Morgunblaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það hefur orðið að samkomulagi á
milli kaupfélagsins og hjálparstofn-
ana að halda þessu samstarfi áfram
núna í aðdraganda jólanna,“ segir
Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri en
Kaupfélag Skagfirðinga (KS) mun
áfram gefa matvæli til nokkurra
hjálparstofnana hér á landi.
Fyrir síðustu jól og fram eftir
þessu ári, einkum fyrir páskana, gaf
KS matvæli sem dugað hafa í nærri
200 þúsund máltíðir. Um er að ræða
kjöt- og mjólkurvörur, grænmeti,
kartöflur og brauð.
Upphaflega stóð til að gefa mat
eingöngu fyrir síðustu jól, til að létta
undir með fjölskyldum sem höfðu
orðið fyrir barðinu á kórónuveiru-
faraldrinum og tilheyrandi atvinnu-
leysi. Var reiknað með mat í 40-50
þúsund máltíðir en í ljósi þess hve
þörfin var mikil ákvað KS að halda
aðstoðinni áfram eftir síðustu ára-
mót.
Stór hluti matvælanna hefur farið
til Fjölskylduhjálpar Íslands en einn-
ig til mæðrastyrksnefnda víða um
land, Hjálparstarfs kirkjunnar,
Hjálpræðishersins og Rauða kross
Íslands.
Reiknað er með að aðstoðin fari
fram með svipuðum hætti og verið
hefur. Úthlutanir matvælanna frá KS
hefjast hjá hjálparstofnunum í byrj-
un nóvember og munu standa yfir
fram að jólum.
„Gerir gæfumuninn“
„Við sjáum fram á að geta aðstoðað
þúsundir núna í nóvember og desem-
ber. Þetta er frábært framlag frá
Kaupfélagi Skagfirðinga og gerir
gæfumuninn, bara fyrir síðustu jól
reiknaðist okkur til að verðmæti mál-
tíðanna sem við úthlutuðum hefði
verið um 47 milljónir króna. Síðan
héldu gjafirnar áfram til páska og ég
hygg að kaupfélagið hafi gefið alls
um 100 milljónir króna, bara til okk-
ar,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir
hjá Fjölskylduhjálpinni. „Við tökum
niður pantanir hjá okkar skjólstæð-
ingum og fáum matvörur í samræmi
við það frá kaupfélaginu. Hver fjöl-
skylda fær þrjár eða fjórar máltíðir.“
Ásgerður Jóna metur stöðuna
þannig í dag að þörfin fyrir matar-
aðstoð sé svipuð og verið hefur, það
sýni úthlutanir sem fóru fram í vik-
unni í Reykjavík og Reykjanesbæ.
Þar hafi um 400 heimili fengið aðstoð.
Þegar matvörurnar bárust frá KS
fengu um 2.400 heimili máltíðir í
hverjum mánuði hjá Fjölskylduhjálp-
inni.
Þörfin ekki minnkað
Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálpar-
starfi kirkjunnar tekur undir með
Ásgerði Jónu um að þörfin fyrir að-
stoð sé svipuð nú og áður. Skjólstæð-
ingar hjálparstarfsins fá inneign-
arkort til að kaupa inn mat, allt árið
um kring, og framlag KS hefur bæst
þar ofan á. „Það er bara frábært að fá
svona viðbótarstuðning,“ segir hún.
Vilborg segir skjólstæðingum hafa
fjölgað verulega í upphafi kórónu-
veirufaraldursins og þeim hafi ekki
fækkað síðan þá. „Þó að margir hafi
komist aftur út á vinnumarkaðinn þá
bætast bara við nýir í staðinn. Síðan
hefur matarverð verið að hækka,
húsaleiga og fleira, og lægstu launin
ekki hækkað til jafns við það,“ bendir
Vilborg á.
Á síðasta starfsári hjálparstarfs-
ins, sem lauk 30. júní sl., leituðu 2.363
fjölskyldur eftir efnislegri aðstoð í
samtals 4.724 skipti. Þær voru frá 80
mismunandi þjóðlöndum.
KS heldur matar-
gjöfunum áfram
- Hafa gefið nærri 200 þúsund máltíðir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mataraðstoð Komið með matvæli
frá KS fyrir síðustu jól.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég held að það sé best fyrir alla að
þetta sé frágengið og við getum farið
að snúa okkur að uppbyggingunni,“
segir Líf Magneudóttir, formaður
stjórnar Sorpu.
Á fundi stjórnar Sorpu í síðustu
viku var samþykkt að ganga til
samninga við Björn Halldórsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
Sorpu, á grundvelli minnisblaðs sem
kynnt var á fundinum. Umrædd sátt
snýr að dómsmáli sem Björn höfðaði
á hendur Sorpu eftir að honum var
sagt upp starfi framkvæmdastjóra í
febrúar á síðasta ári.
Stjórn Sorpu lýsti því yfir að upp-
sögn Björns ætti sér meðal annars
stoð í skýrslu innri endurskoðunar
Reykjavíkurborgar um stjórnar-
hætti og áætlanagerð vegna gas- og
jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi. Í
skýrslunni voru gerðar alvarlegar
athugasemdir við störf Björns hvað
varðaði upplýsingagjöf og gerð
kostnaðaráætlunar. Sem kunnugt er
fór kostnaður við stöðina í Álfsnesi
langt fram úr áætlun, eða sem nam
1,3 milljörðum króna. Björn taldi aft-
ur á móti að stjórn Sorpu viki sér
undan ábyrgð á umræddum fram-
kvæmdum. Hann staðhæfði að upp-
sögnin hefði verið ólögmæt og
stjórnin hefði beitt „sérstaklega
meiðandi“ aðferðum við starfslok
hans.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu á þeim tíma krafði Björn
Sorpu um skaðabætur sem svöruðu
til fimm ára launa, miskabóta og að
réttindi vegna námsleyfis yrðu gerð
upp. Alls hljóðaði krafa Björns upp á
ríflega 167 milljónir króna auk vaxta
og dráttarvaxta.
Stefna Björns var þingfest í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í júní 2020 en
aðalmeðferð átti að hefjast í byrjun
þessa mánaðar. Samkvæmt upplýs-
ingum blaðsins barst sáttaboð frá
Sorpu tveimur dögum áður en aðal-
meðferð átti að hefjast.
Líf segir í samtali við Morgunblað-
ið að samkomulagið kveði á um að
Björn fái greidd laun í sex mánuði til
viðbótar við þá sex mánuði sem
samningur hans hafi kveðið á um og
hann þegar fengið greidda. Auk þess
verði lögfræðikostnaður upp á 1,5
milljónir króna greiddur. „Það náðist
sátt í málinu. Það er erfitt að standa í
löngum málaferlum með tilheyrandi
kostnaði og álagi á starfsfólk. Þetta
hefur verið erfitt fyrir starfsmenn
Sorpu enda hafði Björn starfað lengi
hjá fyrirtækinu. Það hefði getað
brugðið til beggja vona ef málið hefði
farið fyrir dóm og upphæðin hefði
getað orðið hærri,“ segir Líf.
Björn vildi ekki tjá sig þegar eftir
því var leitað.
Sorpa semur við Björn
- Sátt í máli fyrrverandi framkvæmdastjóra sem sagt var upp
störfum - Fær laun í 12 mánuði og lögfræðikostnað greiddan
Morgunblaðið/Eggert
Jarðgerð Hin nýja gas- og jarðgerðarstöð Sorpu í Álfsnesi reyndist dýr. Kostnaður fór 1,3 milljarða fram úr áætlun.
Björn H.
Halldórsson
Líf
Magneudóttir
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Á sama tíma og flækjustig brota-
starfsemi hefur aukist hefur lög-
reglan aldrei haft jafn mikinn að-
gang að rafrænum upplýsingum og
nú. Þetta segir Arnar Jensson, ráð-
gjafi hjá Öryggis- og samvinnu-
stofnun Evrópu (ÖSE), í samtali við
Morgunblaðið.
Í kjölfar þessara breytinga hefur
svokölluð þekkingarmiðuð löggæsla
verið tekin upp víða á Vesturlönd-
um.
„Þessi nálgun byggist á því að
vera með skipulega upplýsingaöflun
og að ákvarðanir lögreglunnar er
varða verkefni, skipulag, áætlanir
og rannsóknir séu byggðar á grein-
ingu á þessum upplýsingum,“ segir
Arnar.
Niðurstöður fjölda rannsókna
bendi til þess að hefðbundin við-
bragðslöggæsla skili ekki nægileg-
um árangri í afbrotavörnum og að
lögreglan þurfi að tileinka sér nálg-
un sem er meira fyrirbyggjandi.
Þar komi þekkingarmiðuð löggæsla
sterk inn, að sögn Arnars.
„Með þessari nálgun getur lög-
reglan valið sér
verkefni og for-
gangsraðað þeim
eftir ógn og skað-
semi, allt byggt á
upplýsingasöfnun
og greiningu á
þeim upplýsing-
um,“ segir hann.
„Annað sem þessi
nálgun leggur
mikla áherslu á
eru fjármálahliðar afbrota en lang-
sterkasta leiðin til þess að leysa upp
skipulagða brotastarfsemi er að ná
ávinningnum og gera hann upptæk-
an með samvinnu mismunandi
stofnana.“
Gæta þurfi þó vel að því að öllum
mannréttinda- og persónuverndar-
ákvæðum sé fylgt í upplýsingasöfn-
un lögreglunnar, að sögn Arnars.
„Þær línur þurfa að vera mjög
skýrar og það þarf að setja formlegt
skipulag um þetta allt saman.“
Arnar vinnur nú að tillögum um
hvernig útfæra megi þessa nálgun á
Íslandi sem hann mun leggja fyrir
ríkislögreglustjóra í næsta mánuði.
„Hann og mögulega lögregluráð
munu svo ákveða næstu skref.“
Þekkingar-
miðuð löggæsla
- Fyrirbyggjandi nálgun í löggæslu
Arnar
Jensson
ÁRAMÓTASVEIFLA Á ALICANTE
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
29. DESEMBER - 05. JANÚAR | 8 DAGAR
INNIFALIÐÓTAKMARKAÐ GOLFAFNOT AF GOLFBÍL,MORGUNVERÐUR, ÁRAMÓTA GALA
DINNER, VALIN GISTING, ÍSLENSKUR
FARARSTJÓRI, INNRITAÐURFARANGUR, HANDFARANGUR OGFLUTNINGUR Á GOLFSETTI
ALICANTE GOLF RESORT
Stutt er í verslun, á ströndina og einungis nokkur skref
á golfvöllinn. Alicante Golf einstaklega skemmtilegur
og fjölbreyttur golfvöllur.
MELIA ALICANTE
Eitt vinsælasta hótelið á Alicante. Hótelið er staðsett
úti á smábátabryggjunni með Postuguet ströndina í
fanginu. Hótelið er staðsett við golfvöllinn Alicante Golf.
EL PLANTIO GOLF RESORT
Einn vinsælasti golfstaður ÚÚ. Þessi skemmtilegi
staður er steinsnar frá Alicanteborg og því tilvalið
fyrir þá sem vilja spila golf og njóta menningarinnar í
Alicante.
ALICANTE GOLF VERÐ FRÁ 299.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Val um morgunverð eða hálft fæði, morgunverður innifalinn í verði
MELIA ALICANTE VERÐ FRÁ 299.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Morgunverður innifalinn í verði
EL PLANTIO VERÐ FRÁ 274.900 KR.
Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA
Val um morgunverð eða hálft fæði, morgunverður innifalinn í verði
ÖRFÁ SÆTI
LAUS Í ÞESSA
VINSÆLU FERÐ