Morgunblaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021
Nýtt ár, nýtt upphaf. Eða verður kannski boðið
upp á þriðja ár kórónuveirunnar með tilheyr-
andi leiðindum?
Kórónuveiran litaði árið og sitt sýndist hverj-
um um ágæti bólusetningar og takmarkana.
Mörgum var heitt í hamsi og er enn. Ný ríkis-
stjórn tekst á við erfið mál enn á ný. Af náttúr-
unni var það að frétta að það skalf allt og hrist-
ist og bullsauð í jörð á Reykjanesi svo
mánuðum skipti, en á öðrum vettvangi sauð
einnig upp úr. Önnur metoo-bylgja reið yfir á
árinu og steig fólk fram sem aldrei fyrr og sagði
frá kynferðisofbeldi. Kannski verður ársins
2021 minnst ekki einungis fyrir eldgos og veiru,
heldur einnig sem árs þolenda, sem nú er loks
hlustað á.
Veiran lifir og stökkbreytist
Auðvitað verður ekki hjá því komist að tala um
Covid. Árið 2021 er ár bólusetninga, grímu-
skyldu, nýrra afbrigða á borð við Delta og
Ómíkron, örvunarskammta, sóttkvíar og enda-
lausra hraðprófa. Í lok árs sáum við áður
óþekktar tölur smitaðra sem ekki sér fyrir end-
ann á. Það má samt segja að árið hafi verið ögn
betra en árið á undan og það má þakka vísinda-
mönnum sem voru snöggir að mixa saman
bóluefni sem við Íslendingar nutum góðs af.
Það sama gildir ekki um allan heiminn, því mið-
ur. Þar til þriðji heimurinn fær sinn skammt
mun veiran lifa og stökkbreytast, hoppa manna
á milli og valda veikindum og dauða.
Jörð skalf og opnaðist
Náttúran minnti hressilega á sig á síðasta ári. Í
upphafi árs skalf jörð víða og fannst vel á suð-
vesturhorninu, mörgum til ama. Jarðskjálftar
voru á tímabili daglegt brauð en ollu engu tjóni.
Loks opnaðist jörð í Geldingadölum hinn 19.
mars og gos hófst. Eldgosið var sannarlega
gleðigjafi á árinu, enda gríðarfallegt og olli ekki
miklum usla. Nú skelfur jörð á ný og mögulega
gýs aftur fyrr en varir.
Ferðamennskan tók kipp á árinu og full-
bólusettir og velprófaðir ferðamenn tóku að
streyma til landsins á ný með vorinu. Sumarið
var nokkuð veirufrítt og landinn spókaði sig í
sólinni fyrir austan þar sem einmuna veður-
blíða ríkti mánuðum saman, þótt höfuðborgar-
búar hafi kvartað sáran yfir sólarleysi.
Haustið kom svo með fjórðu bylgju veir-
unnar og smitin náðu áður óþekktum hæðum.
Þúsundir smituðust í lok árs. Jólum og áramót-
um hjá mörgum var eytt í sóttkví og einangrun
eftir að Ómíkron fór eins og eldur í sinu um
landið.
Þeim er nú loks trúað
Önnur metoo-bylgja gekk yfir landið með til-
heyrandi sársauka og reiði. 2021 var árið sem
fórnarlömb kynferðisofbeldis og -áreitis stigu
fram sem aldrei fyrr og loks virtist fólk hlusta.
Skelfilegar lýsingar á misnotkun og ofbeldi á
barnaheimili á Hjalteyri komust í fréttir en
fórnarlömbin höfðu talað fyrir daufum eyrum í
áraraðir, jafnvel áratugi. Þeim er nú loks trúað.
Flestir taka nú afstöðu með þolendum en alls
ekki allir. Steinum var velt og dómstólar göt-
unnar fóru ekki mjúkum höndum um meinta
gerendur, sem margir hverjir sleppa vel við
dómstóla landsins þar sem málin eru annað-
hvort fyrnd eða sönnunarbyrði erfið.
Það var rifist á samfélagsmiðlum og margir
menn þar nafngreindir fyrir kynferðisofbeldi af
ýmsu tagi. Oft var allt á suðupunkti og reiði og
gremja bersýnileg í þjóðfélaginu. Fyrrverandi
ráðherra var dreginn fyrir dóm; frægir íslensk-
ir fótboltamenn féllu harkalega af stalli sínum
og til að bæta gráu ofan á svart komst upp að
forysta KSÍ hafði þagað yfir vitneskju sinni um
kynferðisofbeldi, sem varð til afsagnar for-
manns og stjórnar. Í fyrsta sinn í Evrópu er
kona, Vanda Sigurgeirsdóttir, í forystu-
hlutverki knattspyrnusambands. Breyttir og
vonandi betri tímar, en meint brot eru enn til
umfjöllunar.
Drullan flýtur upp á yfirborðið
Sömuleiðis má lesa um meint kynferðisofbeldi
tónlistarmanns, fjölmiðlamanns og fleiri
þekktra einstaklinga í þjóðfélaginu. Drullan
flýtur nú upp á yfirborðið og fyrirmyndir ung-
menna eru því miður engar fyrirmyndir lengur.
