Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Unnið er að breytingum og lagfær-
ingum á einu sögufrægasta húsi
Reykjavíkur, Bryggjuhúsinu Vest-
urgötu 2. Margvísleg starfsemi hef-
ur verið í þessu húsi í gegnum árin
og enn fær það nýtt hlutverk, verður
mathöll í miðbænum.
Það ber helst til tíðinda við breyt-
ingarnar núna að bólverkið, þ.e.
gamli hafnarkanturinn norðan við
húsið, verður gert sýnilegra en áður.
Í dag er lítill hluti bólverksins sýni-
legur, þ.e. sá vestasti. Bólverkið er
hlaðinn grjótgarður sem reistur var
um 1890 og liggur frá vestri til aust-
urs eftir endilöngum reitnum, norð-
an við Bryggjuhúsið og Brydepakk-
húsið. Bólverkið er elsta hafnar-
mannvirki í Reykjavík. Þetta er
stórmerkilegt mannvirki, enda frið-
að. Verður fengur að því að það verði
sýnilegra en verið hefur.
Nýtt deiliskipulag samþykkt
Á fundum skipulagsfulltrúa
Reykjavíkur í haust hefur verið
fjallað um umsókn Davíðs Kristjáns
Chatham Pitt, f.h. Tvíeykis ehf., um
breytingu á deiliskipulagi Gróf-
arinnar vegna lóðarinnar nr. 2 við
Vesturgötu. Í breytingunni felst að
gera svalir á bakhlið (norðurhlið)
húss í porti ásamt flóttastiga,
stækka geymslur undir hluta af svöl-
um og gera bólverk (gamlan hafnar-
kant) sýnilegt að hluta, samkvæmt
uppdráttum Davíðs Kr. Pitt arki-
tekts, dags. 25. júlí 2021. Tillagan
var grenndarkynnt frá 16. sept-
ember 2021 til og með 14. október
2021. Engar athugasemdir bárust.
Breytt deiliskipulag var samþykkt á
fundi skipulagsfulltrúa 18. október
síðastliðinn.
Húsið Vesturgata 2 er að sjálf-
sögðu friðað vegna aldurs. Í því felst
að óheimilt er að raska húsinu, spilla
því eða breyta, rífa eða flytja úr stað,
nema með leyfi Minjastofnunar.
Leitað var til Minjastofnunar vegna
breytinganna nú og tók hún jákvætt
í þær. Segir í umsögn stofnunar-
innar að litið sé til þess að húsið sé
mikið breytt frá upphaflegri gerð og
önnur hæð þess sé síðari tíma við-
bót. Breytingin nú sé afturkræf og
snerti aðeins bakhlið hússins. Hún
raski ekki formi hússins eða ásýnd
þess frá Aðalstræti. Gæta verði þess
sérstaklega að ekki verði rask á ból-
verkinu og öðrum jarðföstum minj-
um í tengslum við framkvæmdir á
baklóðinni.
Bryggjuhúsið var reist árið 1863.
Upphaflegi hluti hússins stendur
enn en það hefur verið stækkað í
gegnum tíðina, húsið hækkað og
byggt við það.
Í hinni gagnmerku ritröð Páls
Líndal, Reykjavík, sögustaður við
sund, kemur fram að það var C.P.A.
Koch sem lét byggja húsið við norð-
urenda Aðalstrætis. Hann var einn
af eigendum Sameinaða gufuskipa-
félagsins, sem gerði út skip í
Íslandssiglingum.
Af hálfu bæjaryfirvalda var kvöð
um opinn gang í gegnum húsið svo
að aðgangur að bryggjunni norðan
þess væri öllum opinn. Húsið var því
eins konar borgarhlið og fóru margir
sem komu með skipum til bæjarins í
gegnum ganginn. Þessum gangi var
lokað árið 1929. Fram hafa komið
hugmyndir um að opna ganginn að
nýju en af því hefur ekki orðið.
Vegna staðsetningarinnar var húsið
eins konar samkomustaður sjó-
manna í höfuðstaðnum.
