Morgunblaðið - 28.10.2021, Qupperneq 80
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
Virkir dagar 11-18:30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
Virkir dagar 11-18
s: 522 4500 - www.ILVA.is
FAST SENDINGARGJALD MEÐ
PÓSTINUM HVERT Á LAND SEM ER!
Bordstofudagar-
20%
AF ÖLLUM
BORÐSTOFU-
HÚSGÖGNUM
OG BORÐ-
BÚNAÐI
21. OKT - 1. NÓV
SPAraðu 28.980
Nú115.920
SPAraðu 3.980
Nú15.920SPAraðu 7.980
Nú31.920
TRUE BORÐSTOFUBORÐ
GRÁOLÍUBORIN EIK
CROSS FÆTUR
144.900 kr. NÚ 115.920 kr.
NORRLAND BORÐSTOFUSTÓLL
39.900 kr. NÚ 31.920 kr.
NOAK BORÐSTOFUSTÓLL
19.900 kr. NÚ 15.920 kr.
Alþjóðlega barnakvikmyndahátíðin í Reykjavík hefst
með sýningu á opnunarmyndinni Nellý Rapp: Skrímsla-
spæjari. Sýningin verður í kvöld, fimmtudagskvöldið
28. október, kl. 17 í Bíó Paradís. Börn á öllum aldri eru
hvött til þess að mæta í búningum enda er þema hátíð-
arinnar í ár hrekkjavaka. Veitt verða verðlaun fyrir
besta búninginn. Þetta er í áttunda sinn sem Alþjóð-
lega barnakvikmyndahátíðin er haldin en henni lýkur 7.
nóvember. Ýmsar myndir verða á dagskrá, meðal ann-
ars hin íslenska Birta og gamla góða Beetlejuice.
Skrímslaspæjari og búningakeppni
á barnakvikmyndahátíð
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 301. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
„Árið 2018 var síðasta tímabil þar sem ég keppti og þá
var ég með um 4,7 í erfiðleikaeinkunn. Svo fékk ég
brjósklos og þurfti að róa mig niður en þá nýtti ég tím-
ann og líka tímann í Covid til þess að byggja upp aðeins
meiri styrk. Ég hengdi upp hringi í bílskúrnum þegar
það var ekki hægt að æfa. Allt árið 2019 var ég að
passa mig rosalega mikið,“ segir Jón Sigurður Gunn-
arsson meðal annars í viðtali við Morgunblaðið í dag en
hann hafnaði í 23. sæti á hringjum á HM í áhaldafim-
leikum í Japan á dögunum. »69
Jón Sigurður hengdi upp hringi í
bílskúrnum til að geta æft
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Eftir hálfan mánuð eða 11. nóvember
verður opnuð myndlistarsýning í ís-
lenska sendiráðinu í Lundúnum á
Englandi. Þar verða til sýnis og sölu
18 ný verk eftir Hendrikku Waage
skartgripahönnuð. „Þetta er fyrsta
sýningin í sendiráðinu síðan Covid
byrjaði og í raun fyrsta opinbera
einkasýning mín, en ég málaði verkin
á nýliðnum vikum og mánuðum,“ seg-
ir listamaðurinn.
Hendrikka hefur búið á Englandi
síðan 2004 og á heima fyrir utan höf-
uðborgina. Hún er afkastamikill lista-
maður og fyrir utan skartgripahönn-
un hefur hún samið og gefið út
barnabækur auk þess sem penslar,
blýantar og litir hafa aldrei verið
fjarri. „Ég fékk mikla hvatningu frá
móður minni, sem var listhneigð og
málaði frá unga aldri; ég er líka mjög
listræn og hef teiknað og litað síðan
ég var lítið barn,“ útskýrir hún.
„Samfara hönnuninni hef ég verið í
listnámi í Art Academy of London á
kvöldin og um helgar í nokkur ár og
byrjaði að mála portrettmyndir fyrir
um þremur og hálfu ári eftir mikla
hvatningu frá kennara mínum.“
Fjölhæfnin gerir það að verkum að
Hendrikka þarf að vera mjög skipu-
lögð. „Skartgripir og málverk haldast
í hendur, eru eins og systur eða
bræður í listinni, en ég einbeiti mér
að einu í einu. Ég tek vissa daga í
skartgripahönnunina og mála aðra
daga.“ Hún bætir við að það að skapa
sé mjög gefandi og hún njóti vinnunn-
ar í hvívetna. „Ég fæ sérlega mikla
gleði út úr vinnunni og ég vona að við-
skiptavinurinn fá eins mikla gleði út
úr því sem ég geri og ég fæ við sköp-
unina.“
Vinsælar myndir
Hendrikka segir að myndir sínar
hafi selst vel að undanförnu. „Mynd-
list hefur átt góðu gengi að fagna í
Covid, sem kemur mér kannski ekki á
óvart. Listin gerir okkur kleift að
skoða hvað það þýðir að vera mann-
eskja, að tala og tjá og leiða fólk og
hugmyndir saman. Listin skapar vel-
líðan í daglegu lífi okkar. List gerir
okkur kleift að eiga samskipti úr
fjarska, skapa jákvæðni, þakklæti og
von á meðan Covid-19 stendur. Á tím-
um samfélagslegs óréttlætis og óróa
magnar listin mikilvægar raddir og
skilaboð. Þetta er tíminn til að meta
listir.“
Portrettmyndir af konum eftir
Hendrikku voru til sýnis í þrígang í
gluggum tveggja fataverslana í
Reykjavík um tíma á nýliðnum tveim-
ur árum. „Ég kalla þessar portrett-
myndir „Wonderful Beings“ og þær
eru allar með eitt eyra því óþarfi er
að hlusta á allt,“ segir hún, en mynd-
irnar á sýningunni í sendiráðinu
verða af sama meiði. Fylgjast má
með henni á Instagram og þar má
hafa samband við hana (@hendrikka-
waagearts).
Listin skapar vellíðan
- Fyrsta opinbera myndlistarsýning Hendrikku Waage
Portrett Hendrikka Waage málar konur með eitt eyra, „Wonderful Beings“.