Morgunblaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 42
Upphaf samstarfsins má rekja til
velgerðarsjóðsins Aurora sem leitt
hefur hjálparstarf víða um heim. Er
sjóðurinn meðal annars með aðset-
ur í Sierra Leone þar sem neyðin
er mikil. „Það er ótrúlega rík og
merkileg handverkshefð í landinu
en framleiðsla hafði að miklu leyti
lagst af og þekkingin að hverfa. Au-
rora ákveður því að leiða saman ís-
lenska hönnuði og handverksfólk
frá Sierra Leone til að koma fram-
leiðslunni í gang aftur, segir Rós-
hildur Jónsdóttir, annar helmingur
Hugdettu um tilurð verkefnisins.
„Ferlið var þó ekki svo einfalt því
fyrst þurfti til dæmis að fá inn
kennara og sérfræðinga til að end-
urræsa keramikverkstæðið sem við
vinnum með. Sama með þorpið þar
sem bastið er framleitt. Þar var
innkoman hjá fólki engin og fólk
blásnautt. Þetta fólk á bókstaflega
ekki neitt en nú er allt í einu komin
framleiðsla í gang aftur sem breytir
öllu,“ bætir Rósa við og segist aldr-
ei hafa trúað því að óreyndu hvað
verkefni á borð við þetta geti miklu
breytt. Langan tíma hafi tekið að
þjálfa handverksfólkið og samskipti
hafi oft og tíðum ferið æði flókin
þar sem enginn var læs á vestræn-
ar vinnuaðferðir, teikningar og ann-
að slíkt. Við þurftum að finna leiðir
til að koma hugmyndum okkar á
framfæri. „Þetta var því töluvert
snúið en útkoman er framar björt-
ustu vonum og það sem meira er að
megnið af andvirði vörunnar rennur
beint til handverksfólksins. Það er
tilgangurinn með þessu öllu saman.
Restin fer svo í flutningskostnað en
það reyndist flókið að flytja vörur
frá Sierra Leone til Íslands.
„Það er erfitt að gera sér grein
fyrir vinnunni að baki hverjum
hlut. Gott dæmi er textílfram-
leiðslan en það þarf að rækta
baðmullina, tína hana, spinna í
höndunum, tína rætur og jurtir til
að lita baðmullina, svo er allt hand-
ofið í smárenningum milli trjáa og
loks er efnið sniðið og saumað.
Þetta er ótrúleg vinna og skapar
atvinnu fyrir ansi marga.
Markaðurinn verður haldinn í
Mengi á Skólavörðustíg um helgina
og jafnframt er hægt að skoða vör-
urnar og kaupa inn á heimasíðunni
Hugdetta.com.
Um helgina verður haldinn markaður í Mengi á Skóla-
vörðustíg þar sem afrakstur samstarfs íslensku hönn-
unarstofunnar Hugdettu við framleiðendur í Sierra
Leone verður til sýnis og sölu. Verkefnið allt er hið
merkilegasta en Sierra Leone er eitt fátækasta ríki ver-
aldar sem státar af ríkri handverkshefð sem hafði að
miklu leyti lagst af eftir áralangar borgarastyrjaldir sem
hafa leikið landið grimmt.
Samvinna Snæbjörn
lærir hér réttu handtökin
við að búa til bastkörfu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Kíktu til okkar í góðan mat og
notalegt andrúmsloft
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–23:00
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
ÓLIN BYRJA Á
MATARKJALLARANUM
18. NÓVEMBER
UPPLIFÐU JÓLIN
Hægeldaður Þorskur
noisette hollandaise, hangikjöt
Hreindýra Carpaccio
trönuber, pekan hnetur,
gruyére ostur, klettasalat
Gljáð Lambafillet
seljurótarfroða, rauðkál,
laufabrauð
Jólasnjór
mjólkur- og hvítsúkkulaði,
piparkökur, yuzu
9.490 kr.
VEGAN JÓ
Vatnsmelónutartar
fivespice ponzu,
lárpera, won ton
Rauðrófu Carpaccio
heslihnetur, piparrót,
klettasalat
Yuzugljáð Grasker
greni, rauðbeður,
kóngasveppir
Risalamande
kirsuber, karamella
7.99
JÓLALEYNDARMÁL
MATARKJALLARANS
6 réttir að hætti kokksins
leyfðu okkur að koma þér á óvart
Eldhúsið færir þér upplifun þar sem
fjölbreytni er í fyrirrúmi
10.990 kr. 0 kr.
