síður starfs- fólks okkar sem ég vil þakka fyrir frá- bæra frammistöðu, úthald og útsjón- arsemi.“ Besti ársfjórðungur Ice- landair Group síðan 2019 - Félagið kallar eftir einföldu regluverki á landamærum Uppgjörið í tölum » Lausafjárstaða félagsins í lok ársfjórðungs nam 57 millj- örðum króna og styrktist. » Handbært fé frá rekstri nam 3,2 milljörðum króna. » Sætanýting var 68,2%. » Farþegar í innanlandsflugi voru 67 þúsund talsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.