Morgunblaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Unnið er að breytingum og lagfær- ingum á einu sögufrægasta húsi Reykjavíkur, Bryggjuhúsinu Vest- urgötu 2. Margvísleg starfsemi hef- ur verið í þessu húsi í gegnum árin og enn fær það nýtt hlutverk, verður mathöll í miðbænum. Það ber helst til tíðinda við breyt- ingarnar núna að bólverkið, þ.e. gamli hafnarkanturinn norðan við húsið, verður gert sýnilegra en áður. Í dag er lítill hluti bólverksins sýni- legur, þ.e. sá vestasti. Bólverkið er hlaðinn grjótgarður sem reistur var um 1890 og liggur frá vestri til aust- urs eftir endilöngum reitnum, norð- an við Bryggjuhúsið og Brydepakk- húsið. Bólverkið er elsta hafnar- mannvirki í Reykjavík. Þetta er stórmerkilegt mannvirki, enda frið- að. Verður fengur að því að það verði sýnilegra en verið hefur. Nýtt deiliskipulag samþykkt Á fundum skipulagsfulltrúa Reykjavíkur í haust hefur verið fjallað um umsókn Davíðs Kristjáns Chatham Pitt, f.h. Tvíeykis ehf., um breytingu á deiliskipulagi Gróf- arinnar vegna lóðarinnar nr. 2 við Vesturgötu. Í breytingunni felst að gera svalir á bakhlið (norðurhlið) húss í porti ásamt flóttastiga, stækka geymslur undir hluta af svöl- um og gera bólverk (gamlan hafnar- kant) sýnilegt að hluta, samkvæmt uppdráttum Davíðs Kr. Pitt arki- tekts, dags. 25. júlí 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. sept- ember 2021 til og með 14. október 2021. Engar athugasemdir bárust. Breytt deiliskipulag var samþykkt á fundi skipulagsfulltrúa 18. október síðastliðinn. Húsið Vesturgata 2 er að sjálf- sögðu friðað vegna aldurs. Í því felst að óheimilt er að raska húsinu, spilla því eða breyta, rífa eða flytja úr stað, nema með leyfi Minjastofnunar. Leitað var til Minjastofnunar vegna breytinganna nú og tók hún jákvætt í þær. Segir í umsögn stofnunar- innar að litið sé til þess að húsið sé mikið breytt frá upphaflegri gerð og önnur hæð þess sé síðari tíma við- bót. Breytingin nú sé afturkræf og snerti aðeins bakhlið hússins. Hún raski ekki formi hússins eða ásýnd þess frá Aðalstræti. Gæta verði þess sérstaklega að ekki verði rask á ból- verkinu og öðrum jarðföstum minj- um í tengslum við framkvæmdir á baklóðinni. Bryggjuhúsið var reist árið 1863. Upphaflegi hluti hússins stendur enn en það hefur verið stækkað í gegnum tíðina, húsið hækkað og byggt við það. Í hinni gagnmerku ritröð Páls Líndal, Reykjavík, sögustaður við sund, kemur fram að það var C.P.A. Koch sem lét byggja húsið við norð- urenda Aðalstrætis. Hann var einn af eigendum Sameinaða gufuskipa- félagsins, sem gerði út skip í Íslandssiglingum. Af hálfu bæjaryfirvalda var kvöð um opinn gang í gegnum húsið svo að aðgangur að bryggjunni norðan þess væri öllum opinn. Húsið var því eins konar borgarhlið og fóru margir sem komu með skipum til bæjarins í gegnum ganginn. Þessum gangi var lokað árið 1929. Fram hafa komið hugmyndir um að opna ganginn að nýju en af því hefur ekki orðið. Vegna staðsetningarinnar var húsið eins konar samkomustaður sjó- manna í höfuðstaðnum. Upphaflega var húsið einlyft með portbyggðu risi. Yfir ganginum var stór kvistur, sem sneri að Aðal- stræti. Næstu áratugina skipti Vest- urgata 2 um eigendur og var húsið við þá kennt og sömuleiðis bryggjan norðan við húsið. Árið 1904 eignaðist Duus-verslun húsið og lét árið 1907 byggja einlyft og áfast pakkhús við það. Nathan & Olsen eignaðist Bryggjuhúsið 1927 og lét hækka það og gera tvíloftað. Enn síðar var pakkhúsið einnig gert tvílofta og urðu þá þessi tvö hús ein heild. Ýms- ar breytingar og endurbætur hafa verið gerðar síðan þá. Verslunarrekstur lengi Margvíslegur verslunarrekstur var um langa hríð í Bryggjuhúsinu. Þar var Áfengisverslun ríksins starfandi og síðar vefnðarvöruversl- un. Síðustu áratugina hefur verið rekin veitingastarfsemi í húsinu. Lengi var þar Kaffi Reykjavík en síðan 2007 Restaurant Reykjavík. Bryggjuhúsið er einnig merkilegt fyrir þær sakir að það er núll- punktur Reykjavíkur. Tölusetning húsa tekur mið af Aðalstræti, elstu götu borgarinnar. Húsin eru talin frá Bryggjuhúsinu, jafnar tölur á hægri hönd og oddatölur á vinstri hönd. Það sama á við um Vesturgöt- una. Skjöldur um þessa mikilvægu ákvörðun bæjarstjórnarinnar er greyptur í gangstéttina fyrir framan Bryggjuhúsið. Morgunblaðið/sisi Bólverkið Það litla sem nú sést af gamla hafnarkantinum er vestasti hlutinn. Meira verður sýnilegt síðar meir af þessum merka garði, sem er elsta hafnarmannvirki Reykvíkinga. Morgunblaðið/sisi Bryggjuhúsið Nú er unnið að viðgerðum og endurbótum á þessu sögufræga húsi í hjarta borgar- innar. Þar er verið að innrétta mathöll. Þar sem stóri glugginn er var áður gangur í gegnum húsið. Gamla bólverkið verður sýnilegra - Unnið að breytingum og lagfæringum á Bryggjuhúsinu - Grafið frá hafnarkanti norðan við húsið Ljósmynd/Magnús Ólafsson Gamli tíminn Þessi mynd er tekin á árunum upp úr 1903 og sýnir bryggjurnar neðan við Grófina og Hafnarstræti. Bryggjuhúsið er lengst til hægri á myndinni og bólverkið framan við það sést vel. Duus-bryggjan gengur í sjó fram. VW - MULTIVAN TDI – RN. 191956. Nýskráður 9/2017, ekinn 81 þ.km., dísel, ljósgrár, sjálfskiptur, spólvörn, stöðugleikakerfi, bakkmyndavél, bluetooth, fjarlægðarskynjarar, Verð 4.890.000 kr. ÞÚ FINNUR DRAUMABÍLINN Í BÍLAHÖLLINNISími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is TOYOTA - RAV4 VX HYBRID RN. 331553 Nýskráður 9/2019, ekinn 26 þ.km., bensíns/ rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, hiti í framrúðu, skyn- væddur hraðastillir, bakkmyndavél, bluetooth. Verð 6.990.000 kr. NISSAN - QASHQAI ACENTA 2WD – RN. 191867 Nýskráður 2/2016, ekinn 76 þ.km., dísel, stein- grár, sjálfskiptur, dráttarkrókur, bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar, bluetooth. Verð 2.950.000 kr. MERCEDES-BENZ - SPRINTER – RN. 331538. Nýskráður 6/2015, ekinn 119 þ.km., dísel, hvítur, beinskiptur, túrbína, forhitun á miðstöð, bakk- myndavél, stöðugleikakerfi, fjarlægðarskynjarar. Verð 6.990.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.