Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 28.10.2021, Blaðsíða 76
AF ÓPERUM Þorgeir Tryggvason Segja má að nýhafinn menn- ingarvetur muni gefa okkur ágætt yfirlit um ólíkar leiðir til að koma sígildum óperum til þeirra sem unna því listformi. Og jafnvel að stækka þann þrönga hóp, og þá ekki síður yngja aðeins í hon- um. Í byrjun nóvember hefjast sýn- ingar á ný á hinni ástsælu La Tra- viata eftir Verdi, fyrst í Hörpu en síðan Hofi á Akureyri. Í febrúar bjóða Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenska óperan upp á tónleika- uppfærslu á Valkyrju Wagners. Og nú standa yfir sýningar á Ástar- drykknum eftir Donizetti í Leikhúskjallara Þjóðleikhússins á vegum Sviðslistahópsins Óðs. Þar er allt skorið inn að beini. Fjórir söngvarar, einn píanóleikari og verkið hraustlega stytt. Og – tölum meira um það síðar – sungið á ís- lensku. Þetta er vægast sagt frábærlega heppnað hjá Óði. Það má ekki á milli sjá hvert þeirra nýtur sín best, Ragnar Pétur Jóhannsson (hinn útsmogni skottulæknir Dulcamara), Þórhallur Auður Helgason (hinn ástsjúki en illa blanki Nemorino), Jón Svavar Jós- efsson (montprikið Belcore) eða Sólveig Sigurðardóttir (hin eftir- sótta Adina). Nú eða Sigurður Helgi Oddsson, sem Ragnar Pétur sækir út í sal í upphafi sýningar til að redda málunum við hljóðfærið. Það er afslöppuð en orkurík leik- gleði í öllum framgangi flytjend- anna, og þótt verkið sé vissulega ákaflega karlmiðað og möguleikar til að „fara á kostum“ í skoptöktum séu fyrst og fremst hjá strákunum þá bætir Sólveig það upp með ald- eilis glæsilegum flugeldatónum í sínum glansnúmerum. Ekki það að söngurinn sé almennt neitt minna en stórfínn. Vinna leikstjórans, Tómasar Helga Baldurssonar, er traust þar sem það á við en laus þegar slík tök eru betri. Og þau eru vissulega betri þegar jafn flinkir stuðboltar standa á sviðinu og hér er raunin. Sigurður Helgi Oddsson sá um að búa verkið til flutnings í þessu formi. Og síðast en ekki síst: Sól- veig Sigurðardóttir og Guðmundur Sigurðsson þýða textann svona líka lipurlega. Sem er algert lykilatriði. Hin sérkennilega tregða við að flytja óperur á máli sem áhorfendur skilja (og flytjendur hugsa á og dreymir í) held ég að sé eitt af því sem heldur „óinnvígðum“ áhorf- endum og þeim sem yngri eru í burtu. Verkin virka ekki sem leik- húsverk með framandgervingu ítölskunnar (nú eða rússnesku eða ungversku) milli sviðs og salar. Hér er salurinn með á nótunum, og skemmtir sér eftir því. Og þarf Ástardrykkurinn nokkuð meira en þetta? Þetta er nú ekki merkileg tónlist og dramatískt inni- haldið síst bitastæðara en rauðu ástarsögurnar. Það vekur eiginlega furðu að hornsteinn óperulistar- innar í landinu, Íslenska óperan, hafi fyrir nokkrum árum tjaldað öllu til við að segja þessa tvívíðu sögu. Hló einhver þá? Nema þá til að gefa í skyn að viðkomandi væri með á nótunum í ítölskunni. Í uppfærslu Sviðslistahópsins Óðs fær Donizetti allt sem hann verðskuldar og áhorfendur allt sem þeir þurfa. Fallegan söng, fölskva- lausa leikgleði og aðgang að grín- inu. Halda þessu áfram og hver veit hvað gerist með framtíð óperunnar á Íslandi. Takk fyrir mig. Grín „Í uppfærslu Sviðslistahópsins Óðs fær Donizetti allt sem hann verðskuldar og áhorfendur allt sem þeir þurfa. Fallegan söng, fölskvalausa leikgleði og aðgang að gríninu,“ segir um Ástardrykkinn í Leikhúskjallaranum. Kátlegar kvonbænir » Það er afslöppuð en orkurík leikgleði í öllum framgangi flytjendanna. 