Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Side 14
INNLIT
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.11. 2021
sé ekki sú að hún missti móður sína 12 ára gömul. Það markaði
tímamót. Í stað þess að alast upp hjá ekklinum föður sínum gafst
hann upp og sendi hana á heimili fyrir munaðarlaus börn. Þar
átti hún dapurlega æsku. Það er ekki ósennilegt að þessi ár hafi
mótað hana og gert það að verkum að hún gerði hlutina á sinn
hátt, ekki eftir uppskrift annarra.
31 rue Cambon
Á 31 rue Cambon réð Chanel ríkjum og hagaði sér eins og hana
sjálfa lysti. Innismókurinn var ekki búinn að skila skömminni og
til þess að íbúðin ilmaði ekki eins og gamall öskubakki úðaði hún
Chanel N°5 yfir viðarkubbana sem hún brenndi í arninum. Þetta
var náttúrulega fyrir tíma ilmkertanna en í dag er þess gætt að
ilmurinn af þessu þekktasta ilmvatni heims finnist vel þegar stig-
ið er inn í íbúðina.
Þótt Chanel ætti þessa glæsilegu íbúð á besta stað í París þá
gisti hún á Ritz-hótelinu í 34 ár. Íbúðin var því eins konar griða-
staður þar sem hún hlóð batteríin, tók á móti fólki og lét hugann
reika. Las bækur og hugsaði.
Sótti innblástur til Kína
Veggir forstofunnar eru klæddir með kínverskum viðarplötum
sem eru skreyttar með drekum og táknum sem oft hefur mátt sjá
bregða fyrir í hönnun Chanel. Hún var hrifin af munum frá Kína
og sjást þeir víða í íbúðinni. Í forstofunni er hvíti stóllinn sem
sem Chanel var mynduð í 1937. Um er að ræða antik-stól með
hvítu satín-áklæði. Eftir myndatökuna hvarf stóllinn og enginn
hafði hugmynd um hvað hefði orðið af honum.
Það var svo ekki fyrr en á níunda áratugnum að Karl Lag-
erfeld heitinn, einn helsti hönnuður Chanel í gegnum árin, fann
stólinn á uppboði á Monte Carlo og þá var honum komið fyrir í
anddyri íbúðarinnar. Síðan þá hefur stóllinn verði notaður í aug-
lýsingar fyrir Chanel og þykir hann kalla fram stemningu liðins
tíma.
Allt af öllu
Hlutir úr ólíkum áttum búa til heillandi heim. Chanel hafði mik-
inn áhuga á Kína þótt hún hefði aldrei komið þangað og sótti í
hluti þaðan eins og kínversku klæðningarnar á veggjunum segja
til um. Hún dýrkaði líka Feneyjar á Ítalíu eftir að hafa ferðast
þangað í fyrsta skipti 1920 og svo kunni hún að meta verk frá
Grikklandi til forna og Egyptalandi.
Í íbúðinni má sjá risastórar bergkristalsljósakrónur og bar-
okkspegla sem fara vel við stórt og ríkulegt bókasafn Chanel. Í
aðalstofunni er stór ljósgulur flauelssófi sem Chanel naut þess að
liggja í og lesa. Það fór vel um hana í sófanum því sófinn er extra
djúpur. Bækurnar í hillunum á bak við sófann eru af ýmsum
toga. Það er óvenjulegt að sjá grunnar bókahillur á bak við sófa
Stiginn upp í íbúðina
er sögufrægur. Hann
endurspeglar þó ekki
stemninguna sem rík-
ir í íbúðinni sjálfri.
Fyrir ofan arininn er risastór stytta
af Maríu mey sem fer ágætlega við
spegilinn og veggklæðningarnar.
Chanel var mjög hrifin af munum frá
Kína, Feneyjum og Grikklandi.
Hér má sjá borðstofuna. Borðstofuborðið er lítið
með pláss fyrir sex manneskjur. Á bak við er hins-
vegar íburðarmikið marmaraborð á fótum sem
eru listaverk. Fyrir ofan eru speglar. Takið eftir
hvernig öllu er raða upp þannig að það speglist.