Upphaflega var húsið einlyft með
portbyggðu risi. Yfir ganginum var
stór kvistur, sem sneri að Aðal-
stræti. Næstu áratugina skipti Vest-
urgata 2 um eigendur og var húsið
við þá kennt og sömuleiðis bryggjan
norðan við húsið. Árið 1904 eignaðist
Duus-verslun húsið og lét árið 1907
byggja einlyft og áfast pakkhús við
það. Nathan & Olsen eignaðist
Bryggjuhúsið 1927 og lét hækka það
og gera tvíloftað. Enn síðar var
pakkhúsið einnig gert tvílofta og
urðu þá þessi tvö hús ein heild. Ýms-
ar breytingar og endurbætur hafa
verið gerðar síðan þá.
Verslunarrekstur lengi
Margvíslegur verslunarrekstur
var um langa hríð í Bryggjuhúsinu.
Þar var Áfengisverslun ríksins
starfandi og síðar vefnðarvöruversl-
un. Síðustu áratugina hefur verið
rekin veitingastarfsemi í húsinu.
Lengi var þar Kaffi Reykjavík en
síðan 2007 Restaurant Reykjavík.
Bryggjuhúsið er einnig merkilegt
fyrir þær sakir að það er núll-
punktur Reykjavíkur. Tölusetning
húsa tekur mið af Aðalstræti, elstu
götu borgarinnar. Húsin eru talin
frá Bryggjuhúsinu, jafnar tölur á
hægri hönd og oddatölur á vinstri
hönd. Það sama á við um Vesturgöt-
una. Skjöldur um þessa mikilvægu
ákvörðun bæjarstjórnarinnar er
greyptur í gangstéttina fyrir framan
Bryggjuhúsið.
Morgunblaðið/sisi
Bólverkið Það litla sem nú sést af gamla hafnarkantinum er vestasti hlutinn. Meira verður
sýnilegt síðar meir af þessum merka garði, sem er elsta hafnarmannvirki Reykvíkinga.
Morgunblaðið/sisi
Bryggjuhúsið Nú er unnið að viðgerðum og endurbótum á þessu sögufræga húsi í hjarta borgar-
innar. Þar er verið að innrétta mathöll. Þar sem stóri glugginn er var áður gangur í gegnum húsið.
Gamla bólverkið verður sýnilegra
- Unnið að breytingum og lagfæringum á Bryggjuhúsinu - Grafið frá hafnarkanti norðan við húsið
Ljósmynd/Magnús Ólafsson
Gamli tíminn Þessi mynd er tekin á árunum upp úr 1903 og sýnir bryggjurnar neðan við Grófina og Hafnarstræti.
Bryggjuhúsið er lengst til hægri á myndinni og bólverkið framan við það sést vel. Duus-bryggjan gengur í sjó fram.
VW - MULTIVAN TDI – RN. 191956.
Nýskráður 9/2017, ekinn 81 þ.km., dísel,
ljósgrár, sjálfskiptur, spólvörn, stöðugleikakerfi,
bakkmyndavél, bluetooth, fjarlægðarskynjarar,
Verð 4.890.000 kr.
ÞÚ FINNUR DRAUMABÍLINN
Í BÍLAHÖLLINNISími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
TOYOTA - RAV4 VX HYBRID RN. 331553
Nýskráður 9/2019, ekinn 26 þ.km., bensíns/
rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, hiti í framrúðu, skyn-
væddur hraðastillir, bakkmyndavél, bluetooth.
Verð 6.990.000 kr.
NISSAN - QASHQAI ACENTA 2WD – RN. 191867
Nýskráður 2/2016, ekinn 76 þ.km., dísel, stein-
grár, sjálfskiptur, dráttarkrókur, bakkmyndavél,
fjarlægðarskynjarar, bluetooth.
Verð 2.950.000 kr.
MERCEDES-BENZ - SPRINTER – RN. 331538.
Nýskráður 6/2015, ekinn 119 þ.km., dísel, hvítur,
beinskiptur, túrbína, forhitun á miðstöð, bakk-
myndavél, stöðugleikakerfi, fjarlægðarskynjarar.
Verð 6.990.000 kr.