Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Page 12
INNLIT 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.11. 2021 Í búðin er staðsett á annarri hæð hússins en á fyrstu hæð- inni rekur tískuhúsið Chanel verslun. Þetta er á sama stað og fyrsta hattabúð tískuhússins var til húsa. Stiginn upp í íbúðina er sögufrægur en speglarnir sem prýða veggina þóttu framandi þegar þeir voru settir upp á sín- um tíma. Speglarnir og stigagangurinn upp í íbúðina endur- spegla þó ekki íbúðina sjálfa. Á meðan stigagangurinn er glam- úrinn holdi klæddur er íbúðin notaleg. Þar ríkir ákveðið „zen“ sem fólk í nútímasamfélagi er oft að reyna að framkalla heima hjá sér en nær sjaldnast. Anganin, stemningin og uppröðun á húsgögnum gerir það að verkum að þig langar helst að leggjast upp í sófa, grípa bók úr stóru bókahillunni á bak við sófann eða láta þig dreyma. Þegar mér var boðið í heimsókn nýtti ég hverja sekúndu til að grandskoða umhverfið og voru öll skilningarvit á yfirsnúningi. Munaðarlaus 12 ára stúlka Gabrielle Chanel, eða Coco eins og hún var kölluð, átti skjól á þessum stað og þangað var ekki hverjum sem er boðið. Hún fæddist 1888, lifði í 88 ár og kvaddi í janúar 1971. Það sem vekur athygli er að hún giftist aldrei og eignaðist ekki afkvæmi. Hún naut þó heilmikillar karlhylli og var eftirsótt hjá vel tengdum og ríkum mönnum. Það eru líklega ótal ástæður fyrir því að ekkert ástarsamband endaði með hjónabandi, en ætli stærsta ástæðan Hér er Coco Chanel ásamt dans- aranum Jacques Chazot. Myndin var tekin eftir að hún sýndi vor og sumarlínu sína í París í janúar 1968. Á myndinni er hún klædd í hina klassísku Chanel-dragt, með belti og tvö síð hálsmen. Þessi stíll ein- kenndi hana öll hennar fullorðinsár. STF / AFP Íburðarmikil íbúð Coco Chanel í París Íbúð Gabrielle Chanel við 31 rue Cambon í París er töfrandi. Stór húsgögn, þykk teppi, speglar og gulir veggir eru í aðalhlutverki ásamt ógrynni af skrautmunum og kínverskum veggklæðningum. Í þessari fjögurra herbergja íbúð gaf hún ímyndunaraflinu lausan tauminn og lagði grunn að næstu stór- sigrum tískuheimsins. Það er eftirsóknarvert að koma í íbúð tískuhönnuðar- ins sáluga en þangað kemst fólk ekki inn nema því sé boðið sérstaklega. Marta María Winkel Jónasdóttir mm@mbl.is Aðalstofan státar af stórum gulum sófa sem er extra djúpur. Í þessum sófa lá Chanel og las bækur og hugsaði um lífið. Í kringum sófann eru borð með ótal smáhlutum sem höfðu tilfinningalegt gildi fyrir hana.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.