Morgunblaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 40
Diego Ibarra Sanchez/The New York Times
Efnahagshrun í Líbanon
ÁGÚST Efnahagur Líbanons hefur haldið
áfram að versna eftir sprenginguna í höfninni
í Beirút í ágúst í fyrra. Upp úr sauð þegar þess
var minnst að ár var frá harmleiknum, en talið
er að þetta sé ein öflugasta sprenging sem
orðið hefur án þess að kjarnorka kæmi við
sögu. Mótmælendur fjölmenntu úti á götum
og óeirðir blossuðu upp. Alþjóðabankinn lýsti
því svo að kreppan í landinu væri ein sú
mesta í heiminum í eina og hálfa öld. Ugg-
vænlega hátt hlutfall heimila var án helstu
nauðþurfta og er skortur á mat, lyfjum og
eldsneyti. Átakalínur í stjórnmálum í landinu
liggja á milli trúarbragða og flokkadrættir eru
miklir. Stjórnvöld reyndu að semja við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn um björgunaráætlun.
Í október kom til banvænna götubardaga milli
vígasveita kristinna og sjía-múslíma, sem
minntu á borgarastyrjöldina í landinu fyrir
rúmum þremur áratugum.
40 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.12. 2021
ÁGÚST Samhliða því að bandarískir
hermenn voru kvaddir á braut frá Afg-
anistan féllu höfuðborgir héraða í
landinu eins og spilakubbar undan
sókn Talíbana, sem yfirbuguðu þjóð-
arher landsins eins og hendi væri veif-
að. Kabúl, höfuðborg landsins, féll 15.
ágúst. Ashraf Ghani, forseti Afganist-
ans, flúði og stjórn landsins féll áður
en Bandaríkjamenn höfðu náð að
kalla alla sína hermenn og óbreytta
borgara heim. Þúsundir manna
reyndu í örvæntingu að flýja og skap-
aðist mikil ringulreið við flugvöllinn í
Kabúl. 26. ágúst sprengdi vígamaður
frá Ríki íslams sig í loft upp við hlið
flugvallarins með þeim afleiðingum að
yfir 170 óbreyttir borgarar og 13
bandarískir hermenn létu lífið.
Talíbanar snúa
aftur til valda í
Afganistan
FRÉTTAMYNDIR AF ERLENDUM VETTVANGI
Jim Huylebroek/The New York Times
Kosið í Þýskalandi
SEPTEMBER Þjóðverjar gengu til almennra þingkosninga 26. september þar
sem skorið var úr um hver myndi taka við af Angelu Merkel kanslara eftir næst-
um 16 ár við völd í fjögur kjörtímabil. Merkel, sem er kristilegur demókrati, hafði
tilkynnt að hún myndi ekki sækjast eftir að sitja áfram og ríkti mikil spenna um
hver yrði arftaki hennar. Sósíaldemókratar bættu við sig fylgi á lokametrum
kosningabaráttunnar og þegar talið hafði verið upp úr kjörkössunum blasti við
að Olaf Scholz, leiðtogi þeirra, væri líklegastur til að leiða næstu stjórn Þýska-
lands. Eftir langar og strangar stjórnarmyndunarviðræður Sósíaldemókrata,
Frjálsra demókrata og Græningja tók Scholz við embætti kanslara 8. desember.
Fabian Bimmer/Reuters
Luis Acosta/Agence France-Presse Getty Images
Pandóru-skjölunum lekið
OKTÓBER Yfirgripsmikið yfirlit yfir eignir og fjármál fólks á borð við
Abdullah II. Jórdaníukonung, Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra
Bretlands, söngvarann Shakiru og menn í innsta hring hjá Vladimír Pút-
ín Rússlandsforseta var meðal upplýsinga sem komu upp á yfirborðið í
gríðarlegu gagnahafi sem var lekið og nefndust Pandóru-skjölin. Þar
var meint notkun hinna ríku á aflandsfyrirtækjum til að hlaða undir sig
auði og leyna honum, komast undan skatti og eiga í leynilegum fjár-
málagjörningum afhjúpuð. Lekið var tugmilljónum leyndarskjala frá 14
aflandsfyrirtækjum. Samtökin International Consortium of Investigative
Journalists, sem hafa aðsetur í Washington, birtu skjölin í samvinnu við
ákveðna fjölmiðla, þar á meðal Guardian og Washington Post. Þar var
að finna rúmlega 330 opinbera embættismenn frá yfir níutíu löndum og
35 núverandi og fyrrverandi þjóðarleiðtoga.Kenny Holston/The New York Times
Hæstiréttur stöðvar
ekki gildistöku fóstur-
eyðingalaga í Texas
SEPTEMBER Hæstiréttur Banda-
ríkjanna dæmdi að ekki bæri að
koma í veg fyrir að ný löggjöf um
fóstureyðingar tæki gildi í Texas.
Fimm dómarar komust að þessari
niðurstöðu, en fjórir voru andvígir.
Með lögunum taka gildi mestu tak-
markanir á fóstureyðingum í Banda-
ríkjunum. Þau banna fóstureyðingar
eftir sex vikna meðgöngu. Sam-
kvæmt lögunum kemur það ekki í
hlut ríkisvaldsins í Texas að fram-
fylgja þeim, heldur almennra borg-
ara, sem hafa rétt til að stefna hverj-
um þeim sem eyðir fóstri. Hafi þeir
betur eiga þeir rétt á minnst 10.000
dollurum (1,3 milljónum króna) til að
borga lögmannskostnað. Gagnrýn-
endur hafa lýst yfir áhyggjum af lög-
unum og harma að nokkurs konar
hausaveiðurum verði gefið vald til
að framfylgja þeim. Hæstiréttur
hlýddi á sjónarmið stjórnar Bidens
og heilsugæslustöðva sem gera
fóstureyðingar gegn lögunum 1.
nóvember og gaf til kynna að heilsu-
gæslustöðvunum yrði gefinn kostur
á að halda málflutningi sínum áfram.