Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 8. O K T Ó B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 253. tölublað . 109. árgangur .
Nauta ribeye-steik
½ - í piparmaríneringu
3.989KR/KG
ÁÐUR: 5.699 KR/KG
Bæonne-skinka
979KR/KG
ÁÐUR: 1.999 KR/KG
Sítrónur
251KR/KG
ÁÐUR: 359 KR/KGVERÐ-
SPRENGJA!
30%
AFSLÁTTUR 30%
AFSLÁTTUR
TILBOÐ GILDA 28.--31. OKTÓBER
FRÁBÆR TILBOÐ
Í NÆSTU NETTÓ
HELDUR MERKJ-
UM GREIFYNJ-
UNNAR Á LOFTI TODMOBILE AFTUR Á SVIÐ
BÓKMENNTAVERÐ-
LAUN NORÐUR-
LANDARÁÐS 2021
TÓNLEIKAR Í HÖRPU EFTIR LANGT HLÉ 16 RÝNT Í VERKIN 70SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR 14
Nær eitt af hverjum tíu ungmennum
á aldrinum 16 til 24 ára var hvorki í
námi né í vinnu á seinasta ári. Margt
ungt fólk sem er af erlendu bergi
brotið er í þessum hópi og leiða nýjar
rannsóknir í ljós að staða ungmenna
af erlendum uppruna sem eru utan
vinnumarkaðar og skóla hefur versn-
að á seinustu árum.
Niðurstöður þessara rannsókna
voru kynntar á netfundi sem Varða –
rannsóknastofnun vinnumarkaðarins
stóð fyrir í gær. Ungmennum með er-
lendan bakgrunn bjóðast verri að-
stæður og takmarkaðri tækifæri í ís-
lensku samfélagi en innfæddum,
segir í niðurstöðum. Eru þau sögð
vera varnarlausari gagnvart því að
lenda í þessum hópi ungmenna sem
eru hvorki við nám né í vinnu en inn-
fædd ungmenni.
Í annarri rannsókn sem kynnt var á
fundinum og byggist á viðtölum við
ungar konur af erlendum uppruna,
kemur fram að þær búa við marg-
þættar hindranir í íslensku samfélagi.
„Konurnar upplifa fjölþætta útskúfun
úr íslensku samfélagi á grundvelli
uppruna síns, bæði frá íslenskum al-
menningi og stofnunum samfélagsins.
Á sama tíma er gerð krafa um ríka
sjálfsbjargarviðleitni í kerfi sem er
flókið, óaðgengilegt og óhagstætt út-
lendingum.“ omfr@mbl.is
Versnandi staða ungmenna
- Ungar konur af erlendum uppruna upplifa fjölþætta útskúfun úr samfélaginu
M Mæta oft … »2 og 40
Utan skóla og án vinnu
» 9,5% ungmenna hér á landi
hvorki í námi né í vinnu 2020.
» Kyn, menntun, félags- og
efnahagsleg staða foreldra og
fjölskyldugerð virðist ráða
miklu um virkni ungmenna.
Breikkun Suðurlandsvegar, á milli Selfoss og
Hveragerðis, gengur vel, að sögn Ágústs Jakobs
Ólafssonar, verkstjóra Íslenskra aðalverktaka,
sem sjá um verkið. Endanleg verklok eru áætluð í
september árið 2023. Nú er búið að malbika aust-
asta hluta nýja vegarins og verður hann tekinn í
notkun bráðlega. „Nú erum við bara að merkja
og gera allt klárt,“ segir Ágúst um það. Spurður
um umferðartafir, segir Ágúst að ekki hafi verið
mikið um þær. „Það hefur gengið nokkuð vel.
Maður getur kvartað yfir svona heldur miklum
ökuhraða en það eru þessir einstaka óþolinmóðu.“
Morgunblaðið/Eggert
Austasti hlutinn malbikaður
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Samband Íslands og Póllands hefur
orðið sífellt nánara á undanförnum
árum og ýmsar ástæður og tækifæri
eru til þess að dýpka það enn á næst-
unni. Þetta segir Gerard Pokrus-
zyñski, sendiherra Póllands á Ís-
landi, í samtali við Morgunblaðið í
dag.
Talið er að um 26-7 þúsund manns
frá Póllandi séu nú á Íslandi, eða um
7% landsmanna. Margir hafa fest
hér rætur, þó aðrir snúi aftur til Pól-
lands, en þar eru nú nokkur þúsund
manns sem tala íslensku.
Í viðtalinu er einnig mikið fjallað
um erjur Póllands og Evrópusam-
bandsins, þar sem deilt er um hvort
sé rétthærra, pólska stjórnarskráin
eða Evrópuréttur. » 20
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sendiherra Gerard Pokruszyñski.
Tækifæri
til að efla
samstarfið
- Sendiherra Pól-
lands á Íslandi í viðtali
_ Verðhækkanir á fasteignamark-
aði eru enn miklar og virðast kynda
undir verðbólgu. Þetta sýna nýjar
mælingar Hagstofunnar. Sigurður
Hannesson, framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins, gagnrýnir
borgina harkalega og segir hana
bera mikla ábyrgð á því hvernig
verðbólgan hefur þróast. Ekkert
bendi til þess að yfirvöld muni
brjóta mikið land undir nýja byggð
á komandi árum, sem þó sé for-
senda þess að tryggja sveigjanleika
á fasteignamarkaði. Nýr bæklingur
borgarinnar staðfesti að öll áhersla
sé og verði á þéttingu byggðar. »10
Þrýstingur enn á
fasteignamarkaði