Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Glæsileg og afar rúmgóð 157,8 m2 lúxusíbúð á jarðhæð ásamt bílastæði í bílakjallara við Efstaleiti 12. Rúmgóð hellulögð verönd er út frá sólstofu sem snýr til suðvesturs og vesturs. Íbúðin er í einu eftirsóttasta fjölbýli landsins í nágrenni við Kringluna. Einstaklega falleg sameign með lyftu, útisundlaug, heitum pottum, gufubaði, líkamsræktarsal, samkomusal, bar, setustofu og tómstundarrýmum með snóker og pool borði. Mjög snyrtilegt húsnæði í alla staði. Húsvörður er búsettur í íbúð í eigu húsfélagsins og hefur hann umsjón með fasteigninni og veitir íbúum aðstoð. LÁTTU FAGFÓLK SELJA ÞÍNA EIGN EFSTALEITI 12 - GLÆSILEGOG RÚMGÓÐ LÚXUSÍBÚÐ Ingunn Björg Sigurjónsdóttir Löggiltur Fasteignasali ingunn@domusnova.is Sími: 856 3566Opið hús laugardaginn 30. október frá kl. 14-14:30 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ essi stórmerka kona, ís- lenska alþýðustúlkan sem varð greifynja de Grimaldi, er mörgum gleymd,“ segir Sigrún Magnúsdóttir þjóðfræðingur sem ætlar að bæta úr því og flytja er- indi í dag í Ættfræðifélaginu um Þur- íði Þorbjarnardóttur, sem giftist Henri de Grimaldi, afabróður Alberts fursta af Mónakó. „Þuríður fæddist 30. október 1891 en hún missti föður sinn ung og var fyrir vikið alin upp hjá einstæðri móður og afa sínum og ömmu, sem öll bjuggu í Garðhúsum í Reykjavík. Húsið stendur enn og er friðað, en þau eru ekki mörg húsin hér á landi sem enn standa og eru beintengd við sögu kvenna. Þetta er steinbær sem var sjómannshús við sjávarsíðuna og byggt í anda torfbæjanna. Garðhús voru alþýðuheimili en mikið menn- ingarhús. Þuríður ólst upp við mjög menningarlegar aðstæður á alþýðu- vísu en amma hennar og nafna, Þur- íður Eyjólfsdóttir, var hafsjór af fróð- leik og áberandi í bæjarlífi á þessum tíma sem ein helsta menningarkona bæjarins. Í Garðhús sóttu skáld og þar þótti líf og fjör. Af þessu sést í hvaða umhverfi hin unga Þuríður elst upp og hún fékk að fara í Kvenna- skólann, tók tvo bekki saman á einum vetri, 1911-1912.“ Hreifst af menntun og háttvísi Sigrún segir að eitt af því sem þótti einkenna Þuríði hafi verið hversu góð hún var í tungumálum. „Hún talaði dönsku, ensku og frönsku og hún starfaði um tíma í verslun á Búðum og í skartgripa- verslun Jóns Sigmundssonar á Laugavegi. Eflaust hefur hún þurft að nota erlend tungumál í því sem hún sinnti fyrir þessi tvö fyrirtæki. Afi hennar var hafnsögumaður, en til að geta orðið slíkur í Reykjavík á þessum tíma þurftu menn að kunna hrafl í erlendum tungumálum, þeir þurftu að geta bjargað sér þegar er- lend skip komu. Tungumál hafa því væntanlega ekki verið framandi í Garðhúsum, á æskuheimili Þuríðar.“ Sigrún segir að þegar Þuríður var 29 ára hafi hún verið fengin til að starfa á Hótel Skjaldbreið, hið ör- lagaríka ár í lífi hennar fyrir hundrað árum, 1921. „Þá var mikið að gerast í Reykjavík og fólk bjóst við erlendum ferðamönnum og þá veitti ekki af að hafa stúlku í móttöku hótelsins sem kunni erlend tungumál. Þar hitti hún markgreifann, Henri de Grimaldi, afabróður Alberts fursta af Mónakó, ekkjumann sem var þrjátíu árum eldri og tilheyrði elstu konungsætt Evrópu. Sagt er að hann hafi verið mjög háttprúður og stórgáfaður mað- ur, hafi meðal annars haft þrettán tungumál á valdi sínu, en hann var málvísindamaður og lagði meðal ann- ars stund á norræn mál og talaði og skrifaði íslensku. Henri hafði kynnst Guðmundi Finnbogasyni lands- bókaverði þegar hann var í Sorbonne-háskóla í Frakklandi og fyrir hvatningu hans kom Henri til Íslands. Væntanlega hefur verið stór- kostleg uppgötvun fyrir greifann að hitta fyrir á Hótel Skjaldbreið hana Þuríði, unga glæsilega reykvíska stúlku, sem var vel að sér í bók- menntum og menningu. Hún hafði gott menningarlegt nesti úr Garð- húsum, þar sem skáld voru fastagest- ir og amman lifði í fornum ridd- arasögum. Sagt er að greifinn hafi hrifist af glæsileika, menntun og hátt- vísi Þuríðar. Hann gisti á hótelinu og svo getum við í eyðurnar. Þetta er mikið ástarævintýri þar sem erlendur stórefnaður konungborinn greifi og alþýðustúlka á Íslandi verða ást- fangin við upphaf tuttugustu aldar.