Morgunblaðið - 09.12.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
Jón Magnússon hugleiðir hvers
vegna orkufyrirtækin séu
uppiskroppa með sína vöru.
Forstjórinn segi að vantað hafi
rigningu. Það minnir Jón á að
Gunnar Thoroddsen sagði eitt
sinn að ekki yrði orkuskortur hér
á meðan það rigndi:
- - -
Úrkoma sunn-
anlands hefur
verið með mesta
móti allt þetta ár
og þó þurrkar hafi
verið á Norðaust-
urlandi, þá ætti
það ekki að setja
orkukerfið á hlið-
ina og leiða til skömmtunar á raf-
magni.
Hvað þá heldur þegar Lands-
virkjun gengst aftur og aftur fyr-
ir því að kanna hagkvæmni þess
að selja raforku úr landi á grund-
velli regluverks EES, sem mundi
að sjálfsögðu leiða til mun hærra
orkuverðs til neytenda á Íslandi
og enn frekari orkuskorts.
- - -
Einfalda staðreyndin er sú, að
VG hafa staðið gegn virkj-
unum í landinu. Mikil verður
ábyrgð Framsóknar- og Sjálf-
stæðisflokks, ef þeir láta VG ráða
för í þessu efni.
- - -
Núna þarf að hrinda í fram-
kvæmd vinnu við vatnsafls-
virkjanir, sem allra fyrst, t.d. það
sem er óvirkjað í neðri hluta
Þjórsár.
Ódýrar hagkvæmar virkjanir,
sem valda litlu raski. Sérkenni-
legt að VG skuli almennt vera á
móti vistvænni orkuöflun með
vatnsaflsvirkjunum.
- - -
Það rignir nóg á Íslandi og það
er ekki rigningunni að kenna
heldur mistökum í stjórnkerfinu
að það þurfi að skammta rafmagn
í landinu eða nota olíu til orku-
framleiðslu í stað vatnsafls.“
Jón Magnússon
Ber blak af regninu
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Áfallinn kostnaður vegna pálmatrjáa í Vogabyggð
er rúmar 10 milljónir króna. Þetta kemur fram í
svari starfandi sviðsstjóra menningar- og ferða-
málasviðs Reykjavíkur við fyrirspurn áheyrnar-
fulltrúa Miðflokksins.
Í svarinu kemur fram að miðað við nóvember sl.
sé kostnaður vegna undirbúnings fyrir verkefnið
samtals krónur 8.865.858. Innifalinn er kostnaður
vegna forvals, kynningarfunda, dómnefndar og
þóknunar til listamanna. Kostnaðaráætlun var um
9,2 milljónir. Að auki hefur fallið til kostnaður
vegna raunhæfismats, sem framkvæmt var af um-
hverfis- og skipulagssviði, krónur 1.242.250. Sam-
tals eru þetta krónur 10.108.108.
Pálmatré, tillaga þýska listamannsins Karin
Sander, bar sigur úr býtum í samkeppninni um
útilistaverk í Vogabyggð. Niðurstaða dómnefndar
var kynnt í janúar 2019. Verkið gerir ráð fyrir að
tveimur pálmatrjám sé komið fyrir í stórum turn-
laga gróðurhúsum og að frá þeim stafi ljós og
hlýja. Kostnaður við verkefnið var áætlaður 140
milljónir króna.
Í október sl. var upplýst að verkið hefði staðist
raunhæfismatið sem framkvæmt var. Hins vegar
var ákveðið, í samráði við listamanninn, að fækka
fyrirhuguðum pálmatrám í Vogabyggð úr tveimur
í eitt. Kostnaðurinn verður því væntanlega lægri
en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir . sisi@mbl.is
Kostnaður við pálma 10 milljónir
Vogabyggð Pálmatréð verður inni í glerhólki.
Seltjarnarnesbær og Ás styrkt-
arfélag hafa gert með sér vilja-
yfirlýsingu um samstarf um rekst-
ur nýs búsetukjarna fyrir fatlað
fólk sem verður reistur við Kirkju-
braut 20. Seltjarnarnesbær mun
eiga húsið og Ás styrktarfélag
taka að sér rekstur hússins og
þjónustu við íbúa. Ásgerður Hall-
dórsdóttir bæjarstjóri, Bjarni
Torfi Álfþórsson, formaður fjöl-
skyldunefndar, og Þóra Þórarins-
dóttir, framkvæmdastjóri Áss
styrktarfélags, tóku fyrstu skóflu-
stunguna að búsetukjarnanum í
gær.
Í búsetukjarnanum verða sex
íbúðir fyrir fatlað fólk ásamt
starfsmannarými. Heildarstærð
hússins verður 553 fermetrar. Eins
og kom fram í Morgunblaðinu á
dögunum átti Húsasmíði ehf.
lægsta tilboð í byggingu hússins
sem áætlað er að muni kosta 293
milljónir króna. Gert er ráð fyrir
að framkvæmdatími verði um 12
mánuðir og að fyrstu íbúar flytji
inn í febrúar 2023. hdm@mbl.is
Fyrsta skóflustungan
að nýjum búsetukjarna
Tímamót Fulltrúar bæjarstjórnar og Áss styrktarfélags munda skóflurnar.
Kjarni Nýja byggingin við Kirkju-
braut verður um 550 fermetrar.Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15