Morgunblaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Úrval aukahluta:
Hulstur, Hleðslutæki,
Snúrur, Minniskort,
USB lyklar og fleira
Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is
Allt fyrir frisbígolf
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
SNJALLTÆKJA
VIÐGERÐIR
Við gerum við alla síma,
spjaldtölvur, tölvur
og dróna
Startsett
kr. 5.500
Taska + Startsett
kr. 8.500
Ferðakarfa
kr. 25.000
Tilvaldar
Jólagjafir
*Innihald fylgir ekki
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Eyrarrokk er tónlistarhátíð sem
haldin verður í fyrsta sinn á Ak-
ureyri nú um komandi helgi,
föstudag og laugardag. „Þessi há-
tíð er okkar framlag til að auka
við annars fjölbreytt tónlistarlíf á
Akureyri,“ segja þeir Rögnvaldur
Bragi, Sumarliði Helgason og
Helgi Gunnlaugsson sem standa
fyrir tónlistarveislunni sem fram
fer á Verkstæðinu við Strandgötu
53 á Akureyri, þar sem í eina tíð
var Oddviti og síðar Norð-
urslóðasafn.
Helgi keypti húsið fyrir tæpum
tveimur árum, þar rekur hann Vit-
ann mathús virka daga en hefur
yfir að ráða góðu plássi að auki
þar sem í eina tíð voru tónleikar
og dansleikir. Hann hyggst róa á
þau mið á ný og Eyrarrokkið er
eins konar frumraun í umfangs-
miklu tónleikahaldi. Verkstæðið
dregur nafn sitt af starfsemi sem
áður var í húsinu, en þarna var
BSA-verkstæðið til húsa fyrir
margt löngu.
Vonandi ekki það síðasta
Eyrarrokk er nú haldið í fyrsta
sinn, „en vonandi ekki það síð-
asta“, segir Rögnvaldur Bragi.
Þeir stefna allir ótrauðir að því að
um árlegan viðburð verði að ræða
í bæjarlífi Akureyringa og gesta
þeirra.
Öllu er tjaldað til nú þegar
fyrsta Eyrarrokkið er í boði, tón-
leikar bæði á föstudags- og laug-
ardagskvöld og fjöldi hljómsveita
mun stíga á svið.
„Þetta verða nostalgíu-
tónleikar,“ segja félagarnir, en
þeir sem koma fram eiga það sam-
eiginlegt að hafa gert garðinn
frægan fyrir allt að þremur ára-
tugum sumir hverjir. Á föstudags-
kvöldinu eru það hljómsveitirnar
Chernobyl Jazz Club, Lost, Tvö
dónaleg haust, Dr. Gunni og
Fræbblarnir sem eiga sviðið. Á
laugardagskvöldinu stíga svo á
pall Biggi Maus, DDT Skor-
dýraeitur, Dúkkulísurnar, Helgi
og hljóðfæraleikararnir, Langi
Seli og Skuggarnir og Elín Hel-
ena.
Rögnvaldur Bragi segir að í
eina tíð hafi verið algengt að
nokkrar hljómsveitir sameinuðust
um að halda tónleika, þær hefðu
yfirleitt ekki haft burði til þess
einar og sér. „Þetta var oft mjög
skemmtilegt og ég á ljúfar minn-
ingar um tónleikahald af þessu
tagi,“ segir hann. Staðan er að
sögn þeirra félaga svipuð nú, það
sé ekki á allra færi að skella upp
tónleikum með einni hljómsveit en
ef til vill grundvöllur ef margar
slá saman.
Flestir til í tuskið
Eftir að hugmynd um tón-
leikana kviknaði var sent út bréf á
þó nokkuð margar sveitir, flestar
úr fortíðinni, og jákvæð svör bár-
ust á undraskömmum tíma. „Það
voru flestir til í tuskið, þannig að
við ákváðum að kýla á þetta,“
segja þeir og eru sannfærðir um
að stemningin verði góð. „Þetta
verður virkilega skemmtilegt,
góða blanda af rokki, popprokki,
rokkabillíi og alls konar fleira,
bæði fjölbreyttar hljómsveitir og
tónlistarstefnur,“ segja þeir fé-
lagar brattir og stefna á svipaða
tónlistarhátíð að ári, „nema við
töpum miklu, þá verður þetta á
fimm ára fresti“, segir Sumarliði.
„Við stefnum bara að því að fá
upp í útlagðan kostnað, það nægir
okkur, og svo auðvitað að gest-
irnir skemmti sér konunglega.“
Eyrarrokk á Akureyri um helgina
- Tónlistarhátíð á Verkstæðinu á Akureyri - Framlag til að auka fjölbreytni í tónlistarlífi bæjarins,
segja aðstandendur - Frægar hljómsveitir úr fortíðinni stíga á svið- Vonandi árlegt héðan í frá
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Rokkarar Sumarliði Helgason, Helgi Gunnlaugsson og Rögnvaldur Bragi bera hitann og þungann af tónlistarhátíð-
inni Eyrarrokki sem fram fer á Akureyri um helgina. Þar stíga á svið nokkrar þekktar hljómsveitir frá fyrri tíð.