Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 09.12.2021, Blaðsíða 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2021 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Athygli vekur að nú á aðventunni sýna tvö helstu alþjóðlegu gallerí landsins verk eftir svissnesk-þýska myndlistarmanninn Dieter Roth (1930-1998) sem var búsettur hér um langt árabil og hafði víðtæk áhrif á íslenska mynd- listarsenu. Hann er líka almennt álitinn í hópi áhrifamestu myndlistarmanna síðustu hálfrar aldar í Evrópu. Í BERG Con- temporary var á dögunum opnuð sýning með afar fjölbreytilegum grafíkverkum en Dieter vann alla tíð með frumlegum og mjög skapandi hætti í hina ýmsu grafík- og prentmiðla. Í i8 verður svo opnuð í dag, fimmtudag, klukkan 17 sýning þar sem áhersla er á ein- stök myndverk á pappír. Einnig eru á sýningunni skúlptúrar, húsgögn og verk sem Dieter vann í blandaða miðla. Sumt af þessu eru upplags- verk en mörg verkanna gerði Dieter meðan hann bjó fyrst hér á landi – flest eru verkin frá sjöunda og átt- unda áratug liðinnar aldar. Eins og segir í tilkynningu eru teikningarnar á sýningunni unnar undir ýmiss kon- ar áhrifum, meðal annars frá kon- strúktívisma, geómetrískri abstrak- sjón og súrrealisma, sem hann vann úr á sinn einstaka hátt. Efnivið verk- anna sótti Dieter iðulega í eigið líf og upplifanir. Hugmyndabankinn í grafíkinni „Þetta eru tvær hliðar á Dieter, rosalega ólíkar sýningar,“ segir Björn Roth, son- ur listamannsins og náinn sam- starfsmaður hans um langt árabil. Hvað sýning- una á grafík- verkunum varðar bendir Björn á að Dieter hafi lært grafíska hönnun í Sviss og þar sé upphaf myndlistar hans. „Í prentinu er upphafið og eins og við sem komin erum á miðjan aldur vitum þá þýðir ekki að forðast uppruna sinn. Það er í genunum. Dieter kom alltaf aftur að uppruna sínum í prenti. Hann varð frægastur fyrir að í höndum hans, og í þekktustu verkum, mygl- aði allt, hvarf og eyddist. En hann á sitt sjálf í grafíkverkunum, sem eru alveg á hinum kantinum, reglulega nákvæm og ekkert bítur á.“ Vinna í grafíkmiðla krefst viss aga en um leið er í grafík Dieters bæði leikur og alls kyns tilraunir. Björn segir að prentarar hafi verið miklir vinir Dieters og hann hafi notið þess að vinna með þeim að myndverkum og bókum. „Hann var alla tíð drykkjumaður og prentararnir kunnu vel að meta þegar hann mætti með brennivín og bjór að prenta með þeim,“ segir Björn kíminn. Hann rifjar upp þegar Dieter vann með prenturum í prentsmiðjunni Grafík í Reykjavík og þeir prentuðu eina nóttina sama þekkta grafík- verkið 13 eða 14 sinnum í offset- prentvélinni þar til pappírinn var orðinn mettaður af bleki. Dieter tók helminginn af upplaginu og gaf út en tuttugu árum seinna kom hann aftur að hinum helmingnum og bætti þá silkiprenti ofan á og skapaði þannig alveg ný verk. Dieter Roth gerði alls 524 ólík grafíkverk á ferli sínum og eru mörg hver einstök. Heildarsafn grafík- verka eftir hann hefur verið kallað eitt það ríkulegasta og fjölbreytileg- asta sem nokkur listamaður hefur gert. „Hann lá ekkert sérstaklega yfir þessu og pældi, hann vissi alveg hvað lá fyrir honum. Hann svo fáranlega öruggur með sjálfan sig og vissi alveg hver hann var,“ segir Björn. „Í grafíkinni getur fólk kynnst Dieter, það sem hann gerði í grafík kemur allt fram í öðrum verk- um. Þarna er hugmyndabankinn.