Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.10. 2021 08.20 Litli Malabar 08.25 Blíða og Blær 08.50 Monsurnar 09.00 Tappi mús 09.05 Adda klóka 09.30 Keli 09.35 Angelo ræður 09.45 K3 09.55 It’s Pony 10.20 Mörgæsirnar frá Mada- gaskar 10.40 Ævintýri Tinna 11.05 Are You Afraid of the Dark? 11.50 Friends 12.10 Friends 12.30 Nágrannar 14.20 Augnablik í lífi – Ragn- ar Axelsson 14.50 The Office 15.10 Ireland’s Got Talent 16.00 Patrekur Jamie: Æði 16.20 Draumaheimilið 16.50 Kviss 17.40 60 Minutes 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Gulli byggir 19.50 Animals Reunited 20.35 Dr. Death 21.25 The Sinner 22.15 Animal Kingdom 23.00 Moonshine 23.40 The Third Day ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4 . 93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Ungt fólk og krabba- mein – Stefán Haukur Björnsson Waage 20.30 Uppskrift að góðum degi – Bakkafjörður Þáttur 1 Endurt. allan sólarhr. 15.30 Charles Stanley 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 18.30 Mannamál (e) 19.00 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 19.30 Markaðurinn (e) 20.00 Saga og samfélag (e) Endurt. allan sólarhr. 10.10 Dr. Phil 12.25 Will and Grace 12.45 Speechless 13.10 Carol’s Second Act 13.35 The Good Place 14.00 The Block 14.00 Bachelor in Paradise 15.00 Top Chef 15.45 Það er komin Helgi 17.45 The King of Queens 18.05 Everybody Loves Raymond 18.30 Missir 19.05 The Block 20.10 Extreme Makeover: Home Edition 21.00 The Equalizer 21.50 Billions 22.40 The Handmaid’s Tale 23.30 The Walking Dead 06.55 Morgunbæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Sankti María, sestu á stein. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir og veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Dalvík- urkirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Kventónskáld í karla- veldi. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Ég á lítinn skrítinn skugga. 20.30 Kynstrin öll. 21.20 Nóvember ’21. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Þögnin rofin – Louise Farrenc. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 07.44 Poppý kisukló 07.55 Kátur 08.07 Stuðboltarnir 08.18 Konráð og Baldur 08.31 Hvolpasveitin – Hvolpar bjarga opnunarathöfn- inni/Hvolpar bjarga Ævintýraflóaleikunum 08.54 Skotti og Fló 09.01 Unnar og vinur 09.24 Múmínálfarnir 09.46 Eldhugar – Katia Krafft – eldfjallafræðingur 09.50 Sammi brunavörður 10.00 Attenborough: Furðudýr í náttúrunni 10.25 Danskt háhýsi í New York 10.55 Sagan bak við smellinn 11.00 Silfrið 12.10 Víkingur Heiðar leikur Bach 14.15 Álafoss – Ull og ævintýri 15.10 Meistarinn – Anne Sofie von Otter 15.35 Sjónvarpið – staður stórra drauma 16.50 Tónatal 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Menningin – samantekt 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Landinn 20.20 Dagur í lífi 21.05 Ófærð 21.55 Snilligáfa Picassos 22.45 Illskan 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt- unar á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm- plötuframleiðenda. Kynlífsmarkþjálfinn Kristín Þórsdóttir fræddi hlustendur um BDSM-heiminn í morgunþættinum Ís- land vaknar á föstu- dag en hún stendur nú að rannsóknar- vinnu á alls kyns hlutum sem tengjast kynlífi. BDSM stendur fyrir bindingar, drottnun og sadó- masókistaleiki og tengist í flestum tilfellum kynlífi. Þó ekki alltaf eins og Kristín benti á í þættinum. Þá ræddi Kristín meðal annars við konu sem hefur stundað lífsstílinn í sjö ár en Kristín segir að BDSM snúist að miklu leyti um samþykki og það að virða mörk hvort annars. Þá sagði hún það skipta afar miklu máli að dæma ekki. Viðtalið er í heild sinni á K100.is. „BDSM þarf ekki endilega að snúast um kynlíf“ París. AFP. | Bítlarnir snúa aftur í haust með nýja bók, endurunna loka- plötu og heimildarmynd, sem varpar ljósi á síðustu daga hljómsveitarinnar og er beðið með mikilli eftirvæntingu. „Let It Be“ kom út árið 1970 og hefur lengi verið talin platan, sem markaði slit þessarar sögufrægu hljómsveitar. Það er að hluta til vegna þess að hún var síðasta platan, sem hljómsveitin