Morgunblaðið - 09.12.2021, Side 36
Stemning Gestir Nýlendubarsins geta fengið sér sæti á miðhæðinni og notið umhverfisins.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Brynjólfur J. Baldursson, einn eig-
enda Gróðurhússins í Hveragerði,
segir opnun hússins marka tímamót
í ferðaþjónustu á Suðurlandi og
raunar í íslenskri ferðaþjónustu. Þar
sé fjölbreyttari þjónusta en ferða-
menn eigi að venjast á einum stað.
Jafnframt sé með Gróðurhúsinu
innleitt nýtt rekstrarform í hótel- og
verslunarrekstri á Íslandi.
Gróðurhúsið er þriggja hæða
bygging á horni Breiðumarkar og
Austurmarkar, gegnt Hótel Örk.
Framkvæmdir hófust í byrjun árs
2020 og verður húsið formlega opnað
í dag. Arkitekt er Kári Eiríksson.
Gufa og heitir pottar
Á hótelinu, The Greenhouse hotel,
eru 49 herbergi. Þau eru á annarri
og þriðju hæð hússins en á norður-
hlið 3. hæðar verður aðstaða fyrir
gesti til að slaka á í gufu og heitum
pottum. Á suðurhliðinni eru svalir
með útsýni yfir Kambana og Suður-
land og undir þeim glerskáli sem
hleypir birtu í mathöllina.
„Við skilgreinum The Greenhouse
Hotel sem lífsstílshótel en það sker
sig frá hótelum sem rekin eru af
stærri keðjum,“ segir Brynjólfur.
„Hótelið hentar Íslendingum jafnt
sem erlendum ferðamönnum. Höf-
uðborgarbúar eru aðeins 30 mínútur
að komast í stemninguna og erlendir
gestir eru stutt frá Keflavíkurflug-
velli og héðan er tilvalið fyrir þá að
ferðast um landið. Við leggjum
áherslu á sjálfbærni og erum að
vinna í BREEAM-vottun á húsið en
Mannvit eru ráðgjafar okkar við þá
vinnu, ásamt því að sjá um alla verk-
fræðihönnun,“ segir Brynjólfur.
Á jarðhæð Gróðurhússins er mat-
höll með fimm veitingastöðum:
Hipstur, Yuzu Burgers, Taco-vagn-
inum, Punk Fried Chicken og Wok
on. Þar er jafnframt Nýlendubar
Kormáks og Skjaldar en gestir hans
munu geta notið góðra veiga á jarð-
hæð, í setustofu á annarri og þriðju
hæð og á suðursvölunum.
Verslanir, ísbúð og kaffihús
Á jarðhæð í norðurendanum eru
verslun Epal, Herrafataverslun Kor-
máks og Skjaldar og verslun Álafoss.
Þar er jafnframt ísbúðin Bongó,
kaffihúsið The Greenhouse Café og
matarmarkaðurinn Me & Mu. Mark-
aðurinn verður með vörur beint úr
héraði og stendur til að hafa úti-
markað á sumrin. Þá sjá starfsmenn
garðyrkjustöðvarinnar Flóru í
Hveragerði um gróður og plöntur.
Loks verður verslun fyrir ferða-
menn í kjallaranum, Shop Icelandic,
sem heyrir líkt og Álafoss undir
Nordic Store-keðjuna. Þá verður þar
salernisaðstaða og spilakassar sem
vekja minningar frá Eden.
Sá að umferðin hafði aukist
Valgarð Sörensen er einnig meðal
eigenda Gróðurhússins en hann er
reyndur veitingamaður.
Valgarð kveðst hafa fengið hug-
myndina eftir að hafa dvalið nokkur
ár í London við að setja ásamt öðrum
Hamborgarabúllu Tómasar á legg
en hann festi ásamt meðfjárfestum
kaup á lóðinni árið 2018.
„Ég tók eftir því þegar ég flutti
heim frá London að umferðarflæðið
um Kambana hafði stóraukist. Mun
fleiri ferðamenn voru á ferðinni og
þá fór hugmyndin að fæðast,“ segir
Valgarð sem kveðst hafa átt góðar
minningar frá Eden. Hugmyndin
hafi verið að skapa áfangastað með
ýmissi þjónustu sem höfðaði til inn-
Ísbúðin Bongó Rut Káradóttir arkitekt og maður hennar Kristinn Arnarson reka ísbúðina.
Opna hótel
og mathöll í
Hveragerði
- Athafnamenn opna Gróðurhúsið
- Gisting, veitingar og verslanir
Morgunblaðið/Eggert
Viðskiptafélagar Valgarð Sörensen og Brynjólfur J. Baldursson fyrir framan móttökuna á hótelinu.
Gróðurhúsið Glerskáli á suðurenda byggingarinnar hleypir birtu í húsið.
36 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
KIA - SORENTO PHEV PLATINUM – RN. 192070
Nýskráður 4/2021, ekinn 2 þ.km., bensín, blár,
sjálfskiptur, hraðastillir, litað gler, bakkmyndavél,
kastarar, hiti í framsætum.
Verð 8.690.000 kr.
BMW - X5 XDRIVE40E M-TECH – RN. 340550
Nýskráður 9/2018, ekinn 68 þ.km., bensín,
svartur, sjálfskipting, hiti í framsætum, þjófavörn,
topplúga, litað gler, höfuðpúðar á aftursætum.
Verð 8.790.000 kr.
FORD - MUSTANG MACH-E PREMIUM-RN 340632
Nýskráning 3/2021 ekinn 14 þ.km. rafmagn,
hvítur, sjálfskipting, rafdrifnar rúður, samlæsingar
rafdrifnir, hliðarspeglar, litað gler.
Verð 8.990 000 kr.
TOYOTA - LAND CRUISER 150 VX – RN 340569
Nýskráning 6/2012 ekinn 126 þ.km. dísel hvítur
sjálfskipting, 5 manna, 5 dyra, rafdrifnar rúður, hiti
í framsætum, leðuráklæði, vindskeið, loftkæling.
Verð 6.290 000 kr.