Morgunblaðið - 09.12.2021, Qupperneq 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
CHAN MADDEN NANJIANI McHUGH HENRY RIDLOFF
BARRY
KEOGHAN
DON
LEE
WITH KIT
HARINGTON
WITH SALMA
HAYEK
AND ANGELINA
JOLIE
O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T
94%
Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney
sýnd með Íslensku og Ensku tali
H
ouse of Gucci er ævisögu-
leg dramamynd, sem
leikstýrt er af Ridley
Scott og spannar yfir
þrjá áratugi. Kvikmyndin er byggð á
bókinni The House of Gucci: A
Sensational Story of Murder, Mad-
ness, Glamour, and Greed eftir Sara
Gay Forden og segir sanna sögu um
endalok þátttöku Gucci-ættarinnar í
fyrirtækinu Gucci. Myndin fylgir
sambandi Patriziu Reggiani (Lady
Gaga) og Maurizio Gucci (Adam
Driver) sem táknar upphaf þeirra
endaloka.
Ástarsaga Partiziu og Maurizio er
sterkasti hlut myndarinnar og mætti
flokkast sem „kamp“, þ.e. eitthvað
sem verður aðlaðandi fagurfræði-
lega séð vegna þess að það birtir
vondan smekk eða kaldhæðni. Pat-
rizia Reggiani er ung, frökk og að-
laðandi ítölsk kona sem starfar sem
skrifstofustjóri hjá vöruflutninga-
fyrirtæki föður síns. Í teiti hittir hún
Maurizio Gucci, laganema og erf-
ingja 50% hlutdeildar í Gucci-
tískuhúsinu. Patrizia eltir hinn
feimna og vandræðalega Maurizio
og heillar hann upp úr skónum með
sínu mikla sjálfsöryggi og sjarma.
Faðir hans, Rodolfo, vill meina að
Patrizia sé „gullgrafari“, þ.e.a.s.
sækist aðeins eftir auð hans og neyð-
ir hann til þess að velja á milli henn-
ar eða Gucci arfleiðarinnar. Mauri-
zio virðist eiga auðvelt með það val
og velur Patriziu fram yfir Gucci og
yfirgefur fjölskylduna. Svo virðist
sem Maurizio hafi engan áhuga á að
taka þátt í fjölskyldufyrirtækinu og
sækist ekki eftir peningum fjöl-
skyldunnar. Áhorfendur eiga því
erfitt með að ímynda sér að róman-
tík þeirra eigi eftir að breytist í erf-
iða baráttu um yfirráð yfir Gucci.
Maurizio byrjar að vinna hjá fyrir-
tæki föður Patriziu og ástin virðist
blómstra á milli þeirra. Hins vegar
einn daginn þegar nýgiftu hjónin eru
að ganga frá þvotti heima hringir
frændi Maurizio, Aldo Gucci (Al
Pacino) og býður þeim í afmælið sitt.
Patrizia tekur vel í það og hefst þá
hennar barátta fyrir því að komast
inn í Gucci-fjölskylduna. Erfitt er að
átta sig hvaðan þessi áhugi hennar
kemur þar sem Ridley Scott stillir
þeim hjónum upp eins og þeim þyki
sitt einfalda líf, sem þau áttu áður,
nægja. Þessi áhugi Patriziu á Gucci
kemur því, bæði áhorfendum og
eiginmanni hennar, að óvörum. Við
tekur langdreginn kafli þar sem Pat-
rizia reynir að sannfæra Maurizio
um að taka þátt í fjölskyldufyrirtæk-
inu og loks að taka yfir fyrirtækið
með svikum og brellum sem hún
leggur til. Áhorfendur eiga erfitt
með skilja þessa ákvörðun Patriziu
að þvinga alla aðra fjölskyldumeð-
limi Gucci út úr fyrirtækinu sem hún
hafði áður talið sem vini eða ætt-
ingja. Persónusköpunin hjá Ridley
Scott er þannig bjöguð þar sem
áhorfendur átta sig ekki á af hverju
persónurnar taka þær ákvarðanir
sem þær gera. Það spilar einnig inn í
að sjónarhorn tökuvélarinnar er
alviturt og áhugalaust en svo virðist
sem Scott vilji ekki sýna raunveru-
legar tilfinningar eða nota sjónar-
horn í fyrstu persónu í myndinni.
