Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is
Glæsilegur náttfatnaður
Unnin úr náttúruefnum • 68% Modal & 32% Bómull
Vefverslun
selena.is
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Bókin varð einfaldlega til vegna þess
að ég er oftast að elda fyrir mig eina
en hingað til hafa langflestar upp-
skriftir sem ég hef látið frá mér verið
fyrir fleiri, af og til tvo, oftast fjóra,
eins og algengast hefur verið með
uppskriftir,“ segir Nanna um hug-
myndina að baki bókinni. „Mér fannst
bara kominn tími til þess að gera bók
fyrir sjálfa mig og aðra einbúa. Og
mig langaði til að láta árstíðirnar
koma fram og þess vegna tók ég allar
matarmyndirnar úti á svölunum mín-
um með mismunandi svalagróður í
baksýn, eftir því hvort var vor, sum-
ar, haust eða vetur. Veturinn var
reyndar erfiðastur því það ætlaði
aldrei að koma neinn snjór
í fyrravetur.“
Bókin er hugsuð fyrir alla þá sem
elda fyrir einn, hvort sem þeir búa
einir eða ekki. „Kannski er einn á
heimilinu sem er grænmetisæta eða
einn sem er kjötæta og þá er hægt að
finna hér einfaldar uppskriftir sem
henta, hvort sem er hversdags, spari
eða jafnvel um jólin. Hún er fyrir fólk
sem er nýbyrjað að búa eða er óvant
eldamennsku, með mörgum einföld-
um uppskriftum. Hún er líka fyrir
fólk sem er vant að elda fyrir einn en
vantar fleiri hugmyndir. Og hún er
fyrir fólk sem hefur eldað fyrir fjöl-
skylduna í mörg ár eða áratugi en býr
nú eitt og kann ekki almennilega að
elda litla skammta. En hún er fyrst
og fremst fyrir fólk sem hefur gaman
af að elda,“ segir Nanna. Bókin er
jafnframt einstaklega falleg og nefnir
Nanna þar sérstaklega Alexöndru
Buhl, sem hannaði bókina, en Nanna
tók sjálf allar ljósmyndir í henni.
Aðspurð hver sé hennar uppá-
haldsuppskrift segir Nanna að því sé
henni lífsins ómögulegt að svara enda
hafi hún sent frá sér einar sjö eða átta
þúsund uppskriftir á ferlinum og því
af nógu að taka. „En ef þú ert að
spyrja um þessa bók, þá er það þessa
stundina kannski bökuð kartafla með
hnetum og gráðaosti. Eða einhver af
fiskréttunum, til dæmis ofngrillaður
fiskur með kapers-vinaigrettu og
krömdum kartöflum. Eða kannski
afrísk kjúklingasúpa,“ segir Nanna
að lokum og lætur hér fylgja með
uppskriftina að téðri bakaðri kartöflu
sem er einstaklega girnileg á að líta
og bragðast ábyggilega enn betur ef
við þekkjum Nönnu rétt.
Afkastamikil Alls hefur Nanna
Rögnvaldar sent frá sér 22 bækur.
Eldað fyrir einn
Nanna Rögnvaldar er ókrýnd drottning íslenskra mat-
arbókmennta en á dögunum sendi hún frá sér nýja bók
sem ber titilinn Borð fyrir einn. Bókin inniheldur, eins og
titillinn gefur til kynna, uppskriftir fyrir einn, sem er
ágætistilbreyting – enda nýtti Nanna samkomutakmark-
anir til þess að vinna bókina og elda fyrir einn.
Mjög einföld og fljótleg fiskupp-
skrift. Hér eru hafðar kramdar kart-
öflur með og það er aðeins meiri fyr-
irhöfn en fyllilega þess virði. En
auðvitað má líka hafa alls konar með-
læti annað.
200 g fiskur, t.d. steinbítur
¼ tsk. þurrkað óreganó
pipar og salt
3 msk. ólífuolía
1 msk. kapers
2 tsk. hvítvíns- eða eplaedik
pipar
Hitaðu grillið í ofninum og krydd-
aðu fiskinn með óreganói, pipar og
salti. Settu fiskinn á plötu (ýttu kart-
öflunum til hliðar ef á að grilla þær
með). Dreyptu 1 tsk. af olíu yfir og
grillaðu í 4-5 mínútur, eða eftir þykkt
flakanna. Settu á meðan kaperskornin
í sigti og skolaðu þau til að draga úr
saltbragðinu. Hristu svo saman af-
ganginn af ólífuolíunni, edik, kapers
og pipar. Settu kartöflurnar og fiskinn
á disk, e.t.v. ásamt salatblöðum, og
helltu kaperssósunni yfir.
Ef kramdar kartöflur eru hafðar
með er byrjað á að sjóða þær, kremja
og baka síðan (sjá meðlætiskaflann),
og grilla þær svo með fiskinum. Ef
kartöflurnar þurfa aðeins lengri tíma
má taka fiskinn út, setja á disk og
grilla kartöflurnar í 2-3 mínútur í við-
bót.
Kramdar kartöflur
3-6 kartöflur, eftir stærð
1 msk. smjör
salt
1 msk. ólífuolía (eða meira smjör)
Sjóddu kartöflurnar þar til þær eru
vel meyrar, 20-25 mínútur. Hitaðu
ofninn í 220°C. Helltu vatninu af kart-
öflunum og láttu rjúka af þeim í um 5
mínútur. Settu þær þá á papp-
írsklædda plötu og þrýstu glasi eða
öðru niður á þær til að fletja þær út í
um 1 cm þykkt; þær eiga þó ekki að
fara í sundur. Settu smjörklípu ofan á
hverja og stráðu salti yfir. Bakaðu í
20-25 mínútur. Kveiktu á grillinu í
ofninum, færðu kartöflurnar ofar og
grillaðu þær þar til þær hafa tekið
góðan lit og hýðið er stökkt. Penslaðu
þær með ólífuolíu eða smjöri um leið
og þær eru teknar úr ofninum.
Ljósmynd/Nanna Rögnvaldar
Ofngrillaður fiskur
með kapers-vinaigrettu
Dálæti Rétturinn
er í miklu uppá-
haldi hjá Nönnu.
Bakaðar og fylltar kartöflur eru
einstaklega einfaldur og góður
réttur sem hægt er að breyta á
óteljandi vegu þótt grunnaðferðin
sé sú sama. Hér er fyllingin gráða-
ostur og hnetur en það má líka
nota pítsufyllingu (tómata, peppe-
róní og basilíku), kryddaðar nið-
ursoðnar baunir af ýmsu tagi,
stökksteikt beikon blandað græn-
meti, túnfisksalat eða túnfisk,
kryddjurtir og kotasælu, steikt
hakk og ost – já, eiginlega bara
flest sem manni dettur í hug.
1 bökunarkartafla, um 250 g
1 msk. olía
50 g blámygluostur
3-4 valhnetur
1 tsk. ferskt timjan, saxað, eða ¼
tsk þurrkað
salt
2-3 msk. nýrifinn parmesanostur
Hitaðu ofninn í 200°C. Pikkaðu
kartöfluna með gaffli á nokkrum
stöðum. Helltu olíunni í lítið eld-
fast mót, veltu kartöflunni upp úr
henni og bakaðu hana svo í um 1
klst., eða þar til prjónn sem stung-
ið er í hana rennur auðveldlega í
gegn. Taktu hana þá út og hækk-
aðu hitann í 225°C. Skerðu djúpan
kross ofan í kartöfluna, taktu
pottaleppa eða aðra hlíf og ýttu
þétt á hvern fjórðung, alla í einu,
þannig að krossinn opnist vel.
Myldu ostinn, grófsaxaðu hnet-
urnar og hrærðu þessu saman við
timjan og salt.
Settu fyllinguna í kartöfluna –
hún má alveg hrynja dálítið út í
formið – og stráðu parmesanosti
yfir. Settu aftur í ofninn og bakaðu
í um 15 mínútur, eða þar til ost-
urinn hefur tekið góðan lit og kart-
öfluhýðið er gullinbrúnt og stökkt.
Ljósmynd/Nanna Rögnvaldar
Þægilegt Auðvelt er að marg-
falda uppskriftirnar eftir fjölda
gesta þótt þær séu í grunninn
hugsaðar fyrir einn.
Bökuð kartafla