Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Einungis fimmtungur 15 ára ung-
linga nær átta klukkustunda svefni á
skóladögum. Þessir krakkar ná að-
eins að meðaltali sex og hálfri klukku-
stund í svefn en svefninn minnkar
enn meira, eða um
nærri hálfa
klukkustund, þeg-
ar unglingarnir
fara í framhalds-
skóla. Þá minnkar
hreyfing hjá ung-
lingunum til muna
eftir að þau skipta
um skólakerfi.
Þetta kemur fram
í umfangsmikilli
rannsókn, sem
unnin er af vísindamönnum við Há-
skóla Íslands, á heilsu og svefni ung-
menna þar sem þeim var fylgt eftir úr
tíunda bekk og fram í framhalds-
skóla. Voru áhrifin við það að skipta
um skólakerfi sérstaklega skoðuð,
sérstaklega hvað varðar svefnvenjur
og hreyfivirkni.
„Það sem sérstaklega vakti athygli
okkar var þessi mikli munur á milli
skólakerfanna. Það er að segja að
fara úr grunnskóla, úr vernduðu um-
hverfi með foreldrum og kennurum,
og að fara yfir í framhaldsskólann.
Það eru miklar breytingar sem urðu á
lifnaðarháttum þessara ungmenna,“
sagði Erlingur S. Jóhannsson, pró-
fessor í íþrótta- og heilsufræðum við
Menntavísindasvið Háskóla Íslands
og verkefnisstjóri rannsóknarinnar,
en hann mætti í morgunþáttinn Ís-
land vaknar og ræddi um niðurstöður
hennar á dögunum. Sagði hann rann-
sóknina vera þá stærstu, að hans áliti,
sem hefði verið framkvæmd í grunn-
skólum og í skólakerfinu hér á landi,
með svo öflugu vísindastarfi.
Svefnmynstrið breyttist
„Við sjáum það mjög vel hér að
svefnmynstrið þeirra breyttist við að
koma í framhaldsskólann. Skóla-
umhverfið þeirra breyttist. Þau
hreyfðu sig miklu minna en þau
gerðu í 10. bekk,“ útskýrði Erlingur
en til að mynda náðu tæplega ellefu
prósent 15 ára ungmenna ráðlögðum
átta tíma svefni en talan fór niður í
tæplega sjö prósent hjá 17 ára ung-
mennum. Aðspurður sagði Erlingur
þó að lítill kynjamunur væri sjáan-
legur miðað við niðurstöður rann-
sóknarinnar.
„Það sofa allir alltof lítið“
„Svefninn er mjög svipaður, það
sofa allir alltof lítið,“ sagði hann.
„Ráðleggingarnar eru, eins og við
vitum, 8-10 tímar hjá þessum krökk-
um. Og þessir krakkar sofa ekki
nema sex tíma, sem er lítið. Það er
eingöngu fimmti hver sem nær þess-
um ráðlegginum,“ sagði Erlingur.
En hvað er það sem gerist á milli
15 og 17 ára?
„Það virðist vera að foreldrar
sleppi taumnum svolítið þegar þau
koma yfir í framhaldsskólann,“ sagði
Erlingur en hann segist telja álag í
skólum hafa áhrif á það að bæði svefn
og hreyfing minnki hjá ungmennum
við komuna í framhaldsskóla enda er
breytinguna ekki að sjá um helgar, að
hans sögn.
Hafa ekki tíma
„Helmingur af 17 ára krökkum í
þessu úrtaki hreyfir sig ekki reglu-
lega. Það minnkar um helming og
þessi minnkun átti sér eingöngu stað
á virkum dögum, þegar þau voru í
skólanum. Hún átti sér ekki stað um
helgar. Þá náðu þau að hreyfa sig og
að sofa. En það er svo mikið að gera í
skólanum, svo mikið að gera í
vinnunni og félagslífinu og öllu þessu
að þau hafa ekki tíma til að hreyfa
sig,“ sagði Erlingur en hann segir að
stærsta ógnin hvað varðar svefninn
hjá ungmennunum sé mikil óregla
sem er á svefni þeirra.
„Menn hafa hingað til einskorðað
allar ráðleggingar við lengd svefns-
ins. Hversu mikið maður sefur. En
það er þessi mikla óregla. Þú ferð
aldrei að sofa á sama tíma. Við erum
með 250 krakka í þessum gagna-
banka og við erum með 250 svefn-
mynstur. Af því að sumir fara að sofa
klukkan eitt til tvö virka daga og um
helgar sofa þeir kannski eina nóttina
ekki neitt. Það er ofboðslega mikil
óregla og þegar maður talar um vís-
indi hér og tengir ótregluna á svefni
við lifnaðarhætti þá tengist það,“
sagði Erlingur.