“ Þegar rætt er við Ingibjörgu Jónsdóttur, gallerista í BERG Con- temporary, segir hún það vera ein- staklega ánægjulegt að geta sýnt hér á landi öll þessi einstöku gæða- grafíkverk eftir Dieter. Hann hafi skapað framúrskarandi myndverk í allar tegundir myndlistar og grafík hans sé svo sannarlega á heims- mælikvarða. Eins og dagbók Dieters Hvað varðar sýninguna sem verð- ur opnuð í i8 í dag, segir Björn Roth að þar sé „sé hitt og þetta og til dæmis bréf og kort sem Dieter sendi,“ en Dieter hafi farið daglega á pósthús að senda bréf til ýmissa vina, eða óvina, sem hann hafi oft skrifað nóttina áður. „Þegar hann var hér á Íslandi með móður minni í lok sjötta áratugarins og í byrjun þess sjöunda þá sendi hann mikið af bréfum. Hann fékk aldrei atvinnuleyfi hér, þrátt fyrir að vera kvæntur íslenskri konu og eiga hér börn, og var hálfpartinn að vinna í felum í bakherbergjum hjá gull- smiðum og arkitektum. Dieter var ráðinn til dæmis sem kennari í Handíða- og myndlistarskólann en þá var sagt nei, hann fékk ekki leyfi […] þessi mikli fagmaður. En Hörð- ur Ágústsson bjargaði eiginlega lífi pabba, tók hann upp á arma sína og kynnti hann fyrir ýmsu fólki og hann vann með því sumu.“ Björn ítrekar að um sé að ræða tvær mjög ólíkar sýningar. „Þetta eru tvær ólíkar hliðar á Dieter. Þeir sem vilja, eða skilja, geta lesið mikið út úr þeim. Og það hittist bara svona á að þessi tvö Reykjavíkurgallerí hafa allt í einu þessi verk í hönd- unum og sýna þau. Þessi bréf og teikningar Dieters í i8 og grafíkina í BERG Contemporary.“ Björn bætir við að að það megi nánast lesa sýn- ingarnar eins og dagbók Dieters og þær segi mjög mikið þótt þær séu ekki stórar. „Fólk á að drífa sig á sýningarnar og njóta verkanna. Og það þarf oft að pæla í verkunum til að skilja þau, karl faðir minn var einn kunnasti myndlistarmaður síðustu aldar og nýtur gríðarlegrar virðingar, en fólk skilur oft ekki alveg þegar það er súrmjólk yfir prentinu og hvaða pæl- ing það er. En þessar sýningar eru tvö mjög góð dæmi um vinnu Diet- ers sem gaman er að pæla í,“ segir Björn að lokum. Dietersveisla í desember - Galleríin BERG Contemporary og i8 sýna bæði verk eftir Dieter Roth - Í BERG Contemporary eru ýmis grafíkverk - Sýning á teikningum, skúlptúrum og verkum með blandaðri tækni opnuð í i8 Póstkort Meðal verka í i8 er „Póst- kort til Jóns Gunnars“ frá 1968, lit- offsetprentað og ámálað kort. Terta Eitt verkanna í BERG Con- temporary, „Torte in der Sonne“ frá 1970. Silkiþrykk í 5 eintökum. Morgunblaðið/Einar Falur Veggspjöld Á einum veggnum í i8 galleríi er 21 veggspjald sem Dieter hannaði og offsetprentaði fyrir farandsýn- ingu á verkum sínum, Dieter Roth, Books and Graphics, sem sett var upp víða í Evrópu og vestanhafs 1972-1974. Fjölbreytileg Frá sýningunni á grafíkverkum eftir Dieter Roth í BERG Contemorary að Klapparstíg 16. Á sýning- unni eru um 30 ólík verk frá 1970 til 1995, unnin í hina ýmsu grafíkmiðla og af mikilli hugvitssemi og kunnáttu. Dieter Roth Björn Roth ECCO HERRASKÓR FALLEGIR SPARISKÓR ÚR HÁGÆÐA LEÐRI MEÐ GÓÐUM SÓLA 18.995.- / St. 39-50 Vnr.: E-5013400101 17.995.- / St. 40-49 Vnr.: E-62165401001 18.995.- / St. 39-50 Vnr.: E-5014400101 18.995.- / St. 39-50 Vnr.: E-5010400101 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS STEINAR WAAGE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.