Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 34
OKTÓBER Vanda Sigurgeirsdóttir tók við formannsembætti
Knattspyrnusambands Íslands í byrjun október eftir að ný
bráðabirgðastjórn var kjörin á aukaþingi sambandsins.
Vanda tók við eftir að Guðni Bergsson, fráfarandi formaður,
og öll stjórnin sagði af sér í kjölfar ásakana um að hafa ekki
brugðist við ásökunum á hendur leikmönnum íslenska
landsliðsins.
„Ég hef ekki verið mikið í að sækjast eftir frama og völdum
og ekkert slíkt hvarflaði að mér þegar Guðni hætti. Síðan fór
ég að fá áskoranir frá fjölskyldu og vinum og á samfélags-
miðlum,“ segir Vanda, sem tók þá við á róstusömum tímum.
Sóttist ekki eftir frama
Morgunblaðið/Eggert
OKTÓBER Teppasalinn Alan Talib, maður af írönskum upp-
runa, hristi heldur betur upp í málunum í haust þegar hann
flutti inn þúsundir persneskra teppa og bauð á undirverði.
Teppin ruku út en ekki voru allir jafn hrifnir og hlaut hann
sekt vegna þess að auglýsingar hans voru að mati
Neytendastofu villandi og var honum bannað að auglýsa
áfram með sama hætti.
„Við fengum einhverja hæstu sekt eða jafnvel hæstu sekt í
sögu landsins og það kemur mér verulega á óvart,“ segir
Alan en fyrirtæki hans, Cromwell Rugs ehf., var gert að
greiða þrjár milljónir í stjórnvaldssekt.
Morgunblaðið/Ásdís.
Teppasali veldur usla
34 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varðskip-
ið Freyja
leysir
Tý af
NÓVEMBER Þremur
fallbyssuskotum var
skotið til heiðurs varð-
skipinu Freyju sem kom
til hafnar á Siglufirði 6.
nóvember. Mikil hátíðar-
höld voru við höfnina
þegar Freyja kom til
sinnar heimahafnar en
viðstödd voru meðal
annars Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Ís-
lands, og Georg Kr. Lár-
usson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar.
Freyja kemur til með að
leysa varðskipið Tý af
hólmi.
NÓVEMBER Þegar ljóst var að ekki hefði verið farið að lög-
um við geymslu atkvæða eftir kosningar í Norðvestur-
kjördæmi, var farið í vettvangsferðir til Borgarness. Þar var
Birgir Ármannsson, formaður undirbúningsnefnar fyrir rann-
sókn kjörbréfa, í fararbroddi.
Kom í ljós að ákveðin frávik hefðu verið við flokkun kjör-
gagna. Niðurstaðan var þó að láta úrslitin standa.
Morgunblaðið/Eggert
Vettvangsferðir Birgis
NÓVEMBER Kaldir vindar blésu um verkalýðsfélagið Eflingu
í haust og sagði formaðurinn Sólveig Anna Jónsdóttir af sér
og í kjölfarið fylgdi framkvæmdastjórinn, Viðar Þorsteinsson.
Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformaðurinn, varð því
skyndilega orðin formaður Eflingar og Ólöf Helga Adolfs-
dóttir, ritari stjórnar, tók að sér varaformennsku. Vonast þær
til að lægja öldurnar.
Morgunblaðið/Ásdís
Ný forysta Eflingar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
SEPTEMBER Formenn flokkana hittust í kappræðum í aðdrag-
anda kosninga og ræddu málin í beinni á RÚV. Inga Sæland, for-
maður Flokks fólksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, voru þeirra á meðal. Á myndinni mætti ætla að
Inga væri að segja Bjarna til syndanna, en enginn veit hvað fór
þeirra á milli. Augnablikið er engu að síður skemmtilegt.
Tekist á fyrir kosningar
FRÉTTIR AF INNLENDUM VETTVANGI
SEPTEMBER Víkingar urðu Íslandsmeistarar karla í knattspyrnu
2021 eftir sigur á Leikni úr Reykjavík í lokaumferð úrvalsdeildar-
innar á Víkingsvellinum 25. september. Þetta er 6. Íslandsmeist-
aratitill Víkinga og sá fyrsti í 30 ár. Þeir urðu líka bikarmeistarar.
Morgunblaðið/Eggert
Víkingur Ísandsmeistari