J
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
ECCO BELLA
ÞÆGILEG LEÐURSTÍGVÉL MEÐ MJÚKUM INNLEGGJUM
26.995 kr.
St. 37-42
Hugdetta er vöru- og innanhússhönn-
unarfyrirtæki með aðsetur á Norður-
landi. Hjónin Róshildur Jónsdóttir og
Snæbjörn Þór Stefánsson stofnuðu
fyrirtækið árið 2008 og hafa hannað og
framleitt sínar eigin vörur síðan og auk
þess hafa þau tekið að sér verkefni á
borð við innanhússhönnun og arkitekt-
úr.
Bæði Róshildur og Snæbjörn útskrif-
uðust úr vöruhönnun frá Listaháskóla
Íslands árið 2006.
Nokkur af stærstu verkefnum þeirra
hafa verið að hanna og byggja eigin lúx-
usgistingu, bæði Grettisborg í Reykja-
vík og Svörtuborg á Norðurlandi.
Þau hafa líka hannað almennings-
rými af margvíslegum toga, allt frá
skrifstofum, sviðsmyndum, börum og
veitingastað í New York til barnadeild-
ar á sjúkrahúsi svo eitthvað sé nefnt.
Stór hluti af hönnunarferli Hugdettu
hefur farið í hið skemmtilega samstarf
hönnunarhópsins 1+1+1 þar sem hjónin
fá útrás fyrir brennandi áhuga þeirra á
listrænni hönnun. Hefur hönnunarhóp-
urinn vakið mikla athygli og sýnt verk
sín víða um heim.
Hugdetta
Aurora velgerðarsjóður hefur komið að fjölmörgum
þróunarverkefnum síðastliðinn áratug í Sierra
Leone, heillandi landi þar sem fólk af ólíkum trúar-
brögðum býr saman í friði og sátt.
Þar sem Aurora trúir á mátt hönnunar og lista til
þess að auka lífsgæði fólks er markmið sjóðsins að
rækta sköpunarkraft sem flestra. Eitt mikilvægasta
verkefni Auroru undanfarin ár hefur falist í að leiða
saman erlenda hönnuði og handverksfólk í landinu
með þá von í brjósti að samvinnan og hinn gagn-
kvæmi lærdómur muni hlúa að skapandi greinum í
Sierra Leone og mynda þannig jarðveg sem þær ná
að dafna í til langrar framtíðar.
Í Sierra Leone er rík hefð fyrir handverki á borð
við tréskurð, vefnað, batik og körfu- og leirgerð.
Fatasaumur og fatahönnun skipa þar einnig háan
sess. Hönnun í landinu er þó á byrjunarstigi og hafa
mjög fáir hönnuðir hlotið menntun í sínu fagi.
Í upphafi fékk Aurora íslenska hönnuði á borð við
Hugdettu, 1+1+1, AsWeGrow og Kron Kron til sam-
starfs við handverksfólkið í Sierra Leone, en und-
anfarin ár hafa aðrir alþjóðlegir hönnuðir bæst í
hópinn.
Allar vörur sem framleiddar eru í þessu samstarfi
eru framleiddar undir vörumerkinu Sweet Salone.
Salone er heiti Sierra Leone á kríó, sem er eitt af
helstu tungumálunum sem töluð eru í landinu.
„Sweet Salone“ er gælunafn heimamanna á landinu
sínu.
Allar vörurnar eru merktar með sérstökum kynn-
ingarmiða um þá sem komu að framleiðslu og hönn-
un viðkomandi vöru.
Um verkefnið
Mikilvægt Rósa segir að það sé ótrúlegt
hversu mikil áhrif verkefnið hafi haft fyrir
íbúa þorpanna sem þau störfuðu með.
Hönnun sem
breytir lífi fólks
Tímalaus hönnun Hönnun Hugdettu fellur
vel að handverkshefðum Sierra Leone og er
útkoman framar björtustu vonum.
Undurfagrir munir Afrakstur sam-
starfsins eru ótrúlega fagrir hlutir sem
eru í senn fallegir og notadrjúgir.