Morgunblaðið - 21.10.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.10.2021, Qupperneq 28
28 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021 Úrval aukahluta: Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur, Minniskort, USB lyklar og fleira Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is Allt fyrir frisbígolf Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a SNJALLTÆKJA VIÐGERÐIR Við gerum við alla síma, spjaldtölvur, tölvur og dróna Startsett kr. 5.500 Taska + Startsett kr. 8.500 Ferðakarfa kr. 25.000 Tilvaldar Jólagjafir *Innihald fylgir ekki Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Eyrarrokk er tónlistarhátíð sem haldin verður í fyrsta sinn á Ak- ureyri nú um komandi helgi, föstudag og laugardag. „Þessi há- tíð er okkar framlag til að auka við annars fjölbreytt tónlistarlíf á Akureyri,“ segja þeir Rögnvaldur Bragi, Sumarliði Helgason og Helgi Gunnlaugsson sem standa fyrir tónlistarveislunni sem fram fer á Verkstæðinu við Strandgötu 53 á Akureyri, þar sem í eina tíð var Oddviti og síðar Norð- urslóðasafn. Helgi keypti húsið fyrir tæpum tveimur árum, þar rekur hann Vit- ann mathús virka daga en hefur yfir að ráða góðu plássi að auki þar sem í eina tíð voru tónleikar og dansleikir. Hann hyggst róa á þau mið á ný og Eyrarrokkið er eins konar frumraun í umfangs- miklu tónleikahaldi. Verkstæðið dregur nafn sitt af starfsemi sem áður var í húsinu, en þarna var BSA-verkstæðið til húsa fyrir margt löngu. Vonandi ekki það síðasta Eyrarrokk er nú haldið í fyrsta sinn, „en vonandi ekki það síð- asta“, segir Rögnvaldur Bragi. Þeir stefna allir ótrauðir að því að um árlegan viðburð verði að ræða í bæjarlífi Akureyringa og gesta þeirra. Öllu er tjaldað til nú þegar fyrsta Eyrarrokkið er í boði, tón- leikar bæði á föstudags- og laug- ardagskvöld og fjöldi hljómsveita mun stíga á svið. „Þetta verða nostalgíu- tónleikar,“ segja félagarnir, en þeir sem koma fram eiga það sam- eiginlegt að hafa gert garðinn frægan fyrir allt að þremur ára- tugum sumir hverjir. Á föstudags- kvöldinu eru það hljómsveitirnar Chernobyl Jazz Club, Lost, Tvö dónaleg haust, Dr. Gunni og Fræbblarnir sem eiga sviðið. Á laugardagskvöldinu stíga svo á pall Biggi Maus, DDT Skor- dýraeitur, Dúkkulísurnar, Helgi og hljóðfæraleikararnir, Langi Seli og Skuggarnir og Elín Hel- ena. Rögnvaldur Bragi segir að í eina tíð hafi verið algengt að nokkrar hljómsveitir sameinuðust um að halda tónleika, þær hefðu yfirleitt ekki haft burði til þess einar og sér. „Þetta var oft mjög skemmtilegt og ég á ljúfar minn- ingar um tónleikahald af þessu tagi,“ segir hann. Staðan er að sögn þeirra félaga svipuð nú, það sé ekki á allra færi að skella upp tónleikum með einni hljómsveit en ef til vill grundvöllur ef margar slá saman. Flestir til í tuskið Eftir að hugmynd um tón- leikana kviknaði var sent út bréf á þó nokkuð margar sveitir, flestar úr fortíðinni, og jákvæð svör bár- ust á undraskömmum tíma. „Það voru flestir til í tuskið, þannig að við ákváðum að kýla á þetta,“ segja þeir og eru sannfærðir um að stemningin verði góð. „Þetta verður virkilega skemmtilegt, góða blanda af rokki, popprokki, rokkabillíi og alls konar fleira, bæði fjölbreyttar hljómsveitir og tónlistarstefnur,“ segja þeir fé- lagar brattir og stefna á svipaða tónlistarhátíð að ári, „nema við töpum miklu, þá verður þetta á fimm ára fresti“, segir Sumarliði. „Við stefnum bara að því að fá upp í útlagðan kostnað, það nægir okkur, og svo auðvitað að gest- irnir skemmti sér konunglega.“ Eyrarrokk á Akureyri um helgina - Tónlistarhátíð á Verkstæðinu á Akureyri - Framlag til að auka fjölbreytni í tónlistarlífi bæjarins, segja aðstandendur - Frægar hljómsveitir úr fortíðinni stíga á svið- Vonandi árlegt héðan í frá Morgunblaðið/Margrét Þóra Rokkarar Sumarliði Helgason, Helgi Gunnlaugsson og Rögnvaldur Bragi bera hitann og þungann af tónlistarhátíð- inni Eyrarrokki sem fram fer á Akureyri um helgina. Þar stíga á svið nokkrar þekktar hljómsveitir frá fyrri tíð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.