Morgunblaðið - 04.11.2021, Síða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
BYGG býður þér til starfa
Kranamenn
Byggingarfélagið óskar eftir vönum
kranamanni. Framtíðarstarf í boði.
Upplýsingar veitir Ingi S: 693-7366
ingi@bygg.is
Verkamenn
Byggingarfélagið óskar eftir verkamanni í véla-
og tækjadeild. Framtíðarstarf í boði.
Upplýsingar veitir Guðjón S: 617-3000
gudjon@bygg.is
BYGG byggir á 37 ára reynslu á íslenskum byggingamarkaði.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG)
hefur á undanförnum árum byggt yfir 3.500
glæsilegar íbúðir á almennum markaði. Fyrirtækið
hefur einnig byggt íbúðir fyrir Félag eldri borgara
og húsnæðisnefndir í Reykjavík og Kópavogi.
Hjá fyrirtækinu starfa nú um 160 manns og er
meðalstarfsaldur hár. Öll verkefni fyrirtækisins eru
á höfuðborgarsvæðinu. Hjá fyrirtækinu er öflugt
starfsmannafélag. Traust atvinna í boði.
Sveitarfélagið Langanesbyggð auglýsir eftir rekstrarstjóra til starfa.
Rekstrarstjóri ber ábyrgð á verkefnum sem tengjast rekstri og bókhaldi skrifstofu,
ráðgjöf til stjórnenda varðandi rekstur og eftirlit með nýtingu fjármagns sveitarfélagsins.
Starfið felur í sér ábyrgð ásamt öðrum á tekju- og/eða útgjaldaliðum og fjárhagsramma,
launum og launaútreikningum.
Rekstrarstjóri tekur virkan þátt í stefnumótun er varðar fjárhagslega hagsmuni sveitar-
félagsins.
• Tekur þátt í gerð árlegrar rekstraráætlunar fyrir sveitarfélagið og hefur eftirlit með
framkvæmd hennar.
• Eftirfylgni með rekstri, launakostnaði og innkaupum sveitarfélagsins og deilda.
• Veitir deildarstjórum reglulegar upplýsingar um stöðu rekstrar og upplýsir sveitastjóra
ef deildir fara yfir rekstraráætlun.
• Hefur umsjón með og annast samþykkt reikninga.
• Ber ábyrgð á að launaútreikningar séu réttir.
• Veitir leiðbeiningar til deildarstjóra og samstarfsfólks um framkvæmd launaskráningar
og viðverukerfis sem og frágang launagagna s.s. ráðningarsamninga.
• Ber ábyrgð á yfirferð rekstrarreikninga.
• Annast skjölun og skráningu samninga.
• Annast samantekt gagna og öflun upplýsinga um rekstur.
• Hefur umsjón með tölvukerfi skrifstofu, ráðgjöf og þjónustu við tæknilegan búnað.
• Hefur frumkvæði að því að leitað sé leiða til hagræðingar, um leið og veitt er sem best
þjónusta.
• Tekur þátt í faglegri framkvæmd verkefna á grunni sérfræðiþekkingar sinnar.
• Annast móttöku gesta og símsvörun eins og við á.
Gerð er krafa um haldgóða menntun og góða þekkingu viðfangsefni starfsins.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 468-1220. Einnig er hægt að senda fyrir-
spurnir með tölvupósti á netfangið: jonas@langanesbyggd.is.
Umsóknarfrestur er til og föstudagsins 25. nóvember 2021.
Umsóknir sendist á netfangið: jonas@langanesbyggd.is
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Rekstrarstjóri
Langanesbyggð er öflugt og vaxandi
sveitarfélag með spennandi framtíðar-
möguleika. Á Þórshöfn búa um 400 manns
í fjölskylduvænu umhverfi. Skólinn var
endurnýjaður árið 2016 og er öll aðstaða
og aðbúnaður til fyrirmyndar. Nýr leikskóli
var tekin í notkun haustið 2019. Gott
íbúðarhúsnæði er til staðar og öll almenn
þjónusta er á Þórshöfn. Á staðnum er
gott íþróttahús og innisundlaug og stendur
Ungmennafélag Langaness fyrir öflugu
íþróttastarfi. Í þorpinu er mikið og fjölbreytt
félagslíf. Samgöngur eru góðar, m.a. flug
fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um
Akureyri. Í næsta nágrenni eru margar
helstu náttúruperlur landsins og ótal
spennandi útivistarmöguleikar, s.s. fallegar
gönguleiðir og stang- og skotveiði.
Í Grunnskóla Þórshafnar eru 65 nemendur
í hæfilega stórum bekkjardeildum. Starf-
semi skólans einkennist af kraftmiklu og
framsæknu skólastarfi. Samhliða skól-
anum er rekinn tónlistarskóli og hefð er
fyrir öflugu íþróttastarfi fyrir alla aldurs-
hópa skólans.
Langanesbyggð leitar að fólki á öllum
aldri, af báðum kynjum, með margs
konar menntun og reynslu. Í samræmi
við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar
eru karlar jafnt
sem konur hvött
til að sækja um
störf hjá sveitar-
félaginu.
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára-
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrirtækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagnagrunni eða auglýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningarverkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningarferlið komum við til móts við þarfir
fyrirtækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunnskannanir, hæfnismat eða
starfstengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í samstarfi við
bandaríska mannauðslausnafyrirtækið CEB sem
er í fararbroddi í persónuleikaprófum og öðrum
matstækjum sem eru sérstaklega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika einstaklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri nákvæmni. Persónuleikamatið
OPQ32 og DSI (Dependability & Safety Index)
skimunarprófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuðmáli þegar fyrirtækið á frumkvæðið að
starfslokum. Ráðum býður upp á viðtal við
ráðgjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnumarkaðinn, ráðgjöf varðandi starfs-
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfsleit og atvinnuviðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningarþjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR