Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 80
ILVA Korputorgi Lau. og sun. 12-18 Virkir dagar 11-18:30 ILVA Akureyri Lau. 10-17 Sun. 13-17 Virkir dagar 11-18 s: 522 4500 - www.ILVA.is FAST SENDINGARGJALD MEÐ PÓSTINUM HVERT Á LAND SEM ER! Bordstofudagar- 20% AF ÖLLUM BORÐSTOFU- HÚSGÖGNUM OG BORÐ- BÚNAÐI 21. OKT - 1. NÓV SPAraðu 28.980 Nú115.920 SPAraðu 3.980 Nú15.920SPAraðu 7.980 Nú31.920 TRUE BORÐSTOFUBORÐ GRÁOLÍUBORIN EIK CROSS FÆTUR 144.900 kr. NÚ 115.920 kr. NORRLAND BORÐSTOFUSTÓLL 39.900 kr. NÚ 31.920 kr. NOAK BORÐSTOFUSTÓLL 19.900 kr. NÚ 15.920 kr. Alþjóðlega barnakvikmyndahátíðin í Reykjavík hefst með sýningu á opnunarmyndinni Nellý Rapp: Skrímsla- spæjari. Sýningin verður í kvöld, fimmtudagskvöldið 28. október, kl. 17 í Bíó Paradís. Börn á öllum aldri eru hvött til þess að mæta í búningum enda er þema hátíð- arinnar í ár hrekkjavaka. Veitt verða verðlaun fyrir besta búninginn. Þetta er í áttunda sinn sem Alþjóð- lega barnakvikmyndahátíðin er haldin en henni lýkur 7. nóvember. Ýmsar myndir verða á dagskrá, meðal ann- ars hin íslenska Birta og gamla góða Beetlejuice. Skrímslaspæjari og búningakeppni á barnakvikmyndahátíð FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 301. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Árið 2018 var síðasta tímabil þar sem ég keppti og þá var ég með um 4,7 í erfiðleikaeinkunn. Svo fékk ég brjósklos og þurfti að róa mig niður en þá nýtti ég tím- ann og líka tímann í Covid til þess að byggja upp aðeins meiri styrk. Ég hengdi upp hringi í bílskúrnum þegar það var ekki hægt að æfa. Allt árið 2019 var ég að passa mig rosalega mikið,“ segir Jón Sigurður Gunn- arsson meðal annars í viðtali við Morgunblaðið í dag en hann hafnaði í 23. sæti á hringjum á HM í áhaldafim- leikum í Japan á dögunum. »69 Jón Sigurður hengdi upp hringi í bílskúrnum til að geta æft ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Eftir hálfan mánuð eða 11. nóvember verður opnuð myndlistarsýning í ís- lenska sendiráðinu í Lundúnum á Englandi. Þar verða til sýnis og sölu 18 ný verk eftir Hendrikku Waage skartgripahönnuð. „Þetta er fyrsta sýningin í sendiráðinu síðan Covid byrjaði og í raun fyrsta opinbera einkasýning mín, en ég málaði verkin á nýliðnum vikum og mánuðum,“ seg- ir listamaðurinn. Hendrikka hefur búið á Englandi síðan 2004 og á heima fyrir utan höf- uðborgina. Hún er afkastamikill lista- maður og fyrir utan skartgripahönn- un hefur hún samið og gefið út barnabækur auk þess sem penslar, blýantar og litir hafa aldrei verið fjarri. „Ég fékk mikla hvatningu frá móður minni, sem var listhneigð og málaði frá unga aldri; ég er líka mjög listræn og hef teiknað og litað síðan ég var lítið barn,“ útskýrir hún. „Samfara hönnuninni hef ég verið í listnámi í Art Academy of London á kvöldin og um helgar í nokkur ár og byrjaði að mála portrettmyndir fyrir um þremur og hálfu ári eftir mikla hvatningu frá kennara mínum.“ Fjölhæfnin gerir það að verkum að Hendrikka þarf að vera mjög skipu- lögð. „Skartgripir og málverk haldast í hendur, eru eins og systur eða bræður í listinni, en ég einbeiti mér að einu í einu. Ég tek vissa daga í skartgripahönnunina og mála aðra daga.“ Hún bætir við að það að skapa sé mjög gefandi og hún njóti vinnunn- ar í hvívetna. „Ég fæ sérlega mikla gleði út úr vinnunni og ég vona að við- skiptavinurinn fá eins mikla gleði út úr því sem ég geri og ég fæ við sköp- unina.“ Vinsælar myndir Hendrikka segir að myndir sínar hafi selst vel að undanförnu. „Mynd- list hefur átt góðu gengi að fagna í Covid, sem kemur mér kannski ekki á óvart. Listin gerir okkur kleift að skoða hvað það þýðir að vera mann- eskja, að tala og tjá og leiða fólk og hugmyndir saman. Listin skapar vel- líðan í daglegu lífi okkar. List gerir okkur kleift að eiga samskipti úr fjarska, skapa jákvæðni, þakklæti og von á meðan Covid-19 stendur. Á tím- um samfélagslegs óréttlætis og óróa magnar listin mikilvægar raddir og skilaboð. Þetta er tíminn til að meta listir.“ Portrettmyndir af konum eftir Hendrikku voru til sýnis í þrígang í gluggum tveggja fataverslana í Reykjavík um tíma á nýliðnum tveim- ur árum. „Ég kalla þessar portrett- myndir „Wonderful Beings“ og þær eru allar með eitt eyra því óþarfi er að hlusta á allt,“ segir hún, en mynd- irnar á sýningunni í sendiráðinu verða af sama meiði. Fylgjast má með henni á Instagram og þar má hafa samband við hana (@hendrikka- waagearts). Listin skapar vellíðan - Fyrsta opinbera myndlistarsýning Hendrikku Waage Portrett Hendrikka Waage málar konur með eitt eyra, „Wonderful Beings“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.