Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 Til hamingju - þú hefur fundið happatöluna! Farðu inn á mbl.is/happatala, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna. Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland Vaknar á K100 í fyrramálið. Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að tala þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna. 62 Íslenskar barnabækur 1. Fagurt galaði fuglinn sá eftir Helga Jónsson og Önnu Margréti Marinósdóttur sem Jón Baldur Hlíðberg myndlýsir 2. Reykjavík barnanna eftir Margréti Tryggvadóttur sem Linda Ólafsdóttir myndlýsir 3. Alexander Daníel Hermann Dawidsson – bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason sem Rán Flygenring myndlýsir Fræðibækur/Handbækur 1. Laugavegur eftir Önnu Dröfn Ágústsdóttur og Guðna Valberg 2. Bærinn brennur eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur 3. Kristín Þorkelsdóttir eftir Birnu Geirfinnsdóttur og Bryndísi Björgvinsdóttur Ævisögur 1. Rætur eftir Ólaf Ragnar Grímsson 2. Minn hlátur er sorg eftir Friðriku Benónýsdóttur Hin árlegu bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana voru afhent í bókmenntaþættinum Kiljunni á RÚV í gærkvöldi. Er þetta í 22. sinn sem verðlaunin eru veitt. Alls bárust atkvæði frá rúmlega 60 bóksölum. Íslensk skáldverk 1. Merking eftir Fríðu Ísberg 2. Sextíu kíló af kjaftshöggum eftir Hallgrím Helgason 3. Úti eftir Ragnar Jónasson Ljóðabækur 1. Ég brotna 100% niður eftir Eydísi Blöndal 2. Kona lítur við eftir Brynju Hjálmsdóttur 3. Tanntaka eftir Þórdísi Helga- dóttur Íslenskar ungmennabækur 1. Sterk eftir Margréti Tryggva- dóttur 2. Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur 3. Drekar, drama og meira í þeim dúr eftir Rut Guðnadóttur 3. 11.000 volt eftir Erlu Hlynsdóttur Þýdd skáldverk 1. Stúlka, kona, annað eftir Bernardine Evaristo 2. Bréfið eftir Kathryn Hughes 3. Fimmtudagsmorðklúbburinn eftir Richard Osman Þýddar barnabækur 1. Kva es þak? eftir Carson Ellis 2. Kynjadýr í Buckinghamhöll eftir David Walliams sem Tony Ross myndlýsir 3. Jólasvínið eftir J.K. Rowling sem Jim Field myndlýsir Besta bókarkápan 1. Bærinn brennur eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur sem Halla Sigga hannaði 2. Dæs eftir Lóu Hlín Hjálmtýs- dóttur sem Þorbjörg Helga Ólafsdóttir hannaði 3. Læknirinn í Englaverksmiðjunni eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur sem Ragnar Helgi Ólafsson hannaði Merking valin besta íslenska skáldsagan - Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana afhent Bernardine Evaristo Þórunn Valdimarsdóttir Fríða Ísberg Carson Ellis Margrét Tryggvadóttir Eydís Blöndal „Þetta eru kunnugleg op en jafnframt dular- full – og bjóða upp á vissa valmöguleika,“ segir myndlistarmaðurinn Baldvin Einarsson um innsetningu sína sem verður opnuð í D-sal Hafnarhúss Listasafns Reykjavíkur í dag, fimmtudag, klukkan 17. Sýninguna kallar Baldvin einmitt Op. Í texta sem fylgir sýningunni úr hlaði segir að á henni skoði Baldvin samspil þess innra og þess ytra. Áhorfendum er boðið að horfa inn um það sem virðast vera íburðarmiklar bréfa- lúgur – og má því segja að hann snúi sýningar- salnum á rönguna þar sem bréfalúgur snúa vanalega út. Bréfalúgur eru gáttir þar sem upplýsingar fara úr almannarými inn í einka- rými. Hér eru þær rammar utan um tómið milli hins ytra og hins óséða og óræða innra. Áhorfendur stíga inn í rými valmöguleika þar sem þeim gefst kostur á að máta eina eða fleiri fullyrðingar við sjálfa sig, vega þær og meta. Þeir fá tækifæri til þess að finna sig í sýningunni, að enduruppgötva gleymd sjálf eða jafnvel finna sér nýtt hlutskipti í lífinu. Þegar blaðamaður kemur við í sýningar- salnum er Baldvin að koma fjölda bréfalúga fyrir og segir þar vera komin „tóm ýmissa möguleika – það er óvissa í myrkrinu. Þetta er umgjörð um myrkur“. Ramminn um opin sem Baldvin vinnur með eru eins konar skúlptúrískar lágmyndir steyptar í brons en hann sesgist hafa nú unnið í þann miðil í fyrsta skipti. „Ég hef áður unnið með rifur, og hef verið að gera lágmyndir, en tek hvort tveggja hér lengra. Dyralúgan er hversdagslegur hlutur en bronsið er eiginlega virðulegasta skúlptúrefnið, mér fannst spenn- andi að steypa því hér saman.