Hlaðvarp um heilsuhegðun
Hlaðvarp sem byggist á rannsókn-
inni er aðgengilegt á helstu streymis-
veitum, undir nafninu Heilsuhegðun
ungra Íslendinga, en þar eru fengnir
til samtals vísindamenn sem koma að
rannsókninni og ræða um niður-
stöður hennar á mannamáli við ungt
fólk á framhaldsskólastigi. Einnig er
hægt að nálgast hlaðvarpið inni á vef-
síðu rannsóknarinnar heilsuhegd-
un.hi.is.
Sofa og hreyfa sig
minna í framhaldsskóla
Erlingur Sigurður Jóhannsson er verkefnisstjóri umfangsmikillar rannsóknar
sem hefur meðal annars leitt í ljós að svefn og hreyfing minnkar umtalsvert
hjá ungmennum við það að fara í framhaldsskóla.
Breyting Rannsókn á heilsuhegðun ungmenna bendir til þess að miklar
breytingar verði á svefni og hreyfingu þeirra við að fara á milli skólakerfa.
Erlingur S.
Jóhannsson
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Ísland vaknar mun vakna á Selfossi
á milli kl. sex og tíu á föstudag og
færa landsmönnum jólastemninguna
beint í æð frá nýja miðbænum.
Munu þau Kristín Sif, Ásgeir Páll og
Jón Axel spjalla við marga góða og
skemmtilega gesti í þættinum.
Miðbærinn að vetrarlagi
„Það verður geggjað að koma á
Selfoss. Þetta er bærinn sem er allt-
af fullur af lífi og fjöri. Nýi miðbær-
inn er geggjaður. Við komum við í
sumar og það var alveg æðislegt. Ég
hlakka mikið til að heimsækja hann
að vetrarlagi,“ segir Kristín Sif, einn
af þáttastjórnendum Ísland vaknar.
Frábærir gestir
„Við munum fá til okkar frábæra
gesti. Hlynur Magnús Hreiðarsson
ætlar til dæmis að koma til okkar,“
segir hún. Fleiri góðir gestir munu
heimsækja þremenningana þar sem
þau munu senda út í beinni frá mat-
höllinni Mjólkurbúi Flóamanna á
Selfossi en meðal gesta verður Ásta
Björk Grímsdóttir úr versluninni
Motivo en hún er með kampavínsbar
inni í versluninni.
Spennan verður mikil í vikulegu
lagakeppninni.
Fylgstu með Stínu, Jóni og Ás-
geiri á K100 þar sem gleðin mun
ráða ríkjum á föstudag eins og alla
daga.
Ísland vaknar Morgunþátturinn með Jón Axel, Kristínu Sif og Ásgeiri Páli
verður í beinni frá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi á morgun, föstudag.
Heimsækja
miðbæinn að
vetrarlagi
Kristín Sif, Ásgeir Páll og Jón Axel í Ísland vaknar
verða í beinni frá nýjum miðbæ Selfoss á morgun,
föstudag, og fá marga góða gesti í heimsókn. Þre-
menningarnir hlakka til að upplifa miðbæinn að vetr-
arlagi og hækka í jólagleðinni með landsmönnum.
Ljósmynd/Árni Leósson
Jól Það er jólalegt í miðbænum.
Góðar jólagjafir fyrir konur komu til
tals í Ísland vaknar á dögunum. Hér
eru nokkrar góðar uppástungur sem
ræddar voru í þættinum.
Dekur Feitur dekurpakki slær alltaf
í gegn að sögn eins hlustanda.
Skór Flottir skór hitta yfirleitt í
mark.
Góð bók Það er alltaf kósí að detta
inn í góða bók á jólunum.
Gott krem Það er alltaf gaman að fá
gott krem.
Fallegur skartgripur Skartgripir, sér-
staklega skartgripir með einhverja
hugsun á bak við, hitta yfirleitt í
mark.
Ljósmynd/Colourbox
Jólagjöfin fyrir hana
www.bakoisberg.is
E L DHÚS A L L RA L ANDSMANNA
HÁGÆÐA VÍNGLÖS
FRÁ ZW IESEL FYR IR VANDLÁTA
Embrace
16.995 kr.
St. 36- 41
SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS
DÖMU VETRARSKÓR
LOÐFÓÐRAÐIR OG LÉTTIR VETRARSKÓR ÚR RÚSKINNI