Morgunblaðið - 21.10.2021, Page 64

Morgunblaðið - 21.10.2021, Page 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021 Sýningaropnun laugardaginn 23. október kl. 14 Opið virka daga 10–18, laugardaga 12–16 Lokað á sunnudögum ÞÓRUNN BÁRA BJÖRNSDÓTTIR Sýnir í Gallerí Fold 23. október–13. nóvember NÁTTÚRAN ÚR FÓKUS Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Ég ber mikla virðingu fyrir Vigdísi og er mjög heilluð af henni sjálfri og líka af þeirri staðreynd að kona geti verið forseti. Það var hægt vegna þess að hún fékk þennan stuðning frá konum og körlum í samfélaginu. Fólk vildi hafa hana og vildi þessar breytingar. Það sýnir að þetta er hægt ef allir standa saman,“ segir Alexandra Chernyshova sópran- söngkona og tónskáld. Ný ópera hennar, Góðan daginn, frú forseti, sem fjallar um líf og störf Vigdísar Finnbogadóttur, verður frumflutt á laugardaginn kemur, 23. október kl. 20 í konsertuppfærslu í Grafarvogs- kirkju. Alexandra er alin upp í Rússlandi og Úkraínu þar sem það þótti ótrú- legt að kona gæti orðið forseti. „Það var nokkuð sem manni datt ekki í hug að væri hægt. Þannig var það svo sterkt þegar ég flutti til Íslands árið 2003 og frétti að Vigdís varð fyrst kvenna í heiminum forseti. Þetta heillaði mig rosalega. Íslensk- ar konur eru líka svo hrifnar af Vig- dísi, hún er mikil fyrirmynd.“ Ellefu árum síðar kviknaði þessi hugmynd að óperunni. Hún lagðist í mikla rannsóknarvinnu og kynnti sér Vigdísi og sögu hennar vel. „Ég er búin að lesa mér til bæði um Vig- dísi og líka þennan tíma. Ég keypti bókina um Vigdísi, Kona verður for- seti eftir Pál Valsson. Hún var líka með fyrirlestur þar sem ég var við- stödd og svo hef ég séð viðtöl við hana í sjónvarpinu og í tímaritum. Fyrir sjö árum var ég orðin nógu góð í íslensku til þess að geta skilið þetta allt saman.“ Klár, sterk og hógvær Alexöndru finnst hún vera farin að þekkja Vigdísi vel eftir að hafa lesið sér mikið til um hana. „Hún hefur heillað mig alveg upp úr skónum sem manneskja. Hún skarar fram úr í öllu, hún er mjög klár og með miklar hugsjónir en er líka svo hógvær. Hún er líka mjög sterk og ég skil alveg af hverju ís- lenskar konur skoruðu á hana að fara í framboð.“ Þótt óperan fjalli um Vigdísi og lífshlaup hennar koma ýmsar aðrar persónur við sögu. Í fyrsta þætti segir til dæmis frá þeim áhrifum sem Vigdís varð fyrir í æsku frá Þor- valdi afa sínum. Móðir Vigdísar var henni líka stór fyrirmynd. „Hún var hjúkrunarkona og formaður félags hjúkrunarkvenna. Hún var sterk baráttukona líka. Og pabbinn er þarna líka, prófessorinn Finnbogi.“ Í öðrum þætti verksins segir frá ferðum Vigdísar til Frakklands, frönskukennslu hennar í sjónvarp- inu og því þegar hana langaði að ættleiða barn. Alexandra komst að því þegar hún las ævisögu Vigdísar að hún hefði verið fyrsta einstæða foreldrið til þess að ættleiða á Ís- landi. Henni hafi fyrst verið neitað um það en hún hafi ekki gefist upp og að lokum fengið leyfi til þess. „Hún fékk þetta símtal um að hún fengi að verða mamma, það var ham- ingjuríkasti dagurinn hjá henni. Þetta var hennar draumur. Það kemur fram í mörgum viðtölum að þetta var það sem hana langaði mest af öllu. Hún fékk þessa yndislegu dóttur, Ástríði,“ segir Alexandra. „Svo kemur að því að hún verður leikhússtjóri og allir urðu hissa þeg- ar leikhússtjóri kemur með barna- vagn. Hún gerði mjög mikið fyrir leiklistina og leiklistarfólk og hún fékk líka mikinn stuðning frá því. Í þriðja þætti verður hún forseti. Þarna kemur kór sem syngur: „Góð- an daginn, frú forseti“. Svo kemur að þessari stóru fallegu stund.“ Garðar Cortes stjórnar Alexandra semur sjálf tónlistina og handritið en hefur nýtt til þess ljóð ýmissa íslenskra skálda. „Það er svo fallegt í óperunni að hafa þennan íslenska flota ljóðskálda. Flest ljóðin eru eftir Sigurð Ingólfsson, hann er með doktorspróf í bókmenntum, lærði við Sorbonne-háskóla í Frakk- landi og er heillaður af sögunni um Vigdísi. Svo eru þarna ljóð eftir Ástu Björk Sveinbjörnsdóttur, sem er ljóðskáld og líka kennari eins og Vigdís var áður en hún varð leik- hússtjóri. Svo eru ljóð frá Hannesi Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands, sem var einn af fyrstu karlmönn- unum hér sem studdu kvenréttindi.“ Auk þeirra má finna í óperunni ljóð eftir Þórhall Barðason, Elísabetu Þorgeirsdóttur og Alexöndru sjálfa. Garðar Cortes sér um hljóm- sveitarstjórn. „Ég er mjög þakklát fyrir að stofnandi Íslensku óper- unnar skuli stjórna þessari óperu. Mér þykir mjög vænt um það og hann segist vera mjög hrifinn af verkinu og var það strax þegar ég sendi honum það.“ Sópraninn Alexandra syngur sjálf hlutverk Vigdísar. „Þótt ég hafi sungið Violettu í La Traviata og Gildu í Rigoletto og mörg önnur hlutverk þá er þetta örugglega stærsta hlutverk sem ég hef sungið,“ segir hún. „Svo eru frábærir einsöngvarar eins og Gissur Páll Gissurarson sem syngur vin Vigdísar, Magnús Magn- ússon, og Viðar Gunnarsson sem syngur föður Vigdísar.“ Hún nefnir einnig „baráttukonurnar fimm“ en hlutverk þeirra syngja þær Ingi- björg Aldís Ólafsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Íris Sveinsdóttir, Ingveldur Ýr Jónsdóttir og Elsa Waage. „Þetta eru allt þekkt nöfn.“ Jóhann Smári Sævarsson, Gerður Bolladóttir, Guðmundur Karl Ei- ríksson og Linda Pálína Sigurðar- dóttir fara einnig með hlutverk. Tuttugu og tveggja manna hljóm- sveit leikur undir, konsertmeistari er Guðný Guðmundsdóttir og Einar Bjartur Egilsson stýrir æfingum. Þá taka Karlakór Grafarvogs, undir stjórn Írisar Erlingsdóttur, og Kvennakór Suðurnesja, undir stjórn Dagnýjar Jónsdóttur, þátt í upp- færslunni. „Ég held þetta sé góð ópera hjá mér,“ segir Alexandra og hlær. „Fyrir sjö árum þegar ég var búin að ákveða að semja óperuna, en áður en ég fór alveg á flug, skrifaði ég bréf til Vigdísar og svo talaði ég við hana í síma til þess að biðja um leyfi. Hún svaraði: „Já, auðvitað, Alex- andra, listform á að lifa.“ Og þá fannst mér þetta strax léttara.“ Þegar blaðamaður náði tali af Alexöndru átti hún von á að fá Vig- dísi í heimsókn á æfingu. „Hún er svo indæl. Hún þekkir listafólkið og þekkir mig og það sem ég hef gert áður, eins og að stofna Óperu Skaga- fjarðar,“ segir hún og minnist þess þegar frú Vigdís var viðstödd fyrstu sýningu Óperu Skagafjarðar á La Traviata í Varmahlíð fyrir um fimm- tán árum. „Mér þykir svo vænt um það. Ég fæ á tilfinninguna að hún treysti mér og mér þykir mjög vænt um að hún treysti mér til þess að setja líf sitt í þetta tónlistar- og leik- listarform sem er okkur öllum kært.“ Alexandra vonast til þess að geta þýtt óperuna á rússnesku og jafnvel fleiri tungumál, „svo konur og karlar víða um heim geti heyrt söguna um þessa mögnuðu konu“. Ljósmynd/Jón Rúnar Hilmarsson Ópera Tólf einsöngvarar, tuttugu og tveggja manna hljómsveit og tveir kórar taka þátt í uppfærslunni. „Hún heillaði mig upp úr skónum“ - Óperan Góðan daginn, frú forseti frumsýnd á laugardag - Fjallar um ævi og störf frú Vigdísar Finnbogadóttur - Alexandra Chernyshova, sópransöngkona og tónskáld, semur tónlist og handrit Alexandra Chernyshova flutti til Íslands árið 2003 og er nú bú- sett í Njarðvík ásamt eigin- manni sínum og þremur sonum þeirra. Hún hefur starfað sem söngkennari og kórstjóri, sam- hliða því að syngja sjálf og semja tónlist. Það er mikill fengur að henni fyrir íslenskt menningarlíf. Alexandra hlaut menningar- verðlaun Reykjanesbæjar, Súl- una, fyrir framlag sitt til menn- ingar í bæjarfélaginu í fyrra og árið 2014 var hún valin í hóp framúrskarandi ungra Íslend- inga. Hún varð nýlega í 1. sæti í al- þjóðlegri tónskáldakeppni í Moskvu fyrir tónsmíð sína úr ís- lensku óperunni Skáldið og biskupsdóttirin. Fengur fyrir Ísland TÓNSKÁLDIÐ Ljósmynd/Jón Rúnar Hilmarsson Tónskáld Alexöndru langar að þýða óperuna á fleiri tungumál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.