Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 Vetrarfrí í Hálöndunum Höf. Sarah Morgan ;$AQ 0G#BKE =$G"( .BENG#A%N6SB Frostrós =M#Q ;D6$ 3 )LB$E =(FF$B ;$AQ =SGFSB )E*B >?OE(ADE Þögli sjúklingurinn =M#Q JG$2 :S&!($GS%$ Les. Björn Stefánsson Dansarinn =M#Q /AH(B >?OF?E%AADE Les. Daníel Ágúst Haraldsson Arnaldur Indriðason deyr =M#Q IB("S 7+GG )S"?BO(BADE Les. Björn Stefánsson Farangur =M#Q 5("E!$SO?B >$A@A%N6SB ;$AQ JEP@( IBS$F Nemesis =M#Q <D 9$A'L ;$AQ 8BBS =?"SEE 0"KA@AADE Fíkn =M#Q 5(EE4$S" IDB" )S"?BO(B%N6SB ;$AQ ISBE( 7R@?BA%N6SB- =(B(G%?B JBS )@$#+EAADE vi ka 48 Sjö systur =M#Q ;?&SE%( 5SG$1 ;$AQ :(B"BR@ .BENG#A%N6SB Kastaníumaðurinn =M#Q )LB$E )4$SA@B?C ;$AQ ,?BPO?B IG*B <N!(EEA%N6SB TOPP 10 vinsælustu hljóðbækur á Íslandi. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hátt bar á því herrans ári 1971 að Íslendingar eignuðust geirfugl. Svo vildi til að í mars umrætt ár bauðst slíkur fugl uppstoppaður á uppboði hjá Sotheby’s í Lundúnum og var sagður sá síð- asti í einkaeigu sem til væri í heiminum. Hrundið var af stað landssöfnun fyrir kaupunum og voru undir- tektir hinar bestu. Svo fór að á uppboðinu náðu Íslendingar geirfuglinum, fyrir tæp- ar tvær milljónir króna. Fram- reiknað til núvirðis eru það um 20 milljónir króna, en kaupverðið var ekki langt frá því sem söfnunin og samtakamátturinn hafði skilað. Forgöngumaður í verkefni þessu var Valdimar Jóhannesson, þá blaðamaður á Vísi og seinna þekktur baráttumaður í ýmsum þjóðfélags- málum. Þeir Valdimar og Finnur Guðmundsson fuglafræðingur voru á uppboðinu ytra sem fram fór 4. mars. Daginn eftir komu þeir svo heim með fuglinn sem Náttúru- fræðistofnun Íslands fékk til um- sjónar og varðveislu. Veiddur við Hólmsberg Geirfugl Íslendinga er talinn hafa verið veiddur árið 1821 við Hólms- berg á Miðnesi fyrir utan Keflavík. Þar var á ferð danskur leiðangur með þátttöku F. Faber fuglafræð- ings, A.M. Mörch grasafræðings og F.C. Raben lénsgreifa. Ferðin var, samkvæmt upplýsingum frá Nátt- úruminjasafni Íslands, farin að und- irlagi Rabens greifa í þeim tilgangi að ná í geirfugl til að stoppa upp og bæta í fuglasafn hans. Fram að upp- boðinu í London var fuglinn í eigu fjölskyldu Rabens greifa á óðali hennar í Aaholms-kastala á Lálandi í Danmörku. Aðeins um 80 geirfuglar og 75 geirfuglsegg eru til í söfnum erlend- is og eru flestir gripirnir fengnir frá Íslandi. Meðan uppi stóð var geirfuglinn allt að 70 sentimetra hár, vó um fimm kíló og var ófleygur. Í svip líkt- ist geirfuglinn mörgæsum, sem best eru þekktar frá Suðurskautslandinu. Geirfuglanir voru hins vegar ann- arrar ættar og héldu sig á Norður- Atlantshafinu, nærðust einkum á fiski og voru góðir sundfuglar. Tveir síðustu geirfuglarnir voru drepnir í Eldey 3. júní 1844 og egg þeirra brotið. Geirfugl Íslendinga er enn sem fyrr hjá Náttúrufræðistofnun Ís- lands, og er í geymslu í húsi stofn- unarinnar við Urriðaholt í Garðabæ. Einhver minnist þess ef til vill að lengi var geirfuglinn einn gripa í sýningarsal safnsins við Hlemmtorg í Reykjavík. Þar var alveg frá því Geiri, eins og gárungarnir kölluðu gripinn, kom uppstoppaður til lands- ins árið 1971 og fram til 2007 hægt að líta hann þar. Eftir það var geir- fuglinn settur í geymslu í átta ár. Var næst hafður til sýnis á vegum Náttúruminjasafns Íslands, systur- stofnunar Náttúrufræðistofnunar, á sýningunni Sjónarhorn – ferðalag um íslenskan myndheim sem var í Safnahúsinu við Hverfisgötu frá vori 2015 fram á mitt síðasta ár. Annars vegar var um sérstaka kjörgripasýn- ingu að ræða og hins vegar sérsýn- inguna Geirfugl † pinguinus imp- ennis. Aldauði tegundar – síðustu sýnin sem unnin var í samvinnu við listakonuna Ólöfu Nordal og stóð í tvö ár fram á 2017. Heimkynni við sjó Næsti viðkomustaður hins upp- stoppaða íslenska geirfugls verður í nýjum höfuðstöðvum Náttúru- minjasafnsins á Seltjarnarnesi sem opnaðar verða 2023. Í sýningahaldi þar verður fjölbreytt lífríki hafsins í brennidepli og viðeigandi að hafa geirfugl þar, enda átti hann heim- kynni sín við sjó. „Saga geirfugla er þekkt og þeir hafa um margt orðið táknmynd dýra í útrýmingarhættu. Þessari sögu verður að halda til haga til að læra af,“ segir Hilmar J. Malmquist forstöðumaður Náttúru- minjasafnsins. Hann telur að auk skefjalausara veiða, þar sem safn- arar áttu í hlut undir það síðasta, kunni náttúrulegar aðstæður að nokkru að hafa ráðið því að geirfugl- inum var útrýmt. „Útrýming geirfuglsins er sorgleg saga sem vert er að muna,“ segir Hilmar. „Svo sanngirni sé gætt verður þó að halda því til haga að fyrir um 200 árum var þekking á náttúrunni allt önnur en nú. Samt er það svo í dag að ættingjar geirfugls- ins; haftyrðill, stuttnefja og fleiri svartfuglar, eiga undir högg að sækja til dæmis vegna veiða og lofts- lagshlýnunar. Sá veruleiki vekur okkur þó vissulega til umhugsunar um hver lærdómurinn af sögunni hafi verið.“ Geirfuglinn í geymslunni - Veiddur fyrir 200 árum - Uppboð 1971 - Táknmynd útrýmingarhættu Kjörgripur Geirfuglinn er í plastkassa í geymslum Náttúrufræðistofnunar Íslands, en fer á sýningu á næstu árum. Á mynd til hægri er Finnur Guðmundsson fuglafræðingur með gripinn, eftir að hann var heimtur í London 1971. Hilmar J. Malmquist Efnt var til hátíðar þegar íbúða- kjarni fyrir einstaklinga með sér- tækar þjónustuþarfir á Húsavík var afhentur. Íbúarnir flytja inn í íbúðir sínar í upphafi nýs árs. Norðurþing hefur í allmörg ár haft áhuga á að byggja íbúða- kjarna fyrir fatlaða en erfitt hefur reynst að koma framkvæmdinni fyrir í fjárhagsáætlun sveitarfé- lagsins. Á síðasta ári var svo stofn- uð húsnæðissjálfseignarstofnunin Vík til að halda utan um byggingu íbúðakjarnans og rekstur hans, að því er fram kemur á vef Norð- urþings. Byggingin gekk vel Samið var við Trésmiðjuna Rein um að byggja húsið, eftir útboð, og hófust verklegar framkvæmdir í vor. Húsið er að mestu tilbúið en lokafrágangur lóðar bíður betri tíð- ar. Við athöfnina afhenti Sigmar Stefánsson, framkvæmdastjóri Tré- smiðjunnar Reinar og bygginga- stjóri hússins, Drífu Valdimars- dóttur, starfandi sveitarstjóra Norðurþings, lyklavöldin. Drífa af- henti strax Hróðnýju Lund félags- málastjóra lyklana. Lokin á þess- um lyklaskiptum voru þau að Hróðný afhenti nýjum íbúum lykla að sínum íbúðum. Sex íbúðir eru í íbúðakjarnanum sem er við Stóragarð 12 á Húsavík. Auk þess eru vegleg sameiginleg rými og aðstaða fyrir starfsfólk. Húsið er alls 479 fermetrar að flat- armáli. Ragnar Hermannsson, byggingarfræðingur hjá Trésmiðj- unni Rein, hannaði mannvirkið. Fram kemur á vef Norðurþings að kostnaður við húsið er rétt tæp- ar 200 milljónir króna. Hluti Norð- urþings í stofnkostnaði verður 35- 40 milljónir og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Jöfn- unarsjóður sveitarfélaga leggja til tæpar 50 milljónir. Vík fær einnig lán hjá HMS. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Íbúðakjarni Húsið er hið vistlegasta og stendur við Stóragarð á Húsavík. Flytja inn í nýjan íbúðakjarna á Húsavík - Hátíð haldin í tilefni afhendingar íbúðanna sex Íbúar Sex íbúðir eru í húsinu. Þeir voru ánægðir að fá lyklana að nýju heim- ilunum og fóru strax að koma sér fyrir. Þeir flytja inn eftir áramót.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.