Morgunblaðið - 04.11.2021, Síða 64

Morgunblaðið - 04.11.2021, Síða 64
VIÐTAL Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Við Íslendingar höfum á síðustu ár- um eignast sannkallaða stórstjörnu í klassískri tónlist. Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson hefur heillað hinn klassíska tónlistarheim á alþjóðavísu upp úr skónum. Hann hefur nú gefið út fjórar stórar plötur hjá Deutsche Grammophon, elstu og virtustu plötuútgáfu í hinum klass- íska heimi, og komið fram í mörgum af stærstu tónlistarhúsum heims. Leiðin þangað var þó ekki eintóm- ur dans á rósum, það tók hann mörg ár að brjótast fram á alþjóðlegu sviði og óttaðist hann á tímabili að það myndi aldrei takast. En einn daginn þegar Víkingur hélt litla tónleika hjá íslenska sendiráðinu í Berlín mættu átta starfsmenn Deutsche Grammo- phon og þar með byrjaði ballið. Víkingur segir það mikilvægt að halda fast í það hver maður er og ekki leyfa öðrum að skilgreina sig. Það sé alltaf hætta þegar ungur ein- leikari fari í samtarf við svona virt fyrirtæki eins og DG að hann týni því hver hann sé. En Víkingur hefur farið sínar eigin leiðir og nú sýnt sig og sannað nóg til þess að öðlast traust útgáfunnar og fær núna að gera nokkurn veginn það sem hon- um sýnist. „Við erum hrædd við Mozart“ Nýjasta plata hans Mozart & Con- temporaries hefur að geyma, eins og titillinn gefur að kynna, verk eftir Mozart og fimm samtímamenn hans. Platan hefur farið á toppinn á klass- ískum vinsældarlistum víða um heim. „Mér finnst svo gaman að taka eitthvað eins og Bach eða Debussy eða Mozart, eitthvað sem allir hafa skoðun á, og reyna að gera eitthvað nýtt og bjóða þá heim að fólk sé ósammála mér. Það eiga allir sinn Mozart og sinn Bach. Ég tek þessa menn upp því mér finnst ég eiga minn Mozart og minn Bach sem ég held að sé að einhverju leyti nýr og öðruvísi,“ segir píanóleikarinn. „Við erum svo hrædd við Mozart af því hann er svo yfirþyrmandi,“ segir Víkingur og rifjar upp að hann hafi strax sjö ára verið farinn að spila léttustu verkin eftir hann og farinn að heyra sögur af snillingnum Mozart sem hálfpartinn hræddu hann. Þegar hann var átta ára spil- aði hann sónötu hans í C-dúr sem er að finna á plötunni og var það í fyrsta skipti sem Víkingur upplifði það að missa sjálfstraustið í píanó- leiknum. „Ég var rosalega sjálfs- öruggt barn með píanóleikinn, fannst ég bara bestur á píanó. En svo spilaði ég Mozart og var með þessa hugmynd um hann sem tón- listarguð. Ég man að mér fannst ég ekki geta spilað á píanó lengur, fannst allt lélegt. Þetta var í fyrsta sinn sem ég var óánægður með sjálf- an mig í tónlistinni og ekki í síðasta sinn. Þessi hugmynd um Mozart er svo yfirþyrmandi og mig langaði að reyna að afbyggja það fyrir sjálfum mér.“ Víkingur heldur því fram að Moz- art hafi haft að geyma miklu fleiri hliðar en bara undrabarnið og snill- inginn. „Þeim mun meira sem þú kynnist Mozart því meira elskarðu hann og þykir vænt um hann sem manneskju af því hann var ein mesta manneskja sem uppi hefur verið. Hann var ekkert fífl, hann var ótrú- lega djúpur og brilljant maður með stórar tilfinningar.