Morgunblaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
30 ÁRA Snærós Sindradóttir er
Reykvíkingur, ólst upp í Vesturbænum
og býr þar. Hún er dagskrárgerð-
arkona á RÚV. „Áhugamál mín eru
ferðalög og ég er einmitt stödd á Ítalíu.
Ég ætla að verja afmælisdeginum á
siglingu um Capri og á Capri.“
FJÖLSKYLDA Freyr Rögnvaldsson,
f. 1978, blaðamaður á Stundinni. Börn
þeirra eru Urður Vala, f. 2014, og Tíbrá
Myrra, f. 2018. Stjúpbörn Snærósar
eru Blær, f. 2004, og Kári, f. 2009. For-
eldrar Snærósar eru Helga Vala
Helgadóttir, f. 1972, alþingismaður, og
Sindri Freysson, f. 1970, rithöfundur.
Stjúpforeldrar Snærósar eru Grímur
Atlason, f. 1970, framkvæmdastjóri, og
Gerða Friðriksdóttir, f. 1972, hjúkr-
unarfræðingur og landeigandi.
Snærós Sindradóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hefur lagt hart að þér og munt
nú uppskera. Það kveður við nýjan tón í
ástarsambandinu, fagnaðu því.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú þarft að breyta ákveðnum að-
stæðum þér í hag. Vertu á verði gagnvart
tunguliprum sölumönnum. Bjóddu vinum í
kaffi.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er allt á fullu í höfðinu á þér
og þú hefur hundrað lausnir við öllum
vandamálum. Þú ert þinnar eigin gæfu
smiður.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Málefni tengd sköttum, reikningum
og skuldum hafa íþyngt þér að undan-
förnu. Haltu ró þinni því þú hefur alla
möguleika á að finna réttu lausnina.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það getur verið erfitt að rata réttu
leiðina þegar stígarnir liggja í allar áttir. Allt
sem tengist félagslífi og vinum stendur í
blóma.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Vilji er allt sem þarf. Mundu samt
að blanda ekki saman atvinnu og einkalífi.
Þér hættir til að sjá ekki skóginn fyrir trján-
um.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Aukin ábyrgð er af hinu góða. Losaðu
þig við allt það sem þú þarft ekki lengur á
að halda. Tilfinningarnar eiga það til að
hlaupa með þig í gönur.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Taktu höndum saman með
öðrum til þess að láta hjólin snúast. Fata-
val getur haft áhrif á framkomu þína og
hvernig þér líður, vandaðu valið.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þótt fólk hafi það á orði hversu
fjölhæf/ur þú sért, skaltu varast að láta
þau ummæli hafa of mikil áhrif á þig. Þér
verður trúað fyrir leyndarmáli.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú kannt að freistast til að
kaupa einhverja lúxusvöru fyrir heimilið. Þú
velkist ekki í vafa um tilgang lífsins.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Skilaboð sem þér berast kunna
að reynast áhrifamikil ef þú ákveður að
fara eftir þeim. Allt hefur sinn tíma, að
hvíla sig er mikilvægt.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú ert fullur af krafti og iðar í
skinninu eftir að koma öllu því í verk sem
hefur verið á biðlistanum. Bókhald hefur
aldrei verið þín sterkasta hlið. Fáðu hjálp.
við Trinity College of Toronto í Kan-
ada veturinn 1994-95. Á háskóla-
árunum vann hann m.a. hjá Lögregl-
unni í Reykjavík og Rannsóknar-
lögreglunni í Kópavogi.
Flóki var settur sóknarprestur í
Hólmavíkurprestakalli frá 1. júlí
1983, vígður 12. júní sama ár og skip-
aður frá 1. júní 1984. Meðfram
prestsstörfunum þar var hann einnig
háseti í tvö sumur á togaranum
Hólmadrangi. Honum var veitt
Stóra-Núpsprestakall frá 1. ágúst
1985 með aðsetri í Tröð í Gnúpverja-
hreppi. „Ég reisti mér hús þar og var
með rúmar 30 kindur. Það var mjög
gaman að því. Ég keypti mér líka
hesta og var í hestamennsku þar til
ég slasaði mig, en þá var ég kominn
upp í Borgarfjörð.“
Flóka var veitt Langholts-
prestakall í Reykjavík frá 1. júlí 1991
en sagði kallinu lausu frá 1. október
1996. Hann var þá ráðinn til prests-
þjónustu við Íslendinga búsetta á
meginlandi Evrópu með aðsetri á Ís-
landi frá sama tíma til 31. maí 2000.
Hann var síðan skipaður sóknar-
prestur í Hvanneyrarprestakalli í
Borgarfirði frá 1. júlí 2000 og þjónaði
þar uns hann lét af störfum 1. júní
2020. „Mér líkaði fjarska vel að vera á
Hvanneyri og kunni afskaplega vel
við fólkið. Ég hef líka alltaf haft mikla
þörf fyrir útiveru og plantaði miklu af
trjám í kringum prestssetrið, en ég
hef mjög gaman af ræktun.“
Flóki var formaður barnaverndar-
F
lóki Kristinsson fæddist
21. október 1951 í
Reykjavík og ólst upp á
Barónsstígnum og frá
11 ára aldri í Sól-
heimum, í öðru af 12 hæða húsunum
þar. „Mig langaði alltaf í sveit og mér
fannst ég vera sá eini í hverfinu sem
ekki komst í sveit. En ég fékk að fara
eitt sumar með skólabróður mínum
og vini, Kristni Sigmundssyni, sem
fór alltaf í sveit. Það var á Litla-
Ármóti í Flóa sem var torfbær, slegið
var með orfi og ljá og allt var með
gömlum búnaðarháttum. Mér finnst
merkilegt að hafa kynnst þessu.“
Flóki gekk í Austurbæjarskóla og
síðan í Vogaskóla og varð stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð í
júní 1971. Hann var í Kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð. Flóki stund-
aði nám í guðfræði við Háskóla Ís-
lands 1975-83 og varð cand. theol.
þaðan 26. febr. 1983. „Það var Sigur-
björn Einarsson sjálfur sem flutti
predikun í útvarpi, sem gerði það að
verkum að ég fór upp í háskóla og
skráði mig í guðfræðideildina.“ Flóki
stundaði framhaldsnám í litúrgískum
fræðum og kennimannlegri guðfræði
nefndar Gnúpverjahrepps 1985-91.
Hann sat í atvinnumálanefnd Gnúp-
verjahrepps í fjögur ár, í stjórn
Prestafélags Íslands 1987-90 og var
fulltrúi Prestafélags Íslands á sam-
starfsfundum norrænna prestafélaga
um tíma. Hann var ritstjóri Kirkju-
ritsins 1990-92.
„Ég fór í pílagrímagöngu frá Bæ í
Borgarfirði að Skálholti og það slóg-
ust tveir í för með mér. Ég átti svo
frumkvæði að því að formlega var
stofnað félagið Pílagrímar sem hafði
það að markmiði að þessar göngur
yrðu árlegur viðburður. Ég setti upp
vefsíðuna pilagrimar.is með göngu-
kortum af leiðinni, við settum niður
stikur mestan hluta gönguleiðarinnar
og upplýsingaskilti á áfangastöðum.
Þetta gekk í nokkur ár, var skemmti-
legt og vakti athygli margra, en þetta
voru fimm daga göngur.“
Áhugamál Flóka eru m.a. tónlist og
ljósmyndun. „Faðir minn var mikill
áhugamaður um tónlist og ég fór með
honum á tónleika með Sinfóníu-
hljómsveitinni og með Tónlistarfélagi
Reykjavíkur. Hann var einnig mikill
kirkjumaður og ég ólst upp við það að
fara með honum í kirkju og við fórum
Flóki Kristinsson, fyrrverandi sóknarprestur – 70 ára
Tónlistar- og náttúruunnandi
Afmælisbarnið Flóki Kristinsson.
Presturinn Flóki í prédikunarstólnum í Hvann-
eyrarkirkju í síðasta sinn, árið 2020.
Við Þingvallakirkju Úr
einni af pílagrímagöng-
unum. Flóki er lengst til
hægri í neðri röð.
Í dag, fimmtudaginn 21. október
2021, eiga 60 ára brúðkaups-
afmæli hjónin Magnús Haraldur
Magnússon og Helga Benedikts-
dóttir, Hjúkrunarheimilinu Eyri á
Ísafirði. Þau voru gefin saman á
heimili sr. Guðmundar Guð-
mundssonar á Útskálum. Þau
eiga fimm börn, ellefu barnabörn
og fjórtán barnabarnabörn.
Árnað heilla
Demantsbrúðkaup
Til hamingju með daginn