“ Gremjulegt að sjá skraut og auð Þuríður sigldi með Gullfossi af landi brott með greifanum 23. októ- ber 1921, fyrir um 100 árum. „Þau sigldu héðan með Gullfossi til Kaupmannahafnar og kannski hélt hún upp á þrítugsafmælið um borð í Gullfossi. Þau fóru svo frá Kaup- mannahöfn til Hamborgar, þaðan til Parísar og að lokum til Lissabon þar sem greifinn bjó. Þeim auðnaðist því miður ekki að vera samvistum nema í fjögur ár og eignuðust engin börn, en Þuríður dó úr berklum í Brussel árið 1925, þá tæplega 34 ára. Hún hefur mögulega borið berklana með sér héðan frá Íslandi, því það var þó nokkuð um berkla í hennar móð- urætt,“ segir Sigrún og bætir við að dýrmætið sem við eigum um líf Þur- íðar eftir að hún flutti burt með greif- anum séu sendibréfin hennar, en Sig- rún ætlar einmitt að fjalla um þau í erindi sínu í dag. „Þuríður skrifaði bréf heim til Ís- lands til vinkonu sinnar Ragnhildar Sigurðardóttur, öll þessi fjögur ár sem hún bjó erlendis. Fyrsta bréfið skrifaði hún rétt rúmum mánuði eftir að hún fór héðan. Þar kemur fram að með þeim er ung stúlka, Gunnlaug Briem, 19 ára dóttir Valdimars Briem prests, en það voru tengsl á milli fjöl- skyldnanna. Gunnlaug var hjá þeim í Lissabon í heilt ár og Auður Finn- bogadóttir, systurdóttir Þuríðar, kom eftir það og var líka ár hjá þeim sér til heilsubótar. Greifinn vildi gjarnan að Þuríður hefði íslenska konu sér til fé- lagsskapar, til halds og trausts,“ seg- ir Sigrún og bætir við að deilur hafi verið í fjölskyldu greifans um hver væri rétti prinsinn af Mónakó. „Um þetta skrifar Þuríður í einu bréfanna og þar segir orðrétt: „Hann er voða ríkur maður og það er gremjulegt að sjá allt hans skraut og auðæfi sem eru í kringum hann og hann á alls engan rétt á að hafa. Ekki svo að skilja að það sé leiðinlegt fyrir mig, því ef greifinn væri í rétti sínum að vera prins af Mónakó, væri ég að öllum líkindum ekki gift honum, sem í raun og veru er stórt lán fyrir mig, ekki satt.“ Bréfin vitna um heimþrá Sigrún segir að í bréfum Þuríðar komi fram gríðarleg heimþrá. „Hún var alltaf að vonast til að komast aftur til Íslands í heimsókn. Í einu bréfinu segist hún því miður ekki komast það sumarið, því hún þurfi að fara á heilsuhæli í Belgíu. Hún segist vera mikið innan um hefð- arfólk í fínum húsum, en að hana langi meira til að vera samvistum við alþýðufólk. Í einu bréfinu segir hún orðrétt: „Mikið vildi ég heldur vera í einhverju húsinu í Reykjavík.“ Sigrún vekur athygli á að íslensk kona í Íslendingafélaginu í Brussel, Guðrún Högnadóttir Ansiau, hafi tek- ið sig til og farið að grafast fyrir um líf Þuríðar eftir að hún fluttist út. „Hún heimsótti ættingja greifans og hefur fengið margskonar upp- lýsingar frá Grimaldi-ættinni. Guð- rún hefur lagt mikið á sig við þessa vinnu og hún hafði einnig uppi á leg- steini Þuríðar þar sem hún er jarð- sett í Brussel, undir kórónu Grim- aldi-ættarinnar. Guðrún heillaðist af sögu Þuríðar og hefur annast um grafreit hennar af stakri prýði.“ Alþýðustúlkan sem varð greifynja Þuríður Þorbjarnardóttir úr Garðhúsum og síðar Þuríður de Grimaldi greifynja fæddist við lok 19. aldar á Íslandi. Ör- lögin leiddu þau saman á Hótel Skjaldbreið, hana og markgreifann Henri de Grimaldi, afabróður Alberts fursta af Mónakó. Morgunblaðið/Árni Sæberg Garðhús Sigrún við æskuheimili Þuríðar, Garðhús í Reykjavík, það er friðað og skjöldur settur á það á laugardag. Glæsileg Þuríður Þorbjarnardóttir Grimaldi og Henri de Grimaldi, afa- bróðir Alberts fursta af Mónakó. Myndin er tekin 1925, dánarár Þuríðar. Fyrirlestur Sigrúnar hjá Ætt- fræðifélaginu um Þuríði verður í dag, fimmtudag 28. okt., kl. 16 í húsi Þjóðskjalasafnsins, Lauga- vegi 162. Í tilefni þess að nú eru 100 ár frá því Þuríður og Henri de Grimaldi giftust og hún flutti með honum út, ætlar Reykjavík- urborg nk. laugardag, 30. okt., á fæðingardegi Þuríðar, að setja skjöld við Garðhús, húsið sem hún fæddist í og minnast henn- ar. Skjöldurinn eða skiltið er tví- skipt, annars vegar um húsið og afa og ömmu Þuríðar sem þar bjuggu, en hinsvegar um Þuríði sjálfa, de Grimaldi. Síðan verður athöfn í Sjóminjasafninu í kjöl- farið. Erindi og skjöldur á hús TVEIR VIÐBURÐIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.