“ Á plötunni einblínir Víkingur á síðustu tíu árin í lífi Mozarts þegar til urðu hans bestu verk að mati píanóleikarans. „Þar gjörbreytist hann sem tónlistarmaður. Mozart er ekki lengur undrabarnið og þarf að sanna sig upp á nýtt. Hann breytir músíkinni sinni, hún hafði átt gleðja á einhvern einfaldan hátt en þarna verður hún dekkri og dramatískari. Ef hann hefði dáið tíu árum fyrr þá væri hann ekki Mozart í dag, hann væri stórkostlegt tónskáld en miklu minni spámaður.“ Besta fjárfesting þjóðarbúsins En af hverju velur Víkingur að hafa verk eftir fimm samtíma- tónskáld Mozarts með á plötunni? „Til þess að sýna hvað hann var lif- andi og hvað hann elskaði líka verk annarra. Það eru margir samtíma- menn sem eru frábærir sem gleym- ast af því skuggi Mozarts er svo stór. Mig langaði að minna á þá aftur en á sama tíma sýna að Mozart er samt Mozart og að það er ástæða fyrir þessum stóra skugga. Til þess að velja þessi fimm tónskáld þá spilaði ég í gegnum öll píanóverk sem ég fann frá þessum tíma. Bara öll. Eftir endalausa úrvinnslu endaði ég með þessa plötu.“ Víkingur mun leika þrenna út- varpi og sjónvarpi. „Mér finnst bara svo gaman að tala um tónlist. Það eru mjög margir listamenn í öllum geirum listarinnar sem líta niður á svona miðlun. Ég lít ekki á þetta sem kvöð eða skyldu. Það að nota orð um tónlist getur verið mjög skapandi, mjög listrænt. Það getur verið mjög mikil tjáning í því. Það getur oft ver- ið jafn skapandi að spila á píanó og að velja réttu orðin um mann eins og Mozart. Mér finnst það gefandi.“ Kvöldið fyrir fyrstu Mozart- tónleikana, þann 18. nóvember, mun Víkingur spila einleik með Sinfóní- unni. Þar verður fluttur konsert eft- ir breska samtímatónskáldið Thom- as Adés. Víkingur segir sjálfur að konsert þessi sé „alveg hrikalega stór, flókinn og magnaður“ og þykist hann viss um að Adés verði eitt af þeim tónskáldum sem muni „lifa sjálfan sig“. Víkingur er almennt duglegur að flytja tónlist samtíma- tónskálda og hefur unnið með ýms- um virtustu núlifandi tónskáldunum. Hann segir það gefa sér mikið. Erfitt að vera í burtu Síðustu ár hefur Víkingur verið á stöðugum þeytingi milli landa enda er það mikilvægur hluti starfs hans að flytja tónlist í hinum ýmsu tón- listarhúsum, ýmist einn eða með virtum hljómsveitum og hljóm- sveitarstjórum. Til dæmis á hann að spila um tuttugu tónleika víðs vegar um heim í janúar. Lífið getur þess vegna verið heljarinnar púsluspil. „Það bara gengur einhvern veg- inn. Það er best að hugsa ekki um það,“ segir hann og bætir við að það sé mikið á konu hans, Höllu, lagt. „Við erum með tvo stráka, fimm mánaða og tveggja og hálfs. Það er ekkert grín. Það hefur ekki verið mikið sofið á mínu heimili svolítið lengi og það er náttúrulega svaka- legt að hún sé ein heima með þá þeg- ar ég er í svona löngum túrum. Það er eins gott að við erum á Íslandi og með foreldra sem eru hress og spræk öllsömul. Guð blessi ömmur og afa og Guð blessi mæður, en sennilega ekki pabba sem eru alltaf í útlöndum að spila.“ Víkingur segir að það sé mjög erf- itt að vera svona mikið í burtu frá fjölskyldunni og þess vegna sé hann svolítið að reyna að endurskipu- leggja líf sitt þannig að hann spili þéttar en hafi lengri tíma heima á milli. Það sé bæði mikilvægt til þess að geta sinnt föðurhlutverkinu en líka til þess að geta endurnýjað sig sem tónlistarmaður. „Það er rosa- lega erfitt að gera þessar plötur og alla undirbúningsvinnuna og vera svo líka alltaf í flugvél og spila alla tónleikana.