Morgunblaðið - 21.10.2021, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Askalind 3,
201
Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Föst.
10—17
Laugardaga
11—15
HAUSTTILBOÐ
20% afsláttur af öllum
innréttingum út október
Reykjavíkurborg samþykkti í
fyrradag „lýðræðisstefnu“ og
gildir hún til ársins 2030 þegar
óvissa um lýðræði í borginni tekur
við á ný. Og það er ekki nóg með
að samþykkt hafi
verið lýðræðis-
stefna, heldur ligg-
ur einnig fyrir „að-
gerðaáætlun“, sem
tryggir auðvitað að
stefnan verður ekki
orðin tóm. Stefnu-
drögin voru unnin í
„opnu samráðs-
ferli“ og að auki voru handahófs-
valdir „rýnihópar“ fengnir til að
„ræða lýðræðismál“. Þá voru
haldnir „vinnufundir í stjórnsýslu
Reykjavíkurborgar“ til að undir-
búa stefnuna og „opinn rafrænn
fundur“ um framtíð lýðræðisins í
Reykjavík.
- - -
Enginn getur efast um að þarna
hefur farið fram þýðingar-
mikið starf og fjarri því að nokkur
sýndarmennska búi þar að baki af
hálfu stjórnenda borgarinnar. Þeir
eru þekktir fyrir mikinn áhuga á
sjónarmiðum borgarbúa sem kem-
ur meðal annars fram í því að
borgarstjóri er svo önnum kafinn
við stefnumótun lýðræðis að hann
má ekki vera að því að hitta þá
borgarbúa sem segja farir sínar
ekki sléttar í samskiptum við
borgina.
- - -
Þá má slá því föstu að nýja „lýð-
ræðisstefnan“ verði til þess að
minnisvarði um brostin loforð
Reykjavíkur, sem íbúar á Kjalar-
nesi samþykktu í lýðræðislegri
íbúakosningu borgarinnar fyrir
tveimur árum að yrði reistur þar,
rísi án tafar.
- - -
Ekki getur verið að borg sem
er bæði með „lýðræðisstefnu“
og „aðgerðaáætlun“ dragi frekar
en orðið er að reisa minnisvarð-
ann.
Dagur B.
Eggertsson
Minnisvarði um
lýðræðisstefnu?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Tálknafjörður | Starfsmenn
Borgarverks hafa unnið við það
síðustu daga að leggja slitlag á
nýjan veg fyrir botni Tálkna-
fjarðar. Alls er um 1,8 km kafla að
ræða en einnig var smíðuð tvíbreið
brú yfir Botnsá, 20 metra löng. Er
þetta mikil samgöngubót fyrir
heimamenn og aðra þá sem leið
eiga fyrir fjörðinn.
Með þessum kafla lengdist
Bíldudalsvegur um eina 100 metra
en mun þó taka mun styttri tíma
að aka hann.
Tilboð í verkið voru opnuð hjá
Vegagerðinni í ágúst á síðasta ári.
Kubbur ehf. á Ísafirði var eini
bjóðandinn í lagningu vegar og
smíði brúar. Tilboð Kubbs var um
250 milljónir króna. Borgarverk
bauð síðan lægst í lagningu slit-
lags á veginn nýja.
Nýtt vegstæði í
botni Tálknafjarðar
Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson
Tálknafjörður Nýr vegur og brú skipta miklu fyrir vegfarendur. Í bak-
grunni sjást gömlu vegamannvirkin sem nú eru aflögð.
Facebook er enn sem áður mest not-
aði samfélagsmiðillinn meðal full-
orðinna Íslendinga en níu af hverj-
um tíu segjast nota miðilinn. Þetta
kemur fram í nýrri samfélagsmiðla-
greiningu greiningarfyrirtækisins
Gallup.
Twitter virðist vera í mikilli sókn
en þeim Íslendingum sem segjast
nota Twitter fjölgar um sjö prósent
á milli ára og nú segist rétt tæpur
fjórðungur landsmanna nota miðil-
inn. Það er sér í lagi yngri kynslóðin
sem sækir þangað en ungt fólk er
einnig í auknum mæli að verja tíma
sínum á kínverska myndbandafor-
ritinu TikTok.
Instagram eykur jafnt og þétt vin-
sældir sínar hjá fólki nærri miðjum
aldri, en hlutfall fólks á aldrinum 45-
54 ára sem notar Instagram hefur
aukist úr 38% og upp í 70% á síðustu
fjórum árum. Miðillinn, sem er í eigu
Facebook, heldur einnig vinsældum
sínum hjá fólki á aldrinum 18-34 ára.
Færri nota Snapchat
Unga fólkið hefur þó ekki haldið
tryggð við Snapchat en hlutfall svar-
enda á aldrinum 18-44 ára sem segj-
ast nota Snapchat hefur lækkað um
8% á milli ára, en notkunin hefur
staðið í stað hjá þeim sem eru eldri
en 45.
Smáskilaboðaforritið Whatsapp,
sem er einnig í eigu Facebook, sækir
í sig veðrið en 22% landsmanna segj-
ast nota miðilinn en þar er yngri
kynslóðin fremst meðal jafningja.
Eldri kynslóðir virðast fylgja þeim
yngri í vali og notkun samfélags-
miðla svo forritið gæti einn daginn
tekið við af Messenger sem vinsæl-
asta forritið til að senda smáskila-
boð. Um 87% segjast nota Messen-
ger í dag. baldurb@mbl.is
Facebook trónir
enn á toppnum
AFP
Umtal Mikið hefur verið rætt um
Facebook eftir bilun kerfa miðilsins.
- Yngra fólk færir sig yfir á Twitter