gaf út, en einnig út af því að í kjölfarið kom út heimild- armynd um gerð hennar þar sem sjá mátti að mikil spenna ríkti á milli hinna fjögurra fræknu. Málið er hins vegar ekki svo ein- falt. „Let It Be“ var í raun tekin upp á undan „Abbey Road“, sem kom út 1969, en henni var stungið upp í hillu í eitt ár vegna þess að hljómsveitin var ekki ánægð með útkomuna. Reyndar var Paul McCartney aldr- ei ánægður vegna þess að upptöku- stjórinn nafntogaði Phil Spector skildi hann út undan þegar verið var að hljóðblanda plötuna. Nú hefur platan verið hljóðblönduð á ný. Þar var að verki Giles Martin, sonur George Martin, sem venjulega var upptökustjóri Bítlanna. Mark- miðið var að komast nær óskum Bítl- anna. Giles Martin viðurkenndi hins veg- ar í viðtali við NME í vikunni að Paul hefði einkum verið ósáttur vegna þess að venjulega hefði hann haft mikið að segja um útsetningarnar, en svo hefði ekki verið hjá Spector. „Hæðir og lægðir“ Framlag nýju heimildarmyndarinnar til sögu Bítlanna gæti þó verið mik- ilvægara. Hún heitir „The Beatles: Get Back“, er í leikstjórn Peters Jacksons, sem leikstýrði Hringa- dróttinssögu, og kemur út í næsta mánuði. Jackson fór í gegnum tugi klukku- stunda af efni, sem ekki var notað í upprunalegi myndinni um gerð „Let It Be“, og þar er öllu bjartara yfir Bítlunum í hljóðverinu. Ringo Starr kann að meta nýju heimildarmyndina. „Það voru hæðir og lægðir, en þrátt fyrir allt – eins og sést í útgáfu Peters Jacksons – skemmtum við okkur, sem aldrei sást [í upprunalegu heimildamyndinni], gleði, fíflagangur og hróp og köll, svona eins og fjórir strákar láta,“ sagði Starr í viðtali við Ultimate Classic Rock. Roger Stormo, ritstjóri The Daily Beatle, sagði að það hefði verið greinileg spenna. Til dæmis hefði George Harrison rokið út í nokkra daga vegna þess að honum fannst McCartney og John Lennon hafa ýtt sér út á kant. „En þeir skemmtu sér um leið og þeir voru reiðir,“ sagði hann við AFP. „Út af margumfjölluðu rifrildi milli George og Paul í upprunalegu mynd- inni hefur fólk gefið sér að þessi tími hafi verið niðurdrepandi, en þannig leit ég aldrei á það. Það var gaman hjá þeim, sérstaklega þegar þeir héldu tónleikana á þakinu.“ Það var hið fræga augnablik þegar hljómsveitin kom óforvarandis fram á þaki höfuðstöðva sinna í miðri Lond- on og reyndist síðasta skiptið, sem hún kom saman. Samtöl úr heimildarmyndinni hafa einnig verið tekin saman í nýrri glansbók. Rokksagnfræðingurinn Michka Assayas sagði að hún myndi reka naglann í kistu þeirrar hug- myndar að hljómsveitin hefði verið að leysast upp þegar „Let It Be“ var gerð. „Ég var fyrstur til að trúa alls kyns goðsögnum á borð við að „Paul og John hötuðu hvor annan og töluðu ekki mikið saman“. En við sjáum af samtölunum að þeir voru mjög nánir […] allt gekk mjög vel í upphafi árs 1969,“ sagði Assayas við AFP og bætti við: „Allar hljómsveitir rífast í hljóðverinu. Þetta var bara áfall [þeg- ar upprunalega myndin kom út] vegna þess að enginn hafði séð þá ríf- ast áður.“ „Húðlatir“ Það gæti einnig verið kominn tími til að endurmeta hver bar sök á að hljómsveitin hætti. Skuldinni hefur oft verið skellt á McCartney þar sem tilkynning hans í apríl 1970 rak enda- hnútinn á tilveru sveitarinnar. Stormo segir að Lennon hafi í raun hringt útfararbjöllunum í september árið á undan. McCartney hafi oft verið kröfu- harðastur og gagnrýnt lagasmíðar Harrisons fyrir opnum tjöldum. Hann hafi hins vegar einnig verið vinnuþjarkurinn í hljómsveitinni og sá sem spilaði í lögum Harrisons á meðan Lennon hélt sig að mestu til hlés. „Ef Paul hefði ekki verið í hljóm- sveitinni hefðum við sennilega bara gert tvær plötur því við vorum leti- haugar,“ sagði Starr nýlega við BBC. „En Paul er vinnualki. Við John sát- um kannski úti í garði að meðtaka grænan lit á tré þegar síminn hringdi og við vissum hvað kæmi: „Heyrðu strákar, viljið þið ekki koma? Förum í stúdíóið!““ Bítlarnir á Kennedy- flugvelli við komuna til New York 1964. AFP BÍTLAR SNÚA AFTUR MEÐ BETRI ENDA Grátur – en líka heilmikill hlátur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.