Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 37
MARS Átta manns, þar af sex konur
af asískum uppruna, létu lífið í skot-
árásum í þremur heilsulindum í Atl-
anta í Georgíu í Bandaríkjunum 16.
mars. 21 árs karlmaður var handtek-
inn og ákærður fyrir morðin. Saksókn-
arinn í Fulton County sagði að skot-
árásin hefði verið hatursglæpur.
Ráðist hefði verið á fórnarlömbin
vegna uppruna þeirra, kynþáttar og
kyns og yrði farið fram á dauðarefs-
ingu. Frá því að kórónuveirufarald-
urinn hófst hafa margir Bandaríkja-
menn af asískum uppruna sagt að
þeir hafi orðið fyrir árásum vegna kyn-
þáttar síns og ótti þeirra magnaðist
eftir morðin. Í skýrslu rannsóknar-
stofnunar um hatur og öfgar við Ríkis-
háskóla Kaliforníu voru bornar saman
tölur frá fyrri hluta árs 2020 og 2021
og kom í ljós að hatursglæpum á
hendur Bandaríkjamönnum af asísk-
um uppruna fjölgaði um 169%.Chang W. Lee/The New York Times
Asíumenn í
Bandaríkjun-
um verða fyrir
auknu aðkasti
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021 37
The New York Times
Valdarán hersins í Búrma
MARS Herinn í Búrma eða Mjanmar hrifsaði stjórnartaumana í valdaráni 1. febrúar og lýsti yf-
ir neyðarástandi í eitt ár. Herinn, sem innfæddir kalla Tatmadaw, virti að vettugi niðurstöður
almennra kosninga þar sem Daw Aung San Suu Kiy og Þjóðarbandalag hennar fyrir lýðræði
unnu stórsigur. Eftir nokkurra vikna að mestu friðsamleg mótmæli gegn valdaráninu tók að
hitna í kolunum og fyrstu almennu borgararnir létu lífið 19. febrúar. Þá dóu tveir óvopnaðir
mótmælendur, annar sextán ára gamall drengur. Aung San Suu Kyi var ákærð fyrir glæpi
sem gætu kostað hana margra ára fangelsisdóm.
APRÍL Filippus prins, maður
Elísabetar II. Bretadrottningar,
lést 9. apríl 99 ára að aldri. Í til-
kynningu frá Buckingham-höll
kom fram að hertoginn af Edin-
borg hefði kvatt með kyrrð og
friði. Hann hafði í nokkur skipti
verið lagður á sjúkrahús fyrr á
árinu. Hann kvæntist Elísabetu
árið 1947, áður en hún tók við
krúnunni. Þau áttu fjögur börn,
Karl, Önnu, Andrés og Játvarð.
Hermt hefur verið að Elísabet
hafi sagt föður sínum að Filipp-
us væri eini maðurinn sem hún
myndi nokkru sinni geta elsk-
að. Er hann lést höfðu þau ver-
ið gift í 73 ár. Filippus lifði sig
inn í sitt konunglega hlutverk
og var verndari rúmlega 800
góðgerðarsamtaka þegar hann
dró sig í hlé frá opinberum
skyldustörfum árið 2017. Andrew Testa/The New York Times
Filippus
prins látinn
APRÍL Önnur bylgja kórónuveirunnar hafði skelfilegar afleiðingar á Indlandi. Seint í apríl
voru skráð 300 þúsund ný tilfelli á dag í níu daga samfleytt og skömmu síðar fór talan í fyrsta
skipti yfir 400 þúsund tilfelli. Sérfræðingar töldu að smitin hefðu verið mun fleiri, en ekki
greinst. Faraldurinn var heilbrigðiskerfi landsins ofviða, súrefnisbirgðir voru af skornum
skammti á sjúkrahúsum og skortur á bóluefni stóð bólusetningarherferðum fyrir þrifum í
mörgum héruðum landsins. Serastofnun Indlands, helsti bóluefnaframleiðandi heims, þurfti
nú að bregðast við vaxandi eftirspurn heima fyrir. Landamærin milli Indlands og Nepals eru
opin og önnur bylgjan breiddist hratt út til grannríkja landsins.
Atul Loke/The New York Times
Kórónuveiran
skæð á Indlandi