Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 64
Öðruvísi og hressandi jólasaga Þegar Stúfur bjargaði jólunum bbbbm Text og myndir: Ari Yates. Nýhöfn 2021, 76 bls. Þegar Stúfur bjargaði jólunum er fjórða bókin sem Ari Yates bæði teiknar og skrifar, en hann hefur einnig myndlýst fjölda barnabóka eftir aðra höfunda. Myndir hans eru einstaklega lifandi og skemmtilegar og uppfullar af húmor og snið- ugum smáat- riðum. Bókin er að miklu leyti sett upp í myndasögustíl með talbólum og tilheyrandi upp- hrópunum og leika myndirnar því stórt hlutverk í söguþræðinum sjálfum. Sagan fjallar að sjálfsögðu um Stúf sem finnst hann helst til van- metinn jólasveinn. Bræður hans hlusta aldrei á hann og honum finnst hann ekki góður í neinu. Hann sleikir ekki aska, étur kerti eða skellir hurðum. Hann er bara lítill. Stúfur strunsar út úr jóla- sveinahellinum og á leið sinni niður af fjallinu hittir hann skrýtinn kall í rauðum fötum sem segist heita Sveinki. Hann brotlenti sleðanum sínum og kemst ekki til að gefa börnunum gjafir. Stúfur ákveður að koma honum til hjálpar, þótt það sé honum þvert um geð. Þá upphefst háskaleg atburðarás þar sem þeir félagar, og þá aðallega Stúfur, þurfa að leysa hinar ýmsu þrautir og safna saman töfragripum til að koma sleðanum aftur í samt lag. Þegar Stúfur er við það að gef- ast upp stappar Sveinki í hann stál- inu og hrósar honum fyrir afrek hans. Þótt Stúfur sé afundinn í fyrstu áttar hann sig fljótlega á að Sveinki hefur hjálpað honum að efla sjálfstraust sitt. Saman tekst þeim jólasveinunum ætlunarverk sitt og Stúfur uppsker mikla virðingu bræðra sinna fyrir vikið. Hér er á ferðinni frumleg og skemmtileg jólasaga fyrir eldri börn og unglinga sem fullorðnir hafa einnig gaman af, enda uppfull af húmor og sniðugum útpældum smáatriðum. Boðskapurinn er sá að ef þú hefur trú á þér kemstu ansi langt og með góðri samvinnu má klára verkefni sem virðast óyfir- stíganleg. Jólagjafirnar græjaðar á einu bretti Rauð viðvörun! Jólin eru á leiðinni bbbbn Texti og myndir: Sigrún Eldjárn. Mál og menning 2021, 59 bls. Sigrúnu Eldjárn þarf vart að kynna fyrir neinum, en hún hefur glatt jafnt unga sem aldna með sög- um sínum og teikningum í fjóra ára- tugi. Rauð viðvörun! Jólin eru á leiðinni er nýj- asta bókin hennar, fjörug jólasaga sem á vel við á aðvent- unni. Bókin skiptist niður í 24 kafla svo til- valið er að lesa einn kafla á dag fram að jólum, nú eða bara alla bók- ina í einum rykk, fyrir þá sem eiga erfitt með að bíða. Sagan fjallar um systkinin Jóa og Lóu sem átta sig á því að jólin eru á næsta leiti en þar sem þau eiga eng- an pening ákveða þau að kíkja upp á háaloft til að sjá hvort þar leynist ekki gamalt dót sem nýta má í jóla- gjafir. Á háaloftinu kennir ýmissa grasa og Lóa sér strax margar væn- legar jólagjafir. Jói er þó spennt- astur fyrir gamalli kistu sem hann festist svo ofan í. Lóa lendir í mikl- um raunum á leið sinni ofan af háa- loftinu og aftur inn í húsið til að bjarga Jóa úr kistunni, sem reynist svo alls ekki nauðsynlegt því hann kemst þaðan af sjálfsdáðum. Þegar óvæntan gest ber að garði líst systkinunum varla á blikuna en gesturinn kemur þeim til bjargar á ögurstundu og þau geta haldið áfram að undirbúa jólin. Það virðist reyndar standa ansi tæpt á tímabili en allt hefst þetta að lokum og systkinin ná að afgreiða allar gjaf- irnar á einu bretti og koma þannig vinum og ættingjum á óvart. Líkt og í flestum bókum Sigrúnar einkennist söguþráðurinn af lífi og fjöri og endalausum óvæntum uppá- komum sem fá börn til að skella upp úr og hlusta á söguna af áhuga og eftirvæntingu. Myndirnar leika að sjálfsögðu stórt hlutverk í sögunni og ýmis smáatriði vekja kátínu líkt og oft áður. Börnunum þykir líka gaman að benda á litla græna kall- inn með jólahúfuna sem fylgir systkinunum í