Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 36
Stemning Gestir Nýlendubarsins geta fengið sér sæti á miðhæðinni og notið umhverfisins. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Brynjólfur J. Baldursson, einn eig- enda Gróðurhússins í Hveragerði, segir opnun hússins marka tímamót í ferðaþjónustu á Suðurlandi og raunar í íslenskri ferðaþjónustu. Þar sé fjölbreyttari þjónusta en ferða- menn eigi að venjast á einum stað. Jafnframt sé með Gróðurhúsinu innleitt nýtt rekstrarform í hótel- og verslunarrekstri á Íslandi. Gróðurhúsið er þriggja hæða bygging á horni Breiðumarkar og Austurmarkar, gegnt Hótel Örk. Framkvæmdir hófust í byrjun árs 2020 og verður húsið formlega opnað í dag. Arkitekt er Kári Eiríksson. Gufa og heitir pottar Á hótelinu, The Greenhouse hotel, eru 49 herbergi. Þau eru á annarri og þriðju hæð hússins en á norður- hlið 3. hæðar verður aðstaða fyrir gesti til að slaka á í gufu og heitum pottum. Á suðurhliðinni eru svalir með útsýni yfir Kambana og Suður- land og undir þeim glerskáli sem hleypir birtu í mathöllina. „Við skilgreinum The Greenhouse Hotel sem lífsstílshótel en það sker sig frá hótelum sem rekin eru af stærri keðjum,“ segir Brynjólfur. „Hótelið hentar Íslendingum jafnt sem erlendum ferðamönnum. Höf- uðborgarbúar eru aðeins 30 mínútur að komast í stemninguna og erlendir gestir eru stutt frá Keflavíkurflug- velli og héðan er tilvalið fyrir þá að ferðast um landið. Við leggjum áherslu á sjálfbærni og erum að vinna í BREEAM-vottun á húsið en Mannvit eru ráðgjafar okkar við þá vinnu, ásamt því að sjá um alla verk- fræðihönnun,“ segir Brynjólfur. Á jarðhæð Gróðurhússins er mat- höll með fimm veitingastöðum: Hipstur, Yuzu Burgers, Taco-vagn- inum, Punk Fried Chicken og Wok on. Þar er jafnframt Nýlendubar Kormáks og Skjaldar en gestir hans munu geta notið góðra veiga á jarð- hæð, í setustofu á annarri og þriðju hæð og á suðursvölunum. Verslanir, ísbúð og kaffihús Á jarðhæð í norðurendanum eru verslun Epal, Herrafataverslun Kor- máks og Skjaldar og verslun Álafoss. Þar er jafnframt ísbúðin Bongó, kaffihúsið The Greenhouse Café og matarmarkaðurinn Me & Mu. Mark- aðurinn verður með vörur beint úr héraði og stendur til að hafa úti- markað á sumrin. Þá sjá starfsmenn garðyrkjustöðvarinnar Flóru í Hveragerði um gróður og plöntur. Loks verður verslun fyrir ferða- menn í kjallaranum, Shop Icelandic, sem heyrir líkt og Álafoss undir Nordic Store-keðjuna. Þá verður þar salernisaðstaða og spilakassar sem vekja minningar frá Eden. Sá að umferðin hafði aukist Valgarð Sörensen er einnig meðal eigenda Gróðurhússins en hann er reyndur veitingamaður. Valgarð kveðst hafa fengið hug- myndina eftir að hafa dvalið nokkur ár í London við að setja ásamt öðrum Hamborgarabúllu Tómasar á legg en hann festi ásamt meðfjárfestum kaup á lóðinni árið 2018. „Ég tók eftir því þegar ég flutti heim frá London að umferðarflæðið um Kambana hafði stóraukist. Mun fleiri ferðamenn voru á ferðinni og þá fór hugmyndin að fæðast,“ segir Valgarð sem kveðst hafa átt góðar minningar frá Eden. Hugmyndin hafi verið að skapa áfangastað með ýmissi þjónustu sem höfðaði til inn- Ísbúðin Bongó Rut Káradóttir arkitekt og maður hennar Kristinn Arnarson reka ísbúðina. Opna hótel og mathöll í Hveragerði - Athafnamenn opna Gróðurhúsið - Gisting, veitingar og verslanir Morgunblaðið/Eggert Viðskiptafélagar Valgarð Sörensen og Brynjólfur J. Baldursson fyrir framan móttökuna á hótelinu. Gróðurhúsið Glerskáli á suðurenda byggingarinnar hleypir birtu í húsið. 36 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 OKKUR VANTAR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is KIA - SORENTO PHEV PLATINUM – RN. 192070 Nýskráður 4/2021, ekinn 2 þ.km., bensín, blár, sjálfskiptur, hraðastillir, litað gler, bakkmyndavél, kastarar, hiti í framsætum. Verð 8.690.000 kr. BMW - X5 XDRIVE40E M-TECH – RN. 340550 Nýskráður 9/2018, ekinn 68 þ.km., bensín, svartur, sjálfskipting, hiti í framsætum, þjófavörn, topplúga, litað gler, höfuðpúðar á aftursætum. Verð 8.790.000 kr. FORD - MUSTANG MACH-E PREMIUM-RN 340632 Nýskráning 3/2021 ekinn 14 þ.km. rafmagn, hvítur, sjálfskipting, rafdrifnar rúður, samlæsingar rafdrifnir, hliðarspeglar, litað gler. Verð 8.990 000 kr. TOYOTA - LAND CRUISER 150 VX – RN 340569 Nýskráning 6/2012 ekinn 126 þ.km. dísel hvítur sjálfskipting, 5 manna, 5 dyra, rafdrifnar rúður, hiti í framsætum, leðuráklæði, vindskeið, loftkæling. Verð 6.290 000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.