Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 6
Hinn hefðbundni íslenski hefðar-
köttur vaknaði oft upp með mar-
bletti á árinu sem er að líða. Þetta
voru ekki stórir og aumir mar-
blettir og ekki áverkar eins og
þeir eru skilgreindir. Heldur litlar
fjólubláar doppur sem gátu valdið
örlitlum eymslum í líkamanum, sér í
lagi á baki og mjöðmum og stöku sinnum á
rasskinnum. Sökudólgurinn var þráðlaus
heyrnartól sem urðu skyldueign þeirra sem
hoppuðu upp á hlaðvarps-vagninn 2021.
Þetta var árið sem enginn var neitt ef hann
var ekki með sitt eigið hlaðvarp. Það gerði
það að verkum að það var svo mikið of-
framboð að fólk þurfti að nýta næturnar til
þess að taka inn upplýsingar í gegnum undir-
meðvitundina. Til þess þurfti þráðlaus heyrn-
artól ef viðkomandi ætlaði ekki að kafna með
heyrnartólssnúru vafða um hálsinn. Þótt
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sé
töff með sín snúruheyrnartól þá geta
þau skapað mikla slysahættu í svefn-
herberginu.
Þeir sem áttu erfitt með svefn fött-
uðu fljótt að það var miklu ódýrara
og betra fyrir heilsuna að
kveikja á Illuga Jökulssyni fyrir
svefninn en að dæla í sig svefn-
lyfjum. Hans svæfandi rödd
náði að slökkva á fólki svo fljótt
að sumir náðu aldrei nema
fyrstu setningunni í Frjálsum
höndum. Það versnaði þó í því
þegar Stríð og kliður eftir
Sverri Norland kom út. Hann
benti á að við værum að fara með
okkur sjálf í gröfina með hjálp
tæknibyltingarinnar. Hvernig Fit
bit-úr, þráðlaus heyrnartól og and-
leg fjarvera væri mannskemmandi,
bæði fyrir okkur sjálf, börnin okk-
ar og maka. Hann segir að fólk
eigi að lesa bækur, ekki hlusta á
þær. Með því að lesa bók áttu þína
stund þar sem þú nærð að slaka á
og meðtaka nýjar upplýsingar. Þeg-
ar og ef þú sofnar yfir bókinni
þarftu ekki að hafa áhyggjur af því
að vakna með marbletti á rasskinn-
unum. Talandi um heyrnartól. Í
sumar varð ekki þverfótað fyrir
fólki með þráðlaus heyrnartól á
hlaupahjóli. Miðað við mannlega
getu er í raun skrýtið að það hafi
ekki miklu fleiri en Brynjar Níels-
son og nokkrir aðrir slasast á
hlaupahjóli.
Árið var þó ekki bara ár hlað-
MARTA MARÍA JÓNASDÓTTIR
er fréttastjóri dægurmála á mbl.is og hefur starf-
að hjá Árvakri frá apríl 2011. Hún hóf blaða-
mannsferil sinn árið 2001 hjá tímaritaútgáf-
unni Fróða, var blaðamaður á Fréttablaðinu
2004-2006, ritstjóri Veggfóðurs 2006, rit-
stjóri Sirkuss og Föstudags 2007-2009. Áð-
ur en Marta María hóf störf á mbl.is var hún
aðstoðarritstjóri Pressunnar.
Andlega fjarverandi á hlaupa-
hjóli (með erfðamál á heilanum)
varpa, marbletta og
andlega fjarverandi
fólks á hlaupa-
hjólum heldur ár
berskjöldunar-
innar. Fólk var opnara og
kom til dyranna eins og það
var klætt eða ekki klætt.
Það opnaði reikninga á
Onlyfans og sagði frá því
eins og ekkert væri sjálf-
sagðara. Það ljóstraði upp
hvað það hefði grætt
mikla peninga, sem er
framandi fyrir eldri kynslóð þessa lands. Það
að tala um peninga er ekki þjóðaríþrótt Ís-
lendinga því við erum alin upp við að það sé
skammarlegt. Við eigum ekki að tala um
laun, skuldir, sparnað og yfirdrátt. Fáir þora
heldur að tala um hlutabréfakaup, nema
ofursvölu Fortuna Invest-gellurnar, því eng-
inn vill verða eins og leigubílstjórinn sem tók
lán til að kaupa hlutabréf í FL Group fyrir
hrun og er enn að borga af því. Eins mikið
og peningar eru feimnismál virðast erfðamál
vera hitamál sem brenna á vörum þjóðar-
innar. Það er kannski ekki verið að tala um
erfðamál í jólaboðum en fólk hugsar stöðugt
um þau, eins og
lesendur Smart-
lands þekkja.
Kannski ekki
skrýtið því enginn
kynnist raunveru-
lega annarri mann-
eskju fyrr en hún
skilur við hana eða
skiptir með henni
dánarbúi. Lögmenn
á Lögfræðistofu
Reykjavíkur svara
spurningum lesenda
Smartlands og er
dálkurinn arfavinsæll.
Svo vinsæll að lög-
mennirnir hafa ekki undan að svara spurn-
ingum frá lögfræðiþyrstum landsmönnum.
Spurningarnar hafa verið af ýmsum toga en
stóru málin eru án efa erfðamál. Hver fær
hvað við andlát maka? Þarf fólk að vera í
hjónabandi eða er nóg að vera skráð í sam-
búð? Erfa stjúpbörn stjúpforeldra? Ef afi
þinn giftist Onlyfans-stjörnunni í næstu íbúð,
afi þinn deyr skyndilega og í ljós kemur að
hann og Onlyfans-stjarnan voru nýgift. Erfir
hún þá afa þinn eða færð þú eitthvað?
Allt eru þetta lögmætar spurningar sem
eiga rétt á sér. En svona til þess að svara
þessu með hjónabandið þá eiga hjón og sam-
búðarfólk ekki sama rétt. Þótt hjónaband sé
ástarhátíð þá hefur hjónabandið ríka þýðingu
í íslenskum hjúskaparlögum. Allir sem ætla
að verja lífinu saman, eiga eignir saman og
jafnvel börn, kött eða hamstur, ættu að
ganga í hjónaband, því ástin getur sigrað all-
ar heimsins krísur, harmleiki og leyst öll
vandamál. Ef hún gerir það ekki getur þú
alltaf sett á þig heyrnartól og kveikt á Illuga
Jökulssyni. Þá sofnarðu strax og vandamálin
hverfa um stund.
2021 var ár áskorana, berskjöldunar, þráðlausra heyrnartóla, hlaðvarpa og opinskárra viðtala.
Þess á milli vildi fólk fá að vita allt um erfðamál.
Ef afi þinn giftist Onlyfans-
stjörnunni í næstu íbúð, afi
þinn deyr skyndilega og í
ljós kemur að hann og Onlyfans-
stjarnan voru nýgift. Erfir hún þá
afa þinn eða færð þú eitthvað?
TÍMAMÓT: DÆGRADVÖL DÆGURSTJARNA
’’
Katrín Jakobsdóttir
ofursvöl með
snúruheyrnartól.
Edda Lovísa
Björgvinsdóttir sló
í gegn á Onlyfans.
Illugi Jökulsson er
betri en svefntafla.
Hlaupahjól
nutu mikilla
vinsælda á
árinu.
Ef afi þinn giftist Onlyfans-
stjörnu og í ljós kemur við
andlát hans að þau hafi
verið nýgift. Erfir þú afa
þinn eða gerir Onlyfans-
stjarnan það?
Fólk vaknaði oft
og tíðum með
litla marbletti á
líkamanum.
6 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021