“ Baldin (f. 1985) útskrifaðist með BA-gráðu frá LHÍ fyrir tíu árum og meistaragráðu frá Konunglega akademíinu í Antwerpen árið 2013. Hann stofnaði og rak, ásamt fleirum, sýningarrýmin Kunstschlager í Reykjavík og ABC Klubhuis í Belgíu. Verk Baldvins hafa verið sýnd víða en á síðustu árum einkum í Belgíu. Sýningarstjóri Ops er Birkir Karlsson, verkefnastjóri hjá Listasafni Reykjavíkur. Morgunblaðið/Einar Falur Listamaðurinn „Þetta eru kunnugleg op en jafnfram dularfull,“ segir Baldvin Einarsson. Lágmyndir sem umgjörð um myrkur - Baldvin Einarsson sýnir í D-sal Hafnarhússins Æ visaga Sveins Torfa Þórólfs- sonar, Með grjót í vösum, er góð bók og fróðleg. Textinn streymir lipurlega fram úr lindarpenna höfundarins, sem segir vel og skemmtilega frá æsku- og unglingsárum sínum í sjávarbyggðum, þar sem iðjusemi var meðal æðstu dyggða og vinnudagurinn yfirleitt langur. Brugðið er upp skemmti- legum og fróðlegum myndum úr mannlífi norður á Skagaströnd, þar sem Sveinn Torfi átti heima með fjöl- skyldu sinni fyrstu æviárin. Að læra að lesa var þröskuldur að komast yfir. Öðlast viðurkenn- ingu í lífinu. Flestir þekkja væntanlega til- finningar slíku líkar, eins og höfundurinn segir frá á varfærinn en glettinn hátt. Lýsingar úr mannlífinu á Skagaströnd eru líka bráðskemmtilegar, svo sem frásagnir af Óla hinum norska lifrar- bræðslumanni og þegar Helena hin þýska kom til Skagastrandar; sú sem varð kona Georgs frænda höfundar: „Það væru örugg- lega fleiri svona dömur á markaði og farið að nefna ýmsa einhleypa karlmenn í bænum sem ættu að fara að ráði Georgs,“ eins og segir í bókinni (bls. 153). Svo bregðast bjargir og leið fjölskyldu Torfa liggur suður í Grindavík. Uppvaxtar- árunum þar er skemmtilega lýst, vinnusemi en líka glettnum atvikum til sjós og lands. Suður með sjó er lífið saltfiskur, eins og þar stendur. Hvatning Todda, en svo kallar Torfi vinnuveitanda sinn Tómas Þorvalds- son í Þorbirninum, leiddi höfundinn á þá braut að afla sér menntunar. Við tóku góðir og skemmtilegir tímar í skólunum á Laugarvatni – og braut til framtíðar og ævistarfs var mörkuð. Raunar má segja að lýsingar á Laugar- vatnsárunum séu besti sprettur bókarinnar; frásögnin þar komin í umhverfi þar sem stefnur og straumar mætast og veröldin stækkar með hverjum degi. Ágæt er til dæmis lýsingin á austurför úr Reykjavík í rútubíl Ólafs Ketilssonar þjóðsagnapersónu og þeim Jensínu og Gerði sem lengi réðu ríkjum í húsmæðraskólanum. Framvindan í sögu Sveins Torfa Þórólfs- sonar (1945-2016) er eins og lygn straumur; hver kafli rekur annan í áreynslulausri framvindu en milli línanna má lesa að höf- undur átti gott líf og gæfuríkt. Skráðar ævi- sögur líkar hans eru margar, en þær eru þó nauðsynlegar hver á sinn hátt. Eru lýsingar á veruleika sem var og undirstöðum sam- félags okkar í dag – og að því leyti okkur öllum lærdómsríkar. Höfundurinn „Framvindan í sögu Sveins Torfa Þórólfssonar (1945-2016) er eins og lygn straumur,“ skrifar rýnirinn. Ævisaga Með grjót í vösum bbbmn Eftir Svein Torfa Þórólfsson. Sæmundur 2021. 358 bls. innb. SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON BÆKUR Gott líf og gæfuríkt Grammy- tilnefningarnar tvær sem kana- díski tónlistar- maðurinn Drake hlaut í ár hafa verið dregnar til baka. Samkvæmt heimildum tíma- ritsins Variety var það gert að frumkvæði tónlistarmannsins og umboðsmanns hans. Samkvæmt frétt Variety hafa ekki fengist skýr svör við því hvers vegna Drake ósk- aði eftir þessu. Í frétt BBC um mál- ið er rifjað upp að Drake hafi á síð- ustu árum iðulega verið ósáttur við Grammy-verðlaunin, seinast í fyrra þegar honum gramdist að tónlistar- maðurinn The Weeknd hlaut enga tilnefningu. „Ég held að við ættum að hætta að verða hissa á hverju ári yfir því sambandsleysi sem ríkir milli áhrifaríkrar tónlistar og þess- ara verðlauna,“ sagði Drake af því tilefni og hvatti til að stofnað yrði til nýrra verðlauna. Fyrr á þessu ári hættu atkvæðagreiðslur Grammy-verðlaunanna að vera leynilegar, en það var viðbragð við ásökunum um að úrslit væru ákveð- in fyrir fram og stýrðust af rasisma. Vill ekki tilnefn- ingar til Grammy Drake
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.