Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021 33
JÚNÍ Deildarmyrkvi á sólu sást hinn 10. júní. Í deildarmyrkva fer
tunglið fyrir hluta sólarinnar, en ekki varð almyrkvi.
Í Reykjavík hófst myrkvinn kl. 09:06 og lauk 11:33. Hann varð
mestur kl. 10:17, en þá skyggir tungl á 69% af þvermáli sólar og
veldur 61% myrkvun.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sólmyrkvi gleður
MAÍ Sinubruni varð í Heiðmörk hinn fjórða maí og náði gróðureldurinn að minnsta kosti yfir fimm hektara svæði.
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-EIR, notaðist við slökkviskjólu sem tekur rúma 1.600 lítra af vatni við slökkvi-
starfið.
Fleiri sinubrunar urðu í maí, meðal annars á Vatnsleysuströnd, við Kúludalsá og við Lundeyri á Akureyri. Miklir
þurrkar voru á þessum tíma.
Morgunblaðið/Eggert.
Sinueldar víða
JÚLÍ Viðstaddir fögnuðu ákaft og skáluðu í freyðivíni þegar bjöllu
Kauphallarinnar var hringt í um 12 þúsund feta hæð í byrjun júlí.
Það var til að fagna skráningu Play á hlutabréfamarkað á Íslandi. Í
ræðu sinni við tilefnið sagði Birgir Jónsson, forstjóri Play, að hann
fyndi til ábyrgðar vegna þess trausts sem félaginu var sýnt í nýaf-
stöðnu hlutafjárútboði. Lagt var upp með að fjórir milljarðar
myndu safnast í útboðinu en áskriftir bárust að andvirði um 33
milljarða króna. Það er því ljóst að Play kemur með látum inn á ís-
lenskan hlutabréfamarkað. Birgir segir að rekstrarumhverfi í flug-
bransanum sé erfitt og forsvarsmenn Play muni bera virðingu og
auðmýkt fyrir því með því að flýta sér hægt í rekstri félagsins.
Morgunblaðið/Eggert
Skálað í háloftunum
þegar Play fór á markað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýr miðbær á Selfossi
JÚLÍ Nýr miðbær var opnaður á Selfossi í júlí og hefur vakið mikla lukku heimamanna sem gesta. Formleg opnun fór fram
síðla sumars.
„Hjartað í bænum var autt og það var einstakt tækifæri eitt og sér. Það vantaði miðbæ og okkur langaði að nýta tæki-
færið. Slagorðið okkar er að brúa gamalt og nýtt. Þetta er djörf hugmynd, nokkuð sem ekki hefur verið gert áður,“ segir
frumkvöðullinn Leó Árnason, maðurinn á bak við nýja miðbæinn, sem allur er byggður í gamla stílnum.
JANÚAR Guðmundur Felix Grétarsson fékk nýja handleggi í upphafi ársins og sagði að-
gerðina, sem framkvæmd var í Frakklandi, hafa gengið vel.
„Halló kæru vinir og fjölskylda. Eins og þið kannski vitið er ég ekki handlangari lengur. Ég
er orðinn handhafi og þetta gekk allt saman rosalega vel,“ sagði Guðmundur Felix á Face-
book stuttu eftir aðgerðina.
Aðgerðin er viðburður í sögu læknisfræðinnar þar sem aldrei áður hafa verið græddir tveir
heilir handleggir á sjúkling sem hafði enga fyrir.
Ég er orðinn handhafi
JANÚAR Hinn 21. janúar, um nótt, kom upp stór kaldavatnsleki í lokahúsí vatnsveitu sunnan
við aðalbyggingu Háskóla Íslands og lak mikið magn vatns inn í byggingar skólans. Lekinn
var um 500 l/s og stóð í 75 mínútur áður en náðist að loka fyrir og runnu því út um 2.250 tonn
af vatni. Rektor háskólans, Jón Atli Benediktsson, segir að vatnstjónið hafi verið gríðarlegt
áfall fyrir háskólann. Háskólatorg og Gimli urðu verst úti.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Vatnstjón mikið í Háskóla Íslands