Vonbrigðin eru mikil en staðan er engu að síður
svona og ekki hægt annað en að horfast í augu
við sannleikann. Enn má gera miklu betur því
eitruð karlmennska og ofbeldi fyrirfinnst enn.
Karlmenn landsins, sem langflestir eru góðir
menn sem ekki beita ofbeldi, vita margir ekki í
hvorn fótinn þeir eiga að stíga nú þegar „regl-
unum“ hefur verið breytt. Línan á milli daðurs
og áreitis er oft fín lína sem oft er stigið yfir.
Þeir karlmenn sem beitt hafa ofbeldi skjálfa
líklega nú á beinunum af ótta við að upp komist
um áreitni, nauðganir og kynferðisofbeldi sem
átti sér stað jafnvel fyrir löngu. En það er engin
ástæða til að halda hlífiskildi yfir ofbeldis-
mönnum; nauðgun er nauðgun þótt hún hafi átt
sér stað fyrir áratugum. Fórnarlömbin lifa með
afleiðingum ofbeldisins og sárin sitja eftir á sál-
inni, oft til eilífðar. Afhjúpun er aldrei þægileg
en leiðir vonandi til góðs.
Búið að stinga á einhverjum kýlum
Ekki er þetta beint upplífgandi nýárspistill en
það er nauðsynlegt að segja hlutina eins og þeir
eru. Árið 2021 var sérkennilegt ár og kannski
er búið að stinga á einhverjum kýlum svo hægt
sé að hreinsa sárin og byrja upp á nýtt. Karl-
mönnum er líka nauðgað. Einn sá hugrakkasti
sem blaðamaður ræddi við á árinu var Óli
Björn Pétursson sem varð fyrir grófu kyn-
ferðisofbeldi, auk andlegs og líkamlegs ofbeld-
is, af hálfu kynferðisglæpamannsins sem geng-
ur undir nafninu Siggi hakkari. Steig hann einn
fram af hans mörgu fórnarlömbum, en réttar-
kerfið brást níu drengjum hrapallega. Sigurður
sat inni í níu mánuði fyrir ofbeldi og nauðganir.
Eitt fórnarlamba hans svipti sig lífi, ungur
drengur í blóma lífsins.
Bjartsýni eykur á vellíðan
Nú er árið liðið og nýtt ár liggur eins og breiður
vegur fyrir framan þjóðina. Enginn veit hvort
hann mun reynast holóttur og hlykkjóttur en
gerum samt frekar ráð fyrir ekki! Það er alltaf
betra að búast við hinu besta en gera ráð fyrir
hinu versta.
Nú lítur út fyrir að Ómíkron-afbrigðið eigi
heldur betur eftir að gera okkur skráveifu í
upphafi árs, en þrátt fyrir allt má þakka fyrir
hvað Ísland er vel í stakk búið til að takast á við
veiruvandamál. Það sama gildir ekki um öll
heimsins lönd.
Vellíðan manneskjunnar veltur á jákvæðum
hugsunum og þar með vellíðan þjóðar. Að hafa
áhyggjur af ókominni tíð er vont fyrir sálina og
í raun tilgangslaust. Við stjórnum fáu og best
að lifa í núinu. Það er helst að við ráðum deg-
inum í dag. Popparinn Páll Óskar gaf eitt sinn
gott ráð í blaðaviðtali: Að vakna á morgnana,
teygja úr sér og segja hátt og snjallt: Þetta
verður frábær dagur! Eigum við ekki að heim-
færa það upp á árið 2022? Við skulum segja:
Þetta verður frábært ár!
Og svo spyrjum við að leikslokum.
Eldgosið í Geldingadölum gladdi landsmenn með stórkostlegu sjónarspili. Stóð það yfir í hálft
ár. Nú lítur út fyrir að það hefjist á ný eftir jarðaskjálftahrinu í lok árs.
Morgunblaðið/Ásdís
Þjóðin var bólusett í fyrra og flykktust landsmenn í Laugardalshöll til að þiggja sinn skammt.
Morgunblaðið/Eggert
Óli Björn Pétursson er fórnarlamb kynferðis-
ofbeldis. Hann steig fram á árinu og sagði frá,
sem og margir aðrir, konur og menn. Árið 2021
er árið sem fórnarlömb stigu fram sem aldrei fyrr.
Morgunblaðið/Ásdís
Árið þegar upp úr sauð
Árið 2021 var ár erfiðra bylgna. Veiran hvarf alls ekki eins og menn höfðu vonað og hélt áfram að hrella okkur í nýjum bylgjum.
Metoo-bylgja reið einnig yfir þjóðina og margir landsþekktir menn komust í kastljósið. Fórnarlömbum ofbeldis var nú trúað.
ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR
hefur verið blaðamaður á Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins frá 2015. Hún var áður ljósmyndari
blaðsins frá 1995-2007
Nú lítur út fyrir að Ómíkron-afbrigðið eigi
heldur betur eftir að gera okkur skráveifu í
upphafi árs, en þrátt fyrir allt má þakka fyrir
hvað Ísland er vel í stakk búið til að takast á við veiru-
vandamál. Það sama gildir ekki um öll heimsins lönd.
TÍMAMÓT: VEIRAN OG AFHJÚPANIR OFBELDIS LITUÐU ÁRIÐ 2021
’’