Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 Elírnós Líndal elinros@mbl.is Ása Tryggvadóttir keramikhönn- uður hefur rekið verkstæði og gall- erí í fallegu gömlu húsi við Vatns- stíg 3 síðastliðin sjö ár. Ása er þekkt fyrir hvannarstilkana sína úr hvítu postulíni sem eru vinsælir núna. Hún er orðin spennt fyrir jólunum þótt undirbúningurinn fyrir þau sé með öðru sniði en áður. Hafa prófað að vera á Spáni um áramótin „Við hjónin bjuggum á Raufar- höfn okkar fyrstu búskaparár með strákunum okkar þremur þar sem við sköpuðum okkar hefðir. Við vor- um með rjúpur sem maðurinn minn veiddi en hvorugt okkar ólst upp við það. Á meðan hann eldaði rjúpurnar fór ég í messu. Ég var í sóknarnefnd þannig að ég fór auðvitað í kirkju. Ég hélt því svo áfram þegar við fluttum á Seltjarnarnesið og finnst það alltaf svo jólalegt.“ Hvernig verða jólin á þessu ári? „Við ætlum að prófa að vera á Spáni, ef það verður í lagi vegna kórónuveirufaraldursins. Við höf- um verið á Spáni um áramót og hefur það verið mjög gaman. Spánverjar eru mjög hressir um jól og áramót. Við borðuðum á huggulegum veitingastað á gaml- árskvöld, sem var fallega skreytt- ur, við fengum alls konar grímur og flautur, svo var brjálað stuð hjá hljómsveitinni, dansað og hlegið.“ Ása er ekkert sérstaklega mikil jólakona í dag að eigin sögn en hefur gaman af því að gera fínt í kringum sig á jólunum. „Ég kann að meta að leggja fal- lega á borð og skreyta smávegis. Það er samt alltaf að minnka áhuginn fyrir að skreyta. Ég vil einfalda jólaskrautið, helst hafa allt í einum kassa í geymslunni.“ Hún er þó sannfærð um að fal- legar gjafir gleðji á jólunum. „Það er alltaf gaman að fá fal- legan pakka. Innihaldið þarf ekki að vera stórvægilegt, en það er mest gaman að nota óhefðbund- inn pappír og skraut.“ Með fastar hefðir sem hafa skapast í gegnum árin Það sem Ása gerir alltaf fyrir jól- in er að steikja laufabrauð. „Þegar við gerum laufabrauð, þá kemur systir mín og hennar fjöl- skylda og við skerum út og steikj- um, höfum síld og smökkum hangi- kjöt. Það eru eins konar litlu jól. Það er eins alltaf gerður sérríís fyr- ir jólin, þar sem notast er við gamla uppskrift frá mömmu. Ísinn elskum við öll.“ Ása er löngu hætt að baka og seg- ir hún engan á heimilinu sakna þess. „Við erum lítið fyrir kökur, en ég kaupi alltaf pavlovur sem Odd- fellowkonur baka og selja á basar fyrir jólin. Það er einstaklega gott að setja ber og rjóma á þær.“ Hvað dreymir þig um í jólagjöf? „Ég væri alveg til í eitthvað fal- legt frá Spaksmannsspjörum. Þar er allt svo tímalaust og fallegt.“ Gaf manninum sínum sömu jólagjöfina tvisvar Hver er sniðugasta gjöfin sem þú hefur gefið á jólunum? „Ég gaf manninum mínum tvisvar sömu jólagjöfina. Það var bók eftir Böðvar Guðmundsson sem var enn í plastinu eftir tvö ár svo ég pakkaði henni bara aftur inn og setti undir jólatréð! Mér og strákunum fannst þetta mjög fyndið. Ég held að hann hafi tekið hana úr plastinu þarna í seinna skiptið.“ Hvað ertu að gera nýtt og spenn- andi á verkstæðinu þínu? „Hvítu hvannarstilkarnir eru klassískir og hef ég gert þá í 10 ár. Ég er nú að gera þá stóra og í fleiri litum, í svörtu og bronslit. Ég geri einnig bolla sem hafa verið vinsælir lengi en ég hannaði þá fyrst í nám- inu mínu. Þeir hafa verið í björtum og fallegum litum sem fólk hefur verið ánægt með.“ „Spánverjar eru mjög hressir á jólunum“ Ása Tryggvadóttir keramikhönnuður tekur hlutina ekki of alvarlega á jólunum. Hún reiknar með að vera á Spáni og gefa bóndanum fallega glænýja jólagjöf en ein jólin fékk hann sömu gjöfina í annað sinn. Litríku bollarnir sem Ása gerir vekja athygli víða. Hjónin skemmtu sér konunglega á Spáni um áramótin í fyrra. Hún er sannfærð um að fallegar gjafir gleðji á jólunum og mælir með að fólk vandi sig við að pakka þeim inn. Ása kann að meta að leggja fallega á borð fyrir jólin. Margir velja bleikan lit á jól- unum þetta árið. LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.