76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2021 Stórt glæsihýsi í miðborg Rómar, Villa Aurora sem reist var á 16. öld, verður boðið upp í janúar næstkom- andi. Lágmarksboð er hátt, um 75 milljarðar króna, en skiljanlegt í ljósi þess að húsinu fylgir eina loft- myndin sem einn dáðasti mynd- listarmaður sögunnar málaði, sjálf- ur Caravaggio (1571-1610). Eigandi villunnar undir lok 16. aldar var kardínálinn Francesco Maria Del Monte en hann var mikill stuðningsmaður Caravaggios og safnaði verkum eftir hann. Del Monte réð málarann til að mála loftmynd í gullgerðarkames sitt í villunni og skapaði Caravaggio myndina, sem er 275 cm breið, með olíulitum þar sem hann kunni ekki að gera freskur. Verkið sýnir guð- ina Júpíter, Neptúnus og Plútó og vakti athygli að Caravaggio byggði svip þeirra allra á sjálfum sér. Verðmæti málverks Caravaggios er metið að lágmarki 55 milljarðar króna en í villunni eru verk eftir fleiri kunna listamenn, þar á meðal Guernico. Villan verður seld nú eftir lang- vinnar deilur erfingja prins eins sem átti hana en lést fyrir þremur árum. Unnendum verka Caravagg- ios hefur síðustu ár staðið til boða að skoða loftmálverkið undir leið- sögn einu sinni í mánuði. Einstakt Um þriðjungur loft- málverks Caravaggios. Hann mál- aði sjálfan sig sem rómverska guði. Selja vill- una með verkinu - Eina loftmálverk Caravaggios Hanna María Karlsdóttir og Ólafur Örn Thoroddsen voru gerð að heið- ursfélögum Leikfélags Reykjavíkur (LR) á aðalfundi félagsins fyrr í vik- unni. „Þau hafa bæði verið mikil- vægir þátttakendur og áhrifavald- ar í sögu Leikfélags Reykjavíkur,“ segir í tilkynningu frá Borgarleik- húsinu. Þar er rifjað upp að ferill Hönnu Maríu hjá LR spanni hátt í fjóra áratugi og á þeim tíma lék hún yfir 75 hlutverk m.a. í Djöfla- eyjunni, Þrúgum reiðinnar og Önd- vegiskonum auk þess sem hún leik- stýrði einleiknum Sigrúnu Ástrós sem gekk í þrjú leikár á Litla sviði Borgarleikhússins. Hún hlaut Grímuna sem besta leikkona í aðal- hlutverki 2005 fyrir hlutverk sitt í Héra Hérasyni og tilnefningu fyrir hlutverk sitt í Degi vonar 2007. „Ólafur Örn var um langt skeið einn af hornsteinum Borgarleik- hússins og einn helsti hljóðhönn- uður Leikfélags Reykjavíkur.“ Ólafur réðst til LR við opnun Borg- arleikhússins 1989 og var fyrsta verkefni hans þar hljóðhönnun í verki Ólafs Hauks Símonarsonar, Kjöt, í janúar 1990. Meðal sýninga sem hann hefur unnið við eru Ein- hver í dyrunum, Öndvegiskonur, Harry og Heimir, Jesú litli og Hús Bernhörðu Alba, en fyrir þá sýn- ingu var Ólafur tilnefndur til Grím- unnar fyrir hljóðhönnun. Gleði Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri, Ólafur Örn Thoroddsen, Hanna María Karlsdóttir og Eggert Benedikt Guðmundsson formaður LR. Nýir heiðursfélagar Leikfélags Reykjavíkur SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS MERCEDES-BENZ GLE 500 E 4MATIC 360° myndavél Aðgerðahnappar í stýri AUX hljóðtengi Álfelgur Bakkmyndavél Bluetooth Dráttarkrókur (rafmagns) Filmur Fjarlægðarskynjarar aftan / framan Fjarstýrðar samlæsingar Gírskipting í stýri Hiti í framsætum Hiti í stýri Hraðastillir Hæðarstillanlegt sæti ökumanns LED aðalljós / afturljós / dagljós Leðuráklæði Leiðsögukerfi Loftkæling Lykillaus ræsing / aðgengi Rafdrifið sæti ökumanns Regnskynjari Reyklaust ökutæki Stafrænt mælaborð Stöðugleikakerfi Raðnúmer 397137 Árgerð 2018 Ekinn 56 Þ.KM Nýskráður 6/2018 Næsta skoðun 2022 Sjálfskiptur 7 gírar 334 hestöfl Fjórhjóladrif Verð kr. 8.390.000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.