gegnum ævintýrið. Þá er tilvalið að nýta söguna til að skapa umræður um endurnýtingu hlutanna og taka Jóa og Lóu til fyrirmyndar þegar kemur að því að gefa jólagjafir. Uppskrift að skemmtilegu ævintýri Saga finnur fjársjóð (og bætir heiminn í leiðinni) bbbbn Texti: Sigríður Arnar- dóttir, myndir: Freydís Kristjánsdóttir. Veröld, 32 bls. Sigríður Arnar- dóttir hefur áður skrifað barnabækurnar um tröllastrákinn Vaka, sem notið hafa mikilla vin- sælda, en í einni þeirri kynnist hann Sögu sem er hér aftur komin í sjálfstæðu ævintýri. Myndlýs- ing er, eins og í fyrri bókum Sig- ríðar, í höndum Freydísar Krist- jánsdóttur, sem glæðir sög- una lífi með litríkum og líf- legum teikningum. Saga er nú flutt til borgar- innar og dauðleiðist því hún þekkir engan. Hún vill bara glápa á sjónvarpið, en afi hennar hvetur hana til að fara út og rækta hæfileika sína og gera heiminn betri. Saga er ekki sérstaklega spennt fyrir þessu í fyrstu en ákveður að láta slag standa. Hún er ekki fyrr komin út þegar hún hittir þríburana sem búa fyrir ofan hana og fær þá með sér í ruslatínsluverkefni. Þau skipu- leggja sig vel og ákveða að byrja niðri í fjöru þar sem þau finna fjár- sjóðskistu fulla af gersemum og boðskort á hæfileika-leikana. Úr verður heljarinnar viðburður þar sem allir skemmta sér konunglega. En það sem stendur upp úr hjá Sögu eftir viðburðaríkan dag er hinn sanni fjársjóður, þrír nýir vinir. Hér er um að ræða hugljúfa sögu sem er jafnframt spennandi og skemmtileg. Hún minnir okkur á að rækta hæfileika okkar og að stund- um eru tækifærin og ævintýrin beint fyrir framan okkur. Það getur jafnvel verið nóg að standa upp frá sjónvarpinu og líta í kringum sig til að sjá það sem lífið hefur upp á að bjóða. Börnin í sögunni gera allt rétt og fara að tilmælum fullorðna fólksins nokkurn veginn í einu og öllu, sem er kannski ekki alltaf raunin í veruleikanum. En það er bara jákvætt fyrir litla uppreisnar- seggi, sem og aðra, að lesa eða hlusta á þessa bók og uppgötva að skemmtileg ævintýri geta skapast út frá uppástungum fullorðna fólks- ins þótt þær virðist kannski glat- aðar í fyrstu. Ævintýralegt ferðalag Þegar ég verð stór bbbmn Texti og myndir: Lára Garðarsdóttir. Salka 2021, 48 bls. Það getur verið erfitt að ákveða hvað maður ætlar að verða þegar maður verður stór, eins og hann Snær áttar sig á þegar hann fer að velta upp hug- myndunum. Hann tekur kis- una sína með í ævintýralegt ferðalag til að prófa sig í hinum ýmsu hlutverk- um. Snær flýgur um loftin blá, fangar bófa, gætir dýra og allt þar á milli. Það er auðvitað erfitt að velja sér framtíðarstarf þegar maður er enn þá bara barn, en samt spyrjum við ung börn oft þessarar spurningar. Snær kennir okkur að við getum gert allt sem okkur dreymir um og það má líka alveg skipta um skoðun. Svo þarf heldur ekkert að ákveða neitt strax og stundum er bara best að fara út að leika. Texti bókarinnar er í bundnu máli og oftast er bara ein til tvær setningar á hverri blaðsíðu sem ger- ir það að verkum að einfaldar myndirnar njóta sín einstaklega vel. Letrið er stórt og verður enn stærra til áhersluaukningar. Text- inn er í raun hluti af myndlýsing- unni og sveigist jafnvel og beygist í takt við það sem er að gerast í sögunni. Eins og stundum vill gerast með rím í barnabókum þá eiga sum orðin það til að vera óþarflega flókin til að rímið passi á réttum stöðum. Það er til dæmis frekar erfitt að útskýra arð og hljóðmúr fyrir yngstu les- endunum. En sagan er hress og skemmtileg og myndirnar einfaldar sem hentar yngsta aldurshópnum ágætlega. Ævintýri allra tíma Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar barnabækur Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@mbl.is Teikning/Ari H.G.Yates Teikning/Sigrún Eldjárn 64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.