“ Við það bætist mórall- inn yfir því að vera ekki nógu góður faðir og ekki nógu mikið á staðnum og þegar hann kemur heim þá er það númer eitt að sinna því hlutverki. En hann getur aldrei einbeitt sér að því algjörlega því píanóleikur er þess konar íþrótt að maður verður að halda sér í ákveðnu líkamlegu formi sem hann segir að komi ekki nema með því að verja ótrúlega miklum tíma við hljóðfærið. Víkingur hefur náð nokkurn veg- inn öllum þeim markmiðum sem hann hafði einsett sér að ná fyrir fer- tugt. Eitt af þeim var til dæmis að gefa út plötu hjá Deutsche Gram- mophon. „Þegar maður nær þessum markmiðum þá áttar maður sig á því hvað þau skipta í raun litlu máli. Þegar maður verður foreldri breyt- ist margt, þá skiptir mestu máli að halda sér lifandi og hamingjusömum fyrir synina, til þess að geta alið þá upp og stutt þá. Það hlýtur að vera markmiðið og það er alls ekki sjálf- gefið að það markmið náist.“ Víkingur mun leika Mozart fyrir áskrifendur Morgunblaðsins á stutt- um tónleikum sem verða aðgengileg- ir á vefnum mbl.is frá kl. 17 til 22 á sunnudag, 7. nóvember. Morgunblaðið/Einar Falur Píanóleikarinn „Hann var ekkert fífl, hann var ótrúlega djúpur og brilljant maður með stórar tilfinningar,“ segir Víkingur um Mozart. Hér er hann við upptökur á efni í samstarfi við Morgunblaðið sem birtist á mbl.is á næstunni. Ver ótrúlegum tíma við hljóðfærið - Nýjasta plata píanóleikarans Víkings Heiðars Ólafssonar Mozart & Contemporaries sýnir nýja hlið á undrabarninu Mozart - Heldur útgáfutónleika í Hörpu - Vill verja meiri tíma með fjölskyldunni gáfutónleika í Hörpu, 19., 20. og 21. nóvember. „Mér finnst erfiðast og skemmtilegast að spila á Íslandi,“ segir hann. „Það ætti að vera auð- veldast en er það ekki.“ Hann mun á þessum tónleikum vígja nýjan flygil Hörpu og segir það ótrúlega spennandi. Því var slegið upp í fréttum fyrr á árinu að Víkingi þætti flygillinn í Hörpu ekki nógu góður fyrir sig en raunin er sú að líf- tími flygla í fremstu röð er ekki mik- ið lengri en tíu ár. „Þá verður hann strax mýkri, dekkri og dulúðugri.“ Þau Svanhildur Konráðsdóttir for- stjóri Hörpu sannfærðu ríkisstjórn- ina um að festa kaup á nýju hljóð- færi og segir Víkingur ríkisstjórnina eiga hrós skilið fyrir það. „Ég vil meina að svona flygill sé bara besta fjárfesting sem þjóðar- búið getur gert. Þetta kostar um 25 milljónir eins og einn ráðherrajeppi en það er bara einn ráðherra sem nýtur hans hverju sinni en flygillinn í Hörpu hefur glatt svoleiðis millj- ónir gesta. Þetta er mikill peningur fyrir mig og þig en þetta er ekkert miðað við hvað fæst fyrir hann, bara fegurðin og það sem hann hefur gert fyrir húsið.“ Víkingur er óvenjulegur píanó- leikari að því leyti að hann talar við salinn á milli þess sem hann flytur verkin. „Ég segi nokkur orð um það sem ég er að spá og deili einhverri sýn á Mozart sem ég vona að hafi einhver áhrif á það hvernig fólk upp- lifir hann. Þetta verða vel valin orð, enginn fyrirlestur.“ Víkingur Heiðar hefur verið mjög ötull við að miðla sýn sinni á tónlist, bæði í viðtölum og á sviði, en einnig með eigin dagskrárgerð bæði í út- 64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021 13.995 kr. St. 36 - 40 / 2 litir KRINGLAN - SKÓR.IS ON THE GO TEMPO VATNSHELDIR DÖMUSKÓR MEÐ GRIPGÓÐUM GOODYEAR SÓLA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.