Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Á GÖNGUSKÍÐUM Í PINZOLO WWW.UU.IS HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS NÝ FERÐ Á UU.IS Komdu með í einstaka gönguskíðaferð til Pinzolo á Ítalíu með tveimur reyndum íslenskum gönguskíðafararstjórum, þeim Lukku Pálsdóttur og Þóreyju Villhjálmsdóttur Proppé. Þær halda utan um hópinn á meðan á ferðinni stendur en báðar eru þær landvættir og með mikla reynslu á gönguskíðum og skíðum. Þessi ferð hentar öllum gönguskíðagörpum sama hver geta þeirra er á gönguskíðum. Haldist verður við gönguskíðasvæðið við Admello Brenta Nature Park sem er rétt fyrir utan Pinzolo þorpið í Ítalíu. NÝTT! GÖNGUSK ÍÐI 2022 22. - 29. JANÚAR 2022 VERÐ FRÁ:219.900 KR. á mann m.v. tvo fullorðna Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé Lukka Pálsdóttir FLUG,GISTING, ÍSLENSKFARARSTJÓRN OGFLUTNINGUR ÁSKÍÐABÚNAÐIINNIFALIÐ Í VERÐI Ríkarður Örn Pálsson, tónskáld og gagnrýn- andi, lést sl. mánudag á Landspítala, 75 ára að aldri. Ríkarður fæddist í Danmörku 15. júní 1946. Foreldrar hans voru Paul Larsen Chri- stoffersen og Anna Sig- ríður Lárusdóttir. Ríkarður lauk stúd- entsprófi úr MR árið 1967 og stundaði eftir það nám í sögu og ís- lensku við Háskóla Ís- lands og norrænum mál- vísindum í Kaupmannahöfn. Árið 1971 hóf hann nám við Tónlistarskól- ann í Reykjavík og lærði á kontra- bassa. Ríkarður var við framhalds- nám í bassaleik, söng, tónfræði og tónlistarfræði í Bandaríkjunum árið 1982. Ríkarður Örn var kontrabassaleik- ari í Sinfóníuhljómsveit Íslands 1977- 1978. Þá fékkst hann við þáttagerð fyrir útvarpið og kenndi síðar einn vetur á Hvolsvelli. Hann var bassa- leikari með þjóðlagatríóinu Þremur á palli ásamt því að fást við útsetningar á röddum fyrir hljómsveitina. Hann fékkst einnig nokkur sumur við nótnateiknun fyrir söngbækur grunnskólans og kom einleiks- fiðluverki að á UNM, tónlistarhátíð ungra norrænna tónskálda. Hann var keppandi í norræna sjónvarpsþættinum Kontrapunkti og tók þátt í fimm skipti á ár- unum 1990 til 1998. Þá skrifaði Ríkarður tón- listargagnrýni í Morgunblaðið frá árinu 1994. Ríkarður Örn samdi tónlist fyrir kvikmyndir, sjónvarp og leikhús. Árið 2006 kom út tvöfaldur disk- ur, Medio tutissimus ibis, með tónsmíðum hans. Í viðtali við Morgunblaðið af því tilefni sagði Ríkarður Örn m.a. að melódían væri það erfiðasta af öllu. „Einföld en snjöll melódía er trú- lega meðal blautustu sápustykkja sem skapandi hugur fær höndlað, það hef ég áður sagt. Það er m.a.s. þrælerfitt að gera gott popplag. Ég hálföfunda menn sem fara létt með það eins og Gunnar Þórðarson, Val- geir Guðjónsson og Egill Ólafsson. En það heimtar að þú sért við kol- ann nánast daglega. Það þarf líka að henda miklu og ég hef ekki haft þetta langlundargeð í mér til þess.“ Ríkarður var ókvæntur og barn- laus. Morgunblaðið átti langt og heilla- ríkt samstarf með Ríkarði Erni og þakkar honum samfylgdina. Andlát Ríkarður Örn Pálsson Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Kórónuveirusmitum í samfélaginu hefur fjölgað nokkuð að undan- förnu. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítala, segir að fjölgun smita sé ógn við starfsemi spítalans. „Þessi ógn er tvíþætt, annars vegar ógn við sjúklingana okkar og hins vegar ógn við starfsfólkið okk- ar. Þ.e.a.s. þeim mun meira sem er um smit á meðal starfsfólks eða ná- inna ættingja þeirra, þeim mun meira kvarnast úr okkar vinnuafli sem er aftur ógn við okkar starf- semi og þannig sjúklingana. Þess vegna erum við mjög áhugasöm um það að nýgengið lækki í samfélag- inu,“ segir Már. Hann telur að besta leiðin til þess að takast á við faraldurinn nú sé að almenningur sýni skynsemi í sótt- vörnum án þess að stjórnvöld þurfi að setja fram boð og bönn. Már hvetur fólk því til að setja upp and- litsgrímur í almenningsrýmum, gæta hreinlætis og halda sig heima ef það finnur fyrir einkennum. „Ef það gerist ekki þá þarf lög- gjafinn að grípa inn í og vera með íþyngjandi tilmæli til samborgar- anna,“ segir Már. Í ljósi fjölgunar smita hefur verið tekin ákvörðun um að virkja bak- varðasveit heilbrigðisþjónustunnar að nýju, til þess að koma til móts við mönnunarvanda sem getur skapast vegna veikinda eða tíma- bundinnar sóttkvíar heilbrigðis- starfsfólks. Mjög fáir hafnað alfarið Þau sem starfa hjá Landspítala og höfðu ekki fengið bólusetningu gegn Covid-19 í byrjun sumars, þegar tölfræðilegra gagna var aflað, voru helst ófrískar konur og fólk sem hafði áður smitast af kórónu- veirunni, að sögn Vigdísar Hall- grímsdóttur, forstöðumanns krabbameinskjarna Landspítala, sem vann með farsóttarnefnd spít- alans að því að skipuleggja bólu- setningar starfsmanna. Sárafáir starfsmenn Landspítala hafa hafn- að bólusetningu alfarið, einungis um 20 til 30 manns. Í byrjun sumars var hlutfall bólu- settra starfsmanna 93%. 6.494 störfuðu þá hjá spítalanum og höfðu 6.014 þegið bólusetningu. Gera má ráð fyrir því að hlutfall bólusettra starfsmanna sé orðið enn hærra í dag þar sem þeim sem hafa áður smitast af kórónuveirunni hefur nú verið boðin bólusetning. 150 125 100 75 50 25 0 júlí ágúst september okt. Staðfest smit 7 daga meðaltal H ei m ild :c ov id .is kl .1 1. 0 0 íg æ r 84 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring 1.874 einstaklingar eru í sóttkví Fjöldi innanlands- smita frá 12. júlí 301 er í skimunar- sóttkví797 eru með virkt smit og í einangrun 14 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu Fjölgun smita ógnar spítalanum - Skynsemi almennings besta lausnin Guðni Einarsson Höskuldur Daði Magnússon Bandarísk yfirvöld viðurkenna nú samsettar bólusetningar gegn Co- vid-19 þar sem bóluefni frá Astra- Seneca og Pfizer eru bæði notuð. Staðfesting þess efnis barst í gær, að sögn Heilsu- gæslu höfuð- borgarsvæðisins (HH). Mörg lönd, t.d. Kanada og Norðurlönd, hafa notað sam- settar bólusetn- ingar. Gott flæði er í bólusetningar og einhverjir eru boðaðir alla virka daga í bólusetningu á höfuð- borgarsvæðinu. Auk þess er opið hús á Suðurlandsbraut 34 kl. 10-15 alla virka daga, að sögn Ragnheið- ar Óskar Erlendsdóttur, fram- kvæmdastjóra hjúkrunar hjá HH. Flestir 70 ára og eldri hafa nú fengið boð um að koma í örvunar- bólusetningu. Þrír mánuðir þurfa að vera liðnir frá seinni bólusetn- ingu þess aldurshóps áður en hann fær örvunarskammt. Um helm- ingur boðaðra hefur skilað sér í örvunarbólusetninguna. Fólk á aldrinum 60-69 ára verð- ur væntanlega boðað í örvunar- bólusetningu í nóvember og des- ember. Þá eru stærstu hóparnir í þessum aldursflokki að detta inn. Sex mánuðir þurfa að líða frá síðari bólusetningu hjá þessum aldurs- hópi áður en örvunarbólusetning er gefin. „Ef liðnir eru sex mánuðir frá síðustu bólusetningu hjá ein- hverjum sem eru 60 ára eða eldri þá eru þeir velkomnir í opið hús á Suðurlandsbraut 34 milli kl. tíu og þrjú á virkum dögum,“ sagði Ragn- heiður. Hún segir að heilsugæslu- stöðvar höfuðborgarsvæðisins séu búnar að bólusetja sitt starfsfólk. Gildistími Covid-19-bólusetning- arvottorða er tólf mánuðir frá fullnaðarbólusetningu eða örvunar- skammti, það er þriðju sprautu. Þannig lengist gildistími vottorðs- ins um þegar viðkomandi fær örv- unarskammt. Sóttvarnasvið Emb- ættis landlæknis á ekki von á að gildistími vottorðanna verði al- mennt framlengdur, nema ákveðið verði að ekki þurfi örvunar- skammta fyrir almenning. Styttist í örvunarbólu- setningar 60-69 ára - Bandaríkin viðurkenna bólusetningu með tveimur efnum Morgunblaðið/Eggert Bólusetning 70 ára og eldri hafa verið boðaðir í örvunarbólusetningu að undanförnu. Brátt kemur að aldurshópnum 60-69 ára. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir Bakvarðasveit heilbrigðisþjónust- unnar hefur verið virkjuð á ný. Það er gert í ljósi fjölgunar á smitum vegna kórónuveirunnar. Þetta er talið nauðsynlegt til að koma til móts við mönnunarvanda. Hann getur skapast vegna veikinda eða tímabundinnar sóttkvíar heilbrigð- isstarfsfólk ef smit koma upp á heil- brigðisstofnunum. Mikil þörf er á hjúkrunarfræð- ingum og sjúkraliðum. Heilbrigðis- starfsfólk sem hefur tök á að rétta hjálparhönd er beðið um að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki er gefinn kostur á að skrá sig í tímavinnu, fullt starf eða hlutastarf í allt að tvo mánuði. Laun taka mið af kjarasamningi eða stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á viðkomandi stofnun. gudni@mbl.is, hmr@mbl.is Bakvarðasveitin hefur verið virkjuð á ný Morgunblaðið/Golli Heilbrigðisstarfsfólk Nú er þörf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.