Atriði sem ættu því að vera tilfinn-
ingaþrungin mistakast eins og t.d.
þegar hjónin svíkja Paolo Gucci
(Jared Leto), frænda Mauricio sem
er annar veikur hlekkur myndar-
innar. Jared Leto færir hlutverkinu
ekkert með sínum ýkta leik.
Þriðji og síðasti hluti myndar-
innar fylgir Patriziu einni og fyrir-
áætlunum hennar að myrða fyrrum
eiginmann sinn, Maurizio, eftir að
hann tekur upp samband við aðra
konur og skilur við Patriziu. Mauri-
zio er þá eini meðlimur fjölskyld-
unnar sem er enn eigandi í Gucci-
fyrirtækinu þökk eða sök sé
Patriziu.
Búningarnir eftir Janty Yates og
leikmyndin eftir Arthur Max eru fal-
lega útfærð og ekki ólíklegt að þau
verði tilnefnd til Óskarsins fyrir sín
góðu störf. Leikur Lady Gaga og
Adam Driver stendur einnig upp úr
og bera þau myndina í sameiningu á
herðum sér. Myndin inniheldur því
marga fallega og vel unna þætti en
Ridley Scott tekst að eyðileggja fyr-
ir sjálfum sér rétt eins og Gucci-
fjölskyldan gerði á sínum tíma.
„Father, Son, and House of Gucci“
Eyðileggja „Leikur Lady Gaga og Adam Driver stendur einnig upp úr og bera þau myndina í sameiningu á herðum
sér. Myndin inniheldur því marga fallega og vel unna þætti en Ridley Scott tekst að eyðileggja fyrir sjálfum sér rétt
eins og Gucci-fjölskyldan gerði á sínum tíma,“ skrifar rýnir um kvikmyndina House of Gucci.
Laugarásbíó
House of Gucci/ Gucci-arfleifðin
bbbmn
Leikstjórn: Ridley Scott. Handrit:
Roberto Bentivegna. Aðalleikarar: Lady
Gaga, Adam Driver, Al Pacino og Jared
Leto. Bandaríkin, 2021. 157 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Multis, sem gefur út myndverk í
upplagi eftir ýmsa samtímalista-
menn, hefur opnað sýningarrými á
Hafnartorgi, Tryggvagötu 21. Þar
verða í dag, fimmtudag, kl. 17 til 19
frumsýnd verkin „Fimm teikn-
ingar“ eftir Gunnhildi Hauksdóttur
myndlistarmann ásamt nýjum blek-
verkum í upplagi. „Fimm teikn-
ingar“ eru innsetning úr tveimur
hljóðrásum, skúlptúr og teikn-
ingum og eru úr röð verka þar sem
Gunnhildur vinnur með umbreyt-
ingu teikninga yfir í raddskrár.
„Teikningarnar“ vann hún í sam-
starfi við fimm ungar djass-
söngkonur í Litháen.
Raddskrá Eitt verka Gunnhildar Hauks-
dóttur á sýningunni í sýningarrými Multis.
Teikningar Gunn-
hildar hjá Multis
Ragnari Jónas-
syni tekst með
glæsibrag að
ljúka þríleik sín-
um um lög-
reglukonuna
Huldu Her-
mannsdóttur.
Þannig skrifar
Bo Tao Michaël-
is, rýnir hjá
Politiken, um
glæpasöguna Mistur sem hann
gefur fjögur hjörtu af sex mögu-
legum. Bókin kom nýverið út í
Danmörku í þýðingu Rolfs Stav-
nem. Rýnir segir erfitt að skrifa
um bókina án þess að ljóstra of
miklu upp. Hann mælir með bóka-
flokknum, en kallar engu að síður
eftir ögn meiri húmor í glæpasög-
um Ragnars.
Lýkur þríleik sín-
um með glæsibrag
Ragnar
Jónasson