Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 25 ára 1996-2021 ÚRVAL ÚTILJÓSA www.rafkaup.is Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Tanit Karolys er ein þeirra sem stendur fyr- ir ráðstefnunni Fæðing móður en ráð- stefnan, sem verður haldin 6. nóvember næstkomandi, er ætluð sem fræðsla fyrir verðandi mæður. Sjálf mun Tanit fara með erindi á ráðstefnunni um meðvitað uppeldi (e. Conscious Parenting Method) sem er uppeldisaðferð sem hefur notið mikilla vin- sælda upp á síðkastið og en aðferðin byggir á áherslu á virðingarrík samskipti milli for- eldra og barna og náttúrulegum uppeldis- aðferðum. Tanit mætti í morgunþáttinn Ísland vakn- ar í gær og ræddi þar um uppeldisaðferðina. „Þú hefur eitthvað inni í þér sem hjálpar þér að að tengjast barninu. En það að verða foreldri – og ekki bara fyrsta mánuðinn eða fyrsta árið, við erum að tala um kannski 20 ár sem þú þarft að fylgjast með og leiðbeina barninu þínu í að verða bara manneskja,“ sagði Tanit í viðtalinu við þau Kristínu Sif, Jón Axel og Yngva Eysteins. „Þú verður að fara í háskóla til að læra verkfræði en þú þarft ekki að fara í for- eldraháskóla til að læra að verða besta for- eldrið sem þú getur orðið,“ sagði Tanit en hún segir fólk oft búast við því að þekkingin til að ala upp börn sé þegar til staðar frá náttúrunnar hendi. „Það sem allir eru að segja hér [þ.e. á Ís- landi] er: „Þetta reddast. Við erum sterk og við getum allt.“ En við erum að kenna barninu að tilfinn- ingar skipta ekki máli. Og það sem þú finnur þegar þú ert að gera eitthvað, það skiptir ekki máli. Bara „haltu áfram“ og „þú ert með þetta“,“ sagði Tanit. Tanit sagði þetta viðhorf setja of mikla pressu á barnið. Sagði hún foreldra oft vera með ákveðna „triggera“ í uppeldinu sem eigi upptök sín hjá þeim persónulega. „Þau [börnin] eru ekki að sofa þegar þú vilt, þau eru ekki borða það sem þú vilt. Það er ekki barnið. Það ert þú sjálfur sem þú þarft að vinna í,“ útskýrði Tanit. „Fókusinn á þig í staðinn fyrir barnið“ Þá ræddi Tanit um stærstu fyrirmyndina sem flestir hafa um foreldrahlutverkið – þeirra eigin foreldra – og benti hún á að langflestir væru þeirrar skoðunar að uppeld- isaðferðir foreldra þeirra væru ekki upp á tíu. „Við viljum breyta þessu. Meðvitað upp- eldi er að setja fókusinn á þig í staðinn fyrir barnið. Börnin eru bara frábær eins og þau eru. Þú vinnur með sjálfan þig og þau læra af þér,“ sagði Tanit og bætti við að þannig gætu foreldrar gengið á undan með góðu fordæmi. Með meðvituðu uppeldi leggur maður þannig ekki áherslu á hvernig maður á að „ala upp“ barn heldur á það hvernig maður getur sjálfur verið besta fyrirmyndin fyrir barnið. „Allt byrjar með þér sjálfum. Ef þú ert ekki búinn að læra að vera í lagi og vera í jafnvægi, þá getur þú ekki kennt barninu það. Þú þarft að vinna fyrst í þér sjálfum til að ganga á undan með góðu fordæmi,“ sagði hún og benti á að foreldrar gætu ekki gert þær kröfur á barnið sitt að gera allt full- komlega á meðan þeir væru ekki að vinna í sjálfum sér. Fullkomnunarsinni sem fann frelsið Sjálf lærði Tanit hjá dr. Shefali Tsabary, upphafskonu hugmyndarinnar um meðvitað uppeldi og er Tanit viðurkenndur leiðbein- andi uppeldisaðferðarinnar. Hún sagðist sjálf hafa átt foreldra sem voru dugnaðarforkar og afar metnaðarfullir (e. overachievers) sem hafði áhrif á hana og hennar hugmyndir um uppeldi. „Ég er fullkomnunarsinni. Ég fór í besta háskóla í heiminum. Ég var að gera allt sem ég var að gera og var með rosa góða vinnu. En ég fór í kulnun. Af því að það var of mik- il pressa á mér,“ sagði Tanit en hún er viss um að þetta hrun hafi verið ákall um að hún þurfti horfa inn á við og vinna í sjálfri sér til að verða besta útgáfan af sjálfri sér og þannig betri fyrirmynd fyrir dóttur sína, Sól. Nú hjálpar hún fólki að gera slíkt hið sama. „Allt byrjar með þér“ Móðir Tanit elur dóttur sína Sól upp í meðvituðu uppeldi með manni sínum Andra. Meðvitað uppeldi er uppeldis- aðferð sem hefur rutt sér rækilega til rúms á Íslandi á síðustu misserum. Tanit Karolys leiðbeinir foreldrum í að nýta sér aðferðina en hún ræddi um hana og áhrif hennar í Ísland vaknar á K100 í gær. Leiðbeinandi Tanit Karolys er leiðbeinandi í meðvituðu uppeldi en hún býður upp á ýmis námskeið. Ljósmyndir/Tanit.is Fókus „Meðvitað uppeldi er að setja „fókus- inn“ á þig í staðinn fyrir barnið. Börnin eru bara frábær eins og þau eru,“ segir Tanit. „Meðvitað uppeldi leggur ekki áherslu á það hvernig þú átt að „ala upp“ barnið þitt en snýr hins vegar að því hvernig þú getur undirbúið þig og um- breytt þér til þess að geta boðið barninu þínu bestu útgáfuna af þér. Að upp- götva hvernig eigin mynstur og skilyrðingar geta takmarkað þig og aftrað þér frá því að vera fullkomlega til staðar á þessari nýju vegferð foreldra- hlutverksins, sem hefur bein áhrif á uppeldi barnsins þíns,“ segir á heima- síðu Tanit, Tanit.is, um meðvitað uppeldi. Þar segir Tanit frá því hvernig hún upplifði kulnun sem leiddi hana í mik- inn umbreytingartíma í lífi sínu sem varð til þess að hún varð meðvitað for- eldri og fór að leggja áherslu á náttúrulega nálgun á uppeldi dóttur sinnar. Varð meðvituð móðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.