Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 24
24 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Ýmsar gerðir af heyrnartækjum
í mörgum verðflokkum,
stærðum og litum.
Allar helstu rekstrarvörur og
aukahlutir fyrir heyrnartæki
fást í vefverslun
vefverslun.heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
2007
HLÍÐASMÁRI 19, 2. HÆÐ • 201 KÓPAVOGI • SÍMI 534 9600 • HEYRN@HEYRN.IS • HEYRN.IS
Heyrðu
umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Atlantsolía hefur verið í viðræðum
við Reykjavíkurborg um að loka
bensínstöð fyrirtækisins við Háaleit-
isbraut 12. Áformar Atlantsolía að
fjarlægja stöðina og breyta notkun
lóðarinnar í íbúðabyggð.
Á síðasta fundi skipulagsfulltrúa
Reykjavíkur var lögð fram fyrir-
spurn Hans Olavs Andersens dags.
26. ágúst 2021 varðandi breytingu á
deiliskipulagi Safamýrar-Álftamýr-
ar vegna lóðarinnar nr. 12 við Háa-
leitisbraut sem felst í stækkun lóðar,
breytingu á notkun í íbúðabyggð og
uppbyggingu, samkvæmt tillögu
Teiknistofunnar Traðar. Í dag er
þar rekin sjálfsafgreiðslustöð fyrir
bensín og hjólaverslunin Berlín.
Íbúðir verði 81 talsins
Í frumathugun sem fylgdi fyrir-
spurninni kemur fram að lóðin sé í
dag 1.910 fermetrar en lagt er til að
breyta lóðarmörkum svo hún stækki
í 3.837 fermetra.
Samkvæmt frumathuguninni er
gert ráð fyrir að byggingarnar verði
þrjár, hæst sjö hæðir. Þær verða
samtals 7.824 fermetrar með
geymslum. Íbúðirnar verða 81 tals-
ins, þar af 37 tveggja herbergja.
Bílageymsla verður 1.985 fermetrar.
Skipulagsfulltrúi vísaði fyrir-
spurninni til umsagnar verkefn-
isstjóra.
Atlantsolía keypti stöðina við
Háaleitisbraut í desember 2018 af
Olís, sem þurfti að selja fimm bens-
ínstöðvar sínar vegna sameiningar
við Haga. Með kaupunum fylgdu
meðal annars fasteignir, lóða- og að-
stöðusamningar.
Borgarráð samþykkti í júní sl. að
ganga til samninga við rekstraraðila
bensínstöðva um fækkun stöðvanna.
Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson,
skrifaði undir samning þess efnis við
olíufélögin N1, Skeljung og Olís.
Olíufélögin munu sjá um framtíð eða
sölu sinna lóða með það fyrir augum
að lóðirnar nýtist undir íbúðir og at-
vinnuhúsnæði.
Á fimmta tug bensínstöðva er í
Reykjavík og þær búa yfir landrými
sem gæti rúmað allt að 1.400 íbúðir.
Með nýrri samþykkt er í upphafi
horft til 12 stöðva í íbúðarhverfum
víðs vegar um borgina þar sem reisa
má a.m.k. 500 íbúðir. Búist er við að
uppbygging hefjist á næstu árum.
Ekki samið um lóðina við Háaleit-
isbraut í júní sl.
Á lóðunum eru hugmyndir um að
rísi íbúðarhúsnæði með eða án at-
vinnuhúsnæðis á jarðhæð. Með
fækkun stöðvanna fækkar eldsneyt-
isstöðvum í íbúðabyggð en stöðvar
verða áfram starfræktar fyrst og
fremst við stærri umferðargötur.
Jarðefnaeldsneytisdælum fækkar úr
109 í 73 eða um 33%.
Íbúðarhús í stað bensínstöðvar
- Atlantsolía vill
byggja íbúðir við
Háaleitisbraut
Morgunblaðið/sisi
Háaleitisbraut 12 Á lóðinni sem um ræðir er í dag sjálfsafgreiðslustöð Atlantsolíu fyrir bensín og reiðhjólaverslunin Berlín. Olís rak